Alþýðublaðið - 13.02.1920, Qupperneq 2
2
ALPÝÐUBLAÐIÐ
Guðm. Ólafsson,
Hjörtur Snorrason.
Sjávarútvegsnefnd:
Björn Kristjánsson,
Sigurður H. Kvaran,
Karl Einarsson.
Mentamálanefnd:
Einar Árnason,
Guðm. Guðfinnsson,
Sigurður H. Kvaran.
' Allsherjarnefnd:
Jóh. Jóhannesson,
Halldór Steinsson,
Sigurjón Friðjónsson.
Frá Eng-landi.
Viðtal við Lúðvik Jónsson, sem
dvalið hefir 3Va ár í Engiandi.
Alþbl. "hefir átt tal við Lúðvík
Jónsson frá Árnaesi í Hornafirði,
sem dvalið hefir síðustu stríðsárin
í Englandi, og beðið hann að segja
Aiþbl. fróttir þaðan, einkum það,
hvaða áhrif honum hefði virzt
stríðið hafa á lífið í landinu. Lúð-
vík er búfræðingur, og er nú ráð-
inn hjá Búnaðarfélaginu. Hefir
hann dvalið erlendis samfleytt 8
árin síðustu, til þess að kynna
sér búfræði og búnaðarháttu. Dvaldi
hann fyrst í hálft fimta ár í Dan-
mörku, en síðan í 31/2 ár á ýms-
um stöðum í Englandi og Skot-
landi, og í haust ferðaðist hann
— með styrk frá Búnaðarfélag-
inu — um Svíþjóð og Noreg.
England fjrrir og eftir stríðið.
„Daglegt líf heflr breyzt mjög
mikið í Englandi þessi stríðsár",
segir Lúðvík Jónsson. „Fyrir stríð-
ið mun varla hafa verið nokkurt
mentaland, þar sem einstaklingur
fékk að ráða sér eins mikið sjálf-
ur, eins og í Englandi. Miðað við
fólksfjöída var iögreglan fámennari
iar, en í nokkru öðru landi, og
við það bættist, að hún mun
hvergi hafa verið jafn fáskiftin og
þar. Á sama hátt voru verksmiðju-
eígendur og aðrir framleiðendur
tiltölulega fáum reglugerðum undir-
orpnir. Fyrstu árin voru heldur
engar hömlur lagðar á menn. En
er fór að kreppa að Bretum, rak
hver reglugerðin frá stjórninni
aðra. Stjórnin tók verksmiðjur
undir sína stjórn, og allir urðu að
sitja og standa eins og stjórnin
vildi.
Bændurnir.
Bændurnir fóru ekki varhluta
af þessum reglugerðum. Fyrir
stríð var mikið af ágætu landi,
sem ekki var notað nema til gras-
ræktar. Skipaði stjórnin fyrir um
að svo og svo mikið af því skyldi
notað undir plóg, og varð það til
þess, að kornyrkja jókst mjög í
landinu. Stjórnin lagði til jarð-
yrkjuverkfæri, og lét plægja fyrir
bændur með stórum mótorplógum,
enda var mikil verkafólksekla.
En ekki býst eg við að þetta
hafl áhrif til langframa í korn-
rækt Breta. Þeir fá svo mikið fyrir
kvikfénað, að það borgar sig eins
vel fyrir þá að rækta gras eins og
að rækta korn, en umsvifin miklu
minni við hið fyrnefnda.
Góðir plógmenn höfðu fyrir
stríð 12 til 16 shilling á viku, en
nú 40 til 50 sh’, auk hlunninda.
Yerkamannafélögin enskn.
Verkam.félagsskapurinn enski
er, svo sem kunnugt er, mjög
öflugur. Óánægjan hefir verið mjög
rík meðal alþýðunnar núna eftir
stríðið, sem stafar að sumu leyti
af því, að hermönnunum var lof-
að öllu fögru, þegar þeir gengu í
stríðið, en stjórnin hefir ekki get-
að staðið við þau loforð.
Vinnutíminn er nú kominn
niður úr 8 tímum á dag. Hann
er 44 klukkutímar á viku, en
það er 8 tíma vinna fyrstu 5
virku dagana, en síðasta dag vik-
unnar er ekki unnið nema hálfan
daginn.
Verkalýðsfélögin eru öll í inn-
byrðis sambandi og styður eitt
annað, ef með þarf, í verkföllum,
enda virtist svo sem að verka-
menn ynnu hvert verkfall, er þeir
gerðu, en þau voru æði mörg um
tíma. Ekki var annað að sjá, en
að verkalýðurinn ætlaði sér að
taka smátt og smátt öll völdin i
sínar hendur, og virtist öðrum
stéttum standa stuggur af hinum
vaxandi áhrifum verkalýðsins, þar
eð þeir eigi sáu nein ráð til þess,
að stemma stigu við því“’
Brezk landbúnadarþekking °S
íslendingar.
„Álítið þér, að við íslendingar
getum lært mikið af landbúnaði
Breta?“
„Já, mjög mikið“, svarar Lúð-
vík. „Við getum lært mikið meira
af þeim en Dönum. Orsökin er
einkum sú, að landbúnaðurinn er
ekki margvíslegur í Danmörku, eD
það er hann í Bretlandi, sökunr
þess, hve staðhættir eru þar marg'
víslegir, en auk þess eru stað-
hættir sumstaðar mjög líkir °S
hér á íslandi, einkum í Skotlandi*
Á búnaðarskólum í Bretlandi,
t. d. skóla þeim, sem eg var á 1
Edinborg, er einnig kend land-
búnaðarþekking fyrir nýlendur
Breta, sem þá og er mjög marg'
vísleg, og fer þá jafnan svo, að
eitthvað getur átt við hér á landb
þó staðhættir séu að öðru leyW
mjög ólíkir.
Eg vil því eindregið ráða mönn-
um til þess, að leita búnaðarþekk'
ingar fremur til Bretlands en Dan-
merkur, og eg hygg að það verðt
svo á mörgum sviðum, að Þa^
verði heppilegra fyrir íslendinga>
að sækja mentun þangað, en tfl'
Dana, að minsta kosti meira 011
gert hefir verið.
Viðvíkjandi námskostnaði, þá 01
hann ekki meiri í Englandi en *
Danmörku, og þó einstaka mannt
kunni að finnast enskan erfið 1
fyrstu, þá er það aðeins í fyrstu“-
Um daginn og veginn.
Yeðrið í dag.
Beykjavík, N, hiti -5-6,1.
ísafjörður, Vantar.
Akureyri, NV, hiti -4-8,0.
Seyðisfjörður, NA, hiti 4-4,8»
Grímsstaðir, NA, hiti 4-10,0-
Vestmannaeyjar, NV, hiti 4-5 Ý''
Þórsh., Færeyjar, NNA, hiti 1>8'
Stóru staftrnir merkja áttina'
4- þýðir frost.
Loftvog hæst norðvestan VI
ísland, en lægs suðaustur ai Fser'
eyjum. Norðan og norðvestan
Nokkurt frost.
St. Shjaidbreið nr. 1x7 helduf
fund í kvöid kl. UpPtak*
nýrra, fálaga og systrakvöld.