Alþýðublaðið - 01.06.1926, Blaðsíða 3
lýðsins, ef þeir væru fyrstir til, en
er sama, þó hún bitni á útlendingi,
sem fer héðan aftur»eftir stuttan
tíina. Sjálfum þeim notast því betur
að hagnaðinum á eftir.
Verkamenn! Hafið augun opin
fyrir því, sem er að gerast! Ég trúi
því illa, að þið látið danskt kúgun-
arvald kúska ykkur. Ætli nokkur
tryði því, að afkomendur íslenzku
bændanna, sem drektu hinum ill-
ræmda erlenda biskupi, Jóni Ger-
rekssýni, i Brúará, láti erlent gróða-
féiag traðka rétti sínum?
Verkamadur.
Saitiræini.
Bankastjórn Landsbankans bann-
aði Jóni Auðunni þingsetu og rak
hann frá stjórn útibúsins á ísáfirði
fyrir það, að hann bauð sig fram til
þings; Eiriki Ein'arssyni var hótað
þessu líka. Nú hefir sama banka-
stjórn skipað Sigurjón fyrir útibús-
stjóra á isafirði, -- af pvi ad hann
er alþingismaSnr(?).
Um diiteiiiiM <!§g vegfistM.
Næturlæknir
er í nótt Gunnlaugur Ejnarsson,
Stýrimannastíg 7, 'sími 1693..
„Ný Dagsbrún“, 3. tbl.,
er komin út með ýmsum fróðleik
og greinum fyrir almenning. Fæst á
Bergþórugötu 10 eins og áður.
Allsherjarmot í. S. í.
fer fram 17.-—22. þ. m. Þátttöku-
beiðnir séu ko.nnar til stjórnar ni'óts-
ins eigi siðar en 7. þ. m. Sjá nán-
ar í auglýsingu!
Bæjargjaldkerastarfið
á Isafirði hefir veriö veitt' Ing- ■
álfi Jónssyni lögfræðingi á Akur-
eyri, en aðstoðarmannsstarfið Jóni
M. Péturssyni frá Hafnardal.
Katrin Thoroddsen
læknir er sezt, að hér í bænum
!il að stunda lækningar.
Hættur veiðum
er önfirzki togarinn Hafsteinn, og
eru sunnlenzku Iiásetarnir, þeir, er
á honum voru, komnir heim. Hafa
hásetar af honum þá fregn að segja,
rð útgerðarmenn þess félags kveði
orsök stöðvunarinnar þá, að bank-
arnir hafi neitað félaginu um
reksturslán áfram í vor. Kemur 1 sú
frétt og ummæli bankastjóranna illa
heim hvort við annað, og er fróð-
legt. að vita, livort sannara reynist.
ALKÝÐUBLAÐID
Henry Erichsen
harmonikusniflingur. Uminæli um
bann í „Morgenbladet" í Osló: —
,Hljómleikarnir voru haldnir fyrir
fullu húsi með konungshjónunum í
Eremstu röð og hlutu dynjandi lófn-
tak. Hugur áheyrenda var með frá
byrjun, og hélzt svo alt kvöldið.
Konungssöngurinn hljómaði hátíð-
lega og glymjandi, og eftir honum
kom hin margbreyttasta og skemti-
’egasta skemtiskrá, sem hugsast
gat: Marsar, operuútdrættir, ou\er-
tuiur og potpourri, — alt fram borið
með tónvísi og leikni, seni hvað
eftir annað varð til þess, að hið
gamla samkomuhús lék á reiðiskjálfi
af fagnaðarlátum." — H. Erichsen
kom hingað í gærkveldi með ,,Lyru“
og heídur fyrstu hljómleika sína í
kvöld í Nýja Bíó, sem auglýst er í
blaðinu.
Sigvaldi Kaldalöns
læknir hefir verið settur íæknir i
Flatey á Breiðafirði frá þessum
mánaðamótum, en ungfrú Katrín
Thoroddsen hefir áður fengið lausn
frá embætiinu frá sarna tíma.
Tilraun til samningarofa.
Ósvifni mikla hafa atvinnurekend-
ir í Vestmannaeyjum sýnt verka-
snönnum þar. 1 gærdag gerðu þeir
tilraun til að lækka kaup þeirra og
brjóta þar- með samning þann, sern
gerður var í vetur. Sannast um þá
scm fyrr áleitni hinnar ráðandi
úéttar, þegar gróði er sjáanlegur i
aðra^ hönd. Hið lofsamlega einstak-
Singsframtak „dugnaðarmagianna"
hvílir á slíkum grundvelli.
Gengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund. . . . kr. 22,15
100 kr. danskar . . . — 119,86
100 kr. sænskar . . . - 122,14
100 kr. norskar . . . - 99,36
Dollar . - 4,568/4
100 frankar franskir. . ■. - 15,04
100 gyllini hollenzk . — 183,62
100 gullmörk þýzk. . - 108,47
Uin 220 flöskur af eli,
óinnsiglaðar, tóku tollgæzlumenn-
irnir í ■ land úr „Lýru; var lagt
• hald á það, og bíður málið rann-
sóknar.
Togararnir.
Ari kom af veiðum í morgun með
34 tunnur og Draupnir með 12. Afli
þessara togara var svo lítill vegna
oíviðra vestra, því aö bæði urðu
þeir lengi að halda alveg kyrru
fyrir og gátu heldur ekki af þeim
sökum verið á þeim stöðvum, sem
hinir höfðu fiskað á, heldur urðu
þeir að reyna þar, sem lítt er fisk-
afla vón um þetta leyti árs.
Sekt fyrir landhelgisbrot.
Þýzki togari'nn, sem „Þór“, tók
við lngólfshöfða, var dæmdur í
12 500 kr. sekt. Afli og veiðarfæri
gerð upptæk.
Taugaveikin á ísafirði.
Landlæknir fékk á laugardaginn
var svo felt skeyti frá Vihnundi
lækni: Sýktu heimilin innan bæjar
23 og sjúklingarnir 38. [Sjúklingun-
um hafði þá ekki fjölgað síðustu
tvo dagana a. m. k.J 32 hafa verið
fluttir í sjúkrahúsið, en 6 verið ein-
angraðir heima. Að eins einn virðist
nú hættulega veikur. Óttast ekki
mjög frekari útbreiðslu. — Land-
læknirinn kom hingað með „Lyru“.
Kveðst hann alt af hafa vonað, að
úr veikinni myndi draga upp úr
mánaðamótunum.
Sláttur
Byrjaði í maí hér í Reykjavjk.
í gær var sleginn bletturinn hjá
Góðtemplarahúsinu.
Karl Bergstrom,
ritstjóri jafnaðarmannablaðsins
„Skánska Social-Demokraten" í Hbl-
kingborg í Svíþjóð, kom með „Lyru“
í gærkveldi í kynnisför til tengda-
fólks síns hér í Nesi. — Enn frem-
ur komu meðal annara með skip-
inu Jón Leifs og kona hans og
hljómsveitin þýzka.
Lik frú Gyðu Þorvaldsdðttur
verður flutt hingað frá Kaup-
mannahöfn.
Veðrið.
Hiti 9 ~2 stig. Átt víðast. aust-
læg hæg. Loftvægislægð fyrir suð-
austan land. Útlit fyrir hægviðri,
skúrir sunnan lands og dálitla úr-
komu á Norður- og Austur-landi.
„Barnið, bök handa möðurinni,“
heitir nýútkomin bók eftir Da-
jíð Scheving Thorsteinsson lækni og
fræðir um meðferð ungbarna. Bókin
er með 64 myndum. Útgefandi er
Steindór Gunnarsson prentsmiðju-
Ajóri. (
Gæt stöðunnar!
Meðan Kristján Bergsson er for-
seti Fiskifélagsins, verður að telja
ósæmilegt að hann noti saurblaðið
„Storm" til að ávarpa sjómennina
þaðan.
„Siðabötin“.
Þegar Kristján Albertsson cand.
phil. tók við ritstjórn íhaldsblaðs-
ins „Varðar'1, tók hann sér fyrir
hendur vandlætingar um íslenzka
blaðamensku. Síðan kemur athugul-
um blaðalesendum saman um, að
ritháttur íhaldsblaðanna hefir versn-
að að mun; saurblaðið „Stormur"
verði æ meir fyrirmynd þeirra. Nú
kórónar ritstjóri „Varðar'' þessa
„siðabótar“-starfsemi sína með þvi að
flytja heljarlanga grein, sem er ekk-
ert annað en útúrsnúningar út úr
einhverri skemtilegast rituðu al-
þýðukenslubókinni, íslandssögu Jón-
asar Jónssonar, góð og gild orðtök
úr íslenzku alþýðumáli hártoguð sví-
virðilega. Þetta er siðábót Krist-
jáns Albertssonar.