Alþýðublaðið - 15.05.1926, Page 5
ALISÝÐUBLAÐID ~ ~ " 5
Leikfélan Beyldailtair.
Drettánda-kvold
eða hvað sem vill
verður leikið i kvöld klukkan 8.
Alþýðusýning.
Aðgðngumiðar”seldir C<3ag“kl. 10—1 og eftir 2.
Simi 12.
Leiktélag Reykjavikur.
Þrettánda - kvild
eða Itvað sem vill
verður leikið sunnudaginn 16. p. m. kl. 8 síðd.
Aðgöngumiðar seldir i dag frá klukkan 4 — 7
og á morgun frá klukkan 10 — 1 og eftir 2.
Sími 12.
víðaT Skjöl hafa fundist hjá for-
manni alþýzka flokksins, Class að
nafni, og sanna þau undirróður
Vilhjálms fyrr verandi keisara.
Flestir leiðtogarnir horfnir.
Khöfn, FB., 14. maí.
Hermannauppreist i Pöllandi.
Frá Varsjá er símað, að margar
lierdeildir hafi gert uppreist undir
stjórn Piludski hertoga í þeim til-
gangi að steypa (nýju bænda)-
stjórninni og hertaka höfuðstað-
inn. Ríkisstjórinn sendi áskorun til
hersins og krafðist löghlýðni af
honum og að hann kæmi í veg
fyrir borgarastríð. Áskorunin bar
engan árangúr. Samkvæmt siðustu
fregnunt er öllu sambandi við Var-
sjá slitið.
Khöfn, FB, 15. maí.
Ottast um Amundsen.
Frá'Nome er sírnað, að ekkert
loítskeytasamband hafi verið við
Joftskipið í 15 klukkustundir, og
hefir það ekki sést síðan frá Point
Barrow. Regn er um meiri part
Alaska og óveður í aðsigi, og eru
menn ailhræddir um afdrif skips-
ins.
Frá Danmerkurförunúm;
Fáskrúðsfirði, FB, 14. maí.
Danmerkurflokkur glimumanna
sýndi hér glimur og fimleika í
gærkveldi. Góð aðsókn. Undir-
tektir ágætar. Sýna i' kvöld á
Norðfirði.
Bystander.
Um dagÍEasi og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Ölafur Ounnarsson,
Laugavegi 16, sími 272, og aðra
nótt Daniel Fjeldsted, Laugavegi 38,
sími 1561.
Messur
á morgun: 1 dómkirkjunni kl. 11
séra Bjarni Jónsson, kl. 5 M. N.
Neiendam doktor í guðfræði, dönsk
messa. Messufall i fríkirkjunni af
sömu ástæðum og áður. í Landa-
kotskirkju kl. 9 f. m. liámessa, kl.
6 e. in. guðsþjónusta með predikun.
1 sjómannastofunni kl. 6 guðsþjón-
usta.
Söngur Jöhs. Fönss.
Leiðrétta þarf umsögn í Morgun-
blaðinu í dag um að miðasala á
söng hr. F. farl frapi í Nýja Bíó
eftir kl. 1 í dag. Þetta á áuðvitað
við sönginn og upplesturinn í Nýja
Bíó á morgun, sem verður kl. 4,
eins og sagt var hér í blaðinu í
gær. — Vegna lítils óhapps getur
ekki orðið af hljómleik þeim, er
Johs. Fönss óperusöngvari ætlkði að
Lalda í dómkirkjunni í kvöld. Upp-
lesturinn verður á morgun (sunnu-
dag) kl. 4 í Nýja Bíó.
Sextugur
verður á morgun Richard Torfa-
aon bankabókari.
Veðrið.
’Hiti mestur 9 st, minstur 5 st.
Átt yfirleitt suðvestlæg, fremur hæg.
Otlit: 1 dag útsunnanátt, skúrir á
Suður- og Vestur-landi, þurviðri á
Austurlandi. I nótt útsunnanátt.
Frikirkjan.
Gjaidkeri liennar, Ásm. Gestsson,
Laugavegi 2, mælist til þess, að
ógoldin gjöld séu greidd sem fyrst.
Gjalddagi var 1. mai Viðtalstími er
kl. 10—12 og 6-8.
Vegna alþingisfséttanna,
sem nú er séð fyrir endann á,
liefir margt setið á hakanum, og
verður úr því bætt eftir hólgína.