Alþýðublaðið - 06.04.1926, Page 1
CeöD út af Alpýðuflokluium
78. tölublað.
Þriðjudaginn 6. april,
Grlensg símskeyti.
Khöfn, FB., 4. apríl.
Fiskveiðar Norðmanna.
Tímarit utanríkismálaráðuneyt-
isins í Kaupmannahöfn (Udenrigs-
ministeriets Tidskrift) gefur þær
upplýsingar, að verðmæti fisk-
veiða Norðmanna í fyrra hafi ver-
ið um 120 milljónir; þar af ís-
landsveiða 4,5, en þar frá dregst
kostnaður við tunnur og salt. 30
skip tóku þátt í Grænlandsveiði
og veiddu 1750 smál. Pótti borga
sig illa. Verðmæti fiskveiða 1924
var 125 miiljónir, en 1921 að eins
58 milljónir.
Prófessor látinn.
Frá Osló er símað, að prófessor
Christian Collin sé látinn.
Tollhækkun í Frakklandi.
Frá París er símað, að innflutn-
ingstollar hafi verið hækkaðir um
'30 a. h. nema á nauðsynjavörum.
Frá sjómonnunum.
FB., 3. apríl.
Óskuin öllum ættingjum og vin-
um gleðilegra páska. Velliðan.
Kveðjur.
Skipshöfnin á „Ara“.
„Ásu“~sframdið.
Nánari frasögn.
Skipið strandaði kl. 2,15.
Þá er „Ása“ var strönduð og
blásið hafði verið til að gera fólki
í landi aðvart, söfnuðust menn úr
grendinpi á vettvang, þegar um
nóttina, og síðan var alt af margt
manna á strandstáðnum, þar til
er öllum skipverjum var bjargað,
viðbúnir að láta aðstoð sína í té,
og hjálpuðu Grindvíkingar þeim
að komast i land svo sem fram-
ast voru föng á. Björgunin fór
þannig fram að dufli, sem vörpu-
garni var fest í, var varpað fyrir
borð, og tókst Grindvíkingunum
að lokum að ná í það á báti
um kl. 12. Bátinn urðu þeir ,að
flytja langa leið á strandstaðinn
og sumpart að bera hann. Áður
höfðu verið gerðar margar tilraun-
ir til að koma Ifnu í land, en allar
mistókust, nema þessi síðasta. M.
a höfðu Grindvíkingar gert tilraun
með að láta hund synda eftir lín-
unni. Nú var garnlínunni náð.
Var duflvír síðan dreginn í land á
garninu, en á honum aftur vörpu-
strengjavír. Þá er honum hafði
verið komið í land, svo að nógu
sterk taug var út á skipið, var
sagað ofan af tunnu úti á^kipinu,
kaðaineti síbrugðið um hana og
hún tryggilega fest á vírinn. Var
hann strengdur milli skips og
lands. Meðan lágsjávað var, og
því styzt úr skipinu í lan'd, stigu
skipverjar í tunnuna, hver eftir
annan, en þeir, sem á landi voru,
drógu hana að sér á vírnum. Fór
fyrst einn í land -í senn í tvö
skifti, en síðan tveir í einu að
jafnaði, en Grindvíkingarnir héldu
vírnum uppi landmegin, svo sem
unt var, og tóku á móti skips-
mönnum. CfiWcbjörgunin fljótt og
<V:' - /•——
vel með-þéssu móti, og kl. rúml. 2
á laugardagdinn voru allir komnir
í land.
Sjálf björgunin tók um eina
klst. Skipverjar róma mjög áhuga
og ötulleik Grindvíkinganna við
björgunina.
Skipverjar náðu að eins litlu
af farangri úr skipinu. Þeir fengu
ágætar viðtökur í Grindavík.
Þar beið þeirra upphituð stofa.
Komu þeir hingað um kvöldið.
Voru 5 bifreiðar sendar héðan frá
Duus-verzlun til að sækja þá, og
voru þær komnar til Grindavíkur
áðúr en skipverjar voru komnir
í land og með þeim læknir og
Jakob Jónsson, verzlunarstjóri.
— Voru strandmennirnir allir
heilir og ómeiddir. Þeir voru 37.
„Ása“ var á leið af veiðuni, þeg-
ar hún strandaði, og hafði fengið
um 137 tunnur lifrar. Var talsvert
af lifrinni notað til að kyrra sjó-
inn, því að stórbrim var þá á
flúðunum, þar sem hún strandaði.
Þetta var fyrsta veiðiför skips-
ins. Talið er vonlaust um, að því
verði náð út aftur.
Guðsþjónusta
í aðventkirkjunni á morgun kl. 8
e. h. Samlestur.
Trúlofun,
Ásdís Pétursdóttir Hringbraut og
Magnús Grímsson, Grettisgötu 22
hafa birt trúlofun sína.
Heilsufarsfréttir.
(Eftir símtali við landlækni ' í
morgun.) Síðustu viku urðu læknar
varir við tvo barnaveikissjúklinga
tiér í Reykjavik. Hér er „influenza",
sem fer hægt og er ekki illkynjuð.
Hefir enginn dáið úr henni. Líklega
hefir hún verið hér um hálfan mán-
uð. Óvíst er, hvaðan hún er komin,
því að hún gengur mjög víða erlend-
is. Barnakvefið á Akureyri er svipað
og áður, en mislingarnir á Norður-
landi í rénun. Á Seyðisfirði útbreið-
ast þeir aftur á móti. Á Norðfirði
er kvefsótt lík „influenzu". Að öðru
leyti gott heilsufar um land alt. —
Skeytið, sem blöðunum var sent um
spænsku veikina í Færeyjum og út-
breiðslu hennar eftir grindhvalsreka,
var skrökskeyti. Landlæknirinn þar
sagði á eftir, að 50 sjúklingar hefðu
verið veikir í Þórshöfn í vægri „in-
fluenzu“. (Fyrirspurn landlæknis hér
svarað þannig.)
Bátshvarfið.
Þvi miður hafa engar fréttir bor-
ist af bátnum, sem hvarf héðan. —•
Móðir Sveins Ingvarssonar, sem
drukknaði í Grindavík um daginn,
var annna bræðranna, sem á bátnum
voru. Hún er ekkja og hefir áður
mist annan son sinn i sjóinn.
Næturvörður
er þessa viku í lyfjabúð Reykja-
víkur.