Alþýðublaðið - 10.02.1920, Síða 4
4
A.LÞÝÐUBLAÐIÐ
Eftir Upton Sinclair.
(Frh.).
Hallur fann til félagskendar
með þessum unga manni, og sú
hugsun skemti honum, að hann
hafði þakkað Guði það, að hann
var ekki sá, sem hann var álitinn
að vera, þegar hann lá úti I rign-
ingunni, nóttina sælu, þegar hann
var barinn. Hvernig skyldi annars
þessurn skipulagsmanni vera fariðf
Hatsn hlaut að minsta kosti að
hafa bjargfasta sannfæringu, fyrst
hann tók þetta starf að sérl
Hann sagði þetta við hann, og
hinn svaraði: „Þú getur fengið
launin mín, hvenær sem er, ef
þú vilt taka við starfi mínu. En
þú þarít ekki að ætla, að það
séu barsmíðin og skrækskjóðurnar,
héraðsþjónarnir, snuðrararnir og
svarti listinn, sem er verst viður-
eignar. Það, sem gerir okkur erf-
iðast fyrir, eru einmitt þeir menn,
sem við erum að reyna að hjálpa.
Þú getur ekki ímyndað þér, hve
erfitt það er, að útskýra mál fyrir
mönnum, sem tala tuttugu ólíkar
tungur".
„Nei, þar munt þú hafa rétt
fyrir þér". svaraði Hallur, „eg
skil yfir höfuð ekki, hvernig þú
færð nokkurn botn í því“.
„Eg reyni að ná í túlk — en
ef til vill er hann svo einn af
snuðrurum íélagsins. Eða ef til
vill segir sá fyrsti, sem maður vill
hafa áhrif á, verkstjóranum til
manns. Því auðvitað eru margir
verkamenn erkiflón og aðrir þorp-
arar, sem selja bezta vin sinn
fyrir betri stöðu — jafnvel fyrir
eitt staup af víni".
„Mér virðist einmitt það geta
kollvarpað sannfæringu þinni“,
sagði Hallur.
„Nei“, svaraði hinn tafarlaust,
„það er að vísu hart aðgöngu,
en það er ekki hægt að álasa
veslingunum vegna þess. Þeir eru
óupplýstir — að yfirlögðu ráði er
þeim haldið utan við Ijós menn-
ingarinnar. Verkstjórarnir útvega
þá og hafa heilt kerfi, til þess að
stía þeim í sundur. Auðvitað hafa
evrópumenn þessir sínar kreddur,
— þjóðarkreddur, trúarkreddur
og þær skilja þá að. Hugsum
okkur tvo menn, báðir eru ná-
kvæmlega eins aumir á að sjá —
um íbúðir í húsum Byggingarfélags Reykjavíkur fer
fram sunnudaginn 15. febrúar 1920 í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu og Ingólfsstræti og byrjar kl. 2 síð-
degis.
Reykjavik, 9. febr. 1920.
Gæsiustjórnin.
5jómarinaféla^ "Rvíkur
heldur fund í Alþýðuhúsinu miðvikud. 10. febr. kl.
8. Fundarefni samkvæmt tillögu síðasta fundar.
£tj 'érnin.
en það sýnir sig, að annar fyrir-
lítur hinn ákaflega, vegna þess,
að heima í föðurlandinu, var hann
yfirmaður hins. Á þennan hátt
spila þeir algerlega út, undir verk-
stjórana, sem auðvitað nota sér
tækifærið og kúga þessa fáráð-
linga".
XXVII.
Þeir voru nú komnir afsíðis og
settust á stein. „Heldurðu að þeir
átti sig ekki bráðum?" spurði
Hallur.
„Settu þig { þeirra spor“, sagði
skipulagsmaðurion1). „Setjum, að
þú sért í ókunnu landi, og einn
segir þér þetta, annar hitt. Yfir-
mennirnir og þeirra þý segir:
„Skiftu þér ekkert af hvatninga-
mönnum verkamannafélaganna.
Þeir eru sníkjudýr, sem eiga góða
daga og þurfa ekki að vinna. Þeir
taka fé af ykkur og skipa ykkur
í tilbót að gera verkfall, svo að
þið missið stöðu ykkar og heimili.
Kannske selja þeir ykkur líka,
og fara svo eitthvað annað og
fremja sama bragðið. Og verka-
mennirnir hugsa, það getur verið,
að þetta sé satt. Þeir eru ekki
nógu hyggnir, til þess að skilja,
að væru verkamannaforingjarnir
i) Organisator nefni eg skipu-
lagsmann, en agitator, hvatninga-
mann. Þýð.
spiltir, þá hlyti það að vera af
því, að verkstjórarnir keyptu þá.
Þannig geturðu séð, að þeir vita
ekkert hvernig þeir eiga að snúa
sér.
Veðrið í dag.
Reykjavík, NV, hiti -=-2,4.
ísafjörður, Vantar.
Akureyri, SSA, hiti -r-3,0.
Seyðisfjörður, NV, hiti h-1,1.
Grímsstaðir, SV, hiti h-5,0.
Vestmannaeyjar, VSV, hiti -5-0,1*
Þórsh., Færeyjar, V, hiti 3,7.
Stóru stafirnir merkja áttina,
-í- þýðir frost.
Loftvog mjög lág, einna lægst
á Norðurlandi og norðaustan við
landið; vestlæg og norðvestlæg
átt; víða stormur; mjög óstöðugt
veður.
Auglýsingar.
Auglýsingum í blaðið er fyrst
um sinn veitt móttaka hjá Guð-
geir Jónssyni bókbindara, Lauga-
vegi 17 (bakhús). Sími 286 og á
afgreiðslunni á Laugavegi 18 b.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.