Vonin - 28.08.2025, Qupperneq 15
kynning
HOLYSJIT, YOU MADE IT!
Og vá, vá, VÁ! HVER GERÐI SVONA FOKKING FLOTT
BLAÐ?! Það er að sjálfsögðu guðdómlegasta nefnd
Verzlunarskólans....VILJINN. Velkomin í Verzló elsku busi,
ég heiti Naima og er formaður Viljans. Þið eruð
ábyggilega að velta því fyrir ykkur hvað Viljinn gerir í
rauninni, nú fyrir utan þetta STÓRKOSTLEGA
nýnemablað höfum við margt fram á að færa. Í heildina
gefum við út þrjú blöð, þetta sem þú ert að lesa og síðan
eitt tölublað á hverri önn. Engar áhyggjur tölublöðin eru
jafn kúl og Vonin. Svo má ekki gleyma tveim fkn lit vikum
sem við höldum fyrir hverja útgáfu. Þessar vikur eru
stútfullar af straight up greatness, bíðið bara. En afhverju
er Viljinn svona geggjuð nefnd?
Jú þar sem aðrir skrifa fyrir einkunn, skrifum við fyrir
ástríðuna. Við erum skapandi, setjum upp stórfenglega
myndaþætti, skrifum sturlaða texta og basically setjum
upp blað úr öllu sem þið kæru Verzlingar brennið fyrir. Ef
að þú hefur áhuga á að skrifa texta, taka myndir, hönnun,
tísku og ert bara alment arty mofo þá er Viljinn klárlega
fyrir þig. Ég get lofað þér því að þú vilt sko ekki missa af
þessari veislu, þú hefur tækifærið, just do it, trust.
Kær kveðja, Viljinn.
NAIMA
HILDUR-ODDUR-BIRNA-DAVÍÐ-NATALÍA-HRAFNKELL-GERÐA
ÞORSTEINN
SNÆDÍS-TRAUSTI-MARTA-HÖGNA-SNÆBJARTUR-HEKLA-ÞÓR
Waguan busaboys og busagirls og velkomin í Verzló. Nú hættið
þið að vera mýs og gerist drekar. Its a scary world in here,
maður veit hvern maður mun rekast á og aldrei hvenær maður
rekast við, zæk zæk zæk, segi svona. En ekki hafa áhyggjur,
eini hluturinn sem þið þurfið að vita um er
Málfundarfélagið/Málfó/Djammfó/Mjálfó/Málfla eða hvað sem
þú villt kalla þessa nefnd.
Hvað gerir Málfó???... vá, hvað gerir Málfó ekki. Hér áður fyrr
var NFVÍ bara málfó. Þetta er elsta og virtasta nefndin
(retweet!). Málfó sér um að halda utan um gettu betur og
MORFÍs. Margir vita ekki hvað MORFÍs er en það er einmitt
ræðukeppni milli framhaldsskóla og er ekkert eðlilega
skemmtilegt concept. Eftir að rústa í fyrra þá erum við æst í að
halda dollunni og hvetjum þig, já þig! að mæta í prufu. Einnig sér
Málfó um allan versló varning eins og Skólagallana og boli. En
þetta er ekki allt, Málfó heldur líka skemmtilegustu viku
skólaársins ár eftir ár sem er auðvitað Ví-emer vikan þar sem
Versló pakkar mr saman í ýmsum greinum eins og stóra
fótboltaleiknum og stóru ræðukeppninni. og Heldur líka flestu og
bestu skemmtikvöldin. Samkvæmt mínúm útreikningum er
þetta 73% af félagslífinu í Versló. Það mætti segja að félagslífið
í Verzló væri tómlegt og ömurlegt án Málfó (annað retweet!).
Sjaldan er athafnarmaðurinn stakur að slá sinn akur, taktu þetta
með þér á koddann elsku vinur og mættu í málfó viðtal, þú
munnt ekki sjá eftir því.
Þinn Þorsteinn Ari.