Vonin - 28.08.2025, Qupperneq 6
Kæri busi,
Vertu hjartanlega velkominn í Verzlunarskóla Íslands.
Óskar Breki Bjarkason heiti ég og er háttvirtur forseti yðar.
Næstu daga muntu taka fyrstu skref þín í nýjum kafla í lífi
þínu, nú færðu loksins að uppskera ávöxt vinnunar þinnar í
10. bekk og getur nú loks kallað þig Verzling.
Vertu óhræddur við að taka þátt í öllu sem tengist
félagslífinu hér í Verzló. Það er í gegnum félagslífið sem þú
kynnist fólki, eignast vini til lífstíðar og safnar minningum
sem fylgja þér langt út fyrir skólalóðina. Skráðu þig í viðtöl,
mættu á viðburði, taktu þátt í keppnum, stofnaðu nefnd/ir, og
láttu rödd þína heyrast. Í Verzló er alltaf eitthvað í gangi, en
það er undir þér komið að nýta tækifærin sem bjóðast.
Mitt starf sem forseti gengur annars út á það að segja þér
svona hluti. Ég er hér til að hjálpa þér í gegnum þetta
örlagaríka skólaár og koma þínum hugarefnum á framfæri.
Ég passa upp á þína hagsmuni og þína vellíðan. Svo sé ég
auðvitað líka um öll böllin og hef yfirumsjón um nær allt sem
kemur að félagslífinu.
Ég segi þá gangi þér vel og mig hlakkar til að sjá þig vaxa og
dafna hér í Verzló.
Kveðja,
Óskar Breki Bjarkason - Forseti NFVÍ
ÓSKAR SKÁL fyrir ykkur elsku busar, veriði hjartanlega
velkomin í Verzló! Þið eruð eflaust pínu ringluð
núna, vitið kannski ekki alveg hvað þið eigið að
gera við ykkur og hafið enga hugmynd hvað þetta
nemendafélag snýst um. Engar áhyggjur, ég ætla
einmitt að kynna ykkur fyrir einni mikilvægustu
nefnd skólans… Markaðsnefnd! Það er sko alls
engin tilviljun að Verzlingar séu alltaf
skellihlægjandi á göngunum, alltaf í glænýjum
fötum og borða á kúmen í hverju hádegi. Það má
segja að það sé allt markaðsnefndinni að þakka!
Við sjáum nefnilega um að gefa út
nemendaskírteini sem allir nemendur fá, en það er
rafrænt skírteini í Nova appinu sem er
STÚTFULLT af afsláttum. Lítill fugl hvíslaði meira
að segja að mér að aldrei hafi verið fleiri afslættir í
skírteininu en í ár... #spennóóóó Við pössum líka
upp á að vikurnar á marmaranum verði
ógleymanlegar. Við tryggjum að nefndirnar séu
með frábæra styrktaraðila sem hjálpa til við að
fjármagna ekki aðeins crazylit vikur heldur einnig
stærstu viðburði skólans. Í stuttu máli: Við hjálpum
ykkur að spara pening og höldum Verzlingum
skellihlægjandi ár eftir ár. Ég hlýt að hafa náð að
sannfæra ykkur um að Markaðsnefnd er ein besta
og mikilvægasta nefnd skólans. - Over and out,
Queen of The Market
EVA MARGRÉT