Alþýðublaðið - 20.02.1920, Page 3
3
Ritarar voru kosnir Þorvarður
Þorvarðarson og Pétur Halldórss.
Hlntkesti fór fram um það á
bæjarstjórnarfundi í gær, hver
fulltrúanna af þeim sem síðast
voru kosnir, skyldi fara úr bæjar-
stjórn eftir tvö ár, og kom upp
Wutur frú Jónínu Jónatansdóttir.
Pétur Lárusson dró.
Euginn inflúenznsjúklingnr.
Enginn hefir sýkst hér enn þá af
inflúenzu, sagði héraðslæknir f dag
kl 12, og útlit er fyrir að engin
inflúenza sé í bænum.
Veðrið í dag.
Reykjavík, SSV, hiti 0,9.
ísafjörður, VSV, hiti 0,7.
Akureyri, S, hiti 2,0.
Seyðisfjörður, SV, hiti 0,7.
Grrímsstaðir, SV, hiti 3,0.
Vestmannaeyjar, vantar. Þórsh., Færeyjar, logn, hiti 0,8.
Stóru stafirnir merkja áttina,
-s- þýðir frost.
Loftvog lægst norBur af Vest-
fjðröum, suövestlæg átt, frostlaust.
Ofl>el<li
Sjálfstjórnarliðsins.
Meíra en þriðjungur bæjar-
fulltrúanna sviftur atkvæðis-
rótti um nefndarkosningar.
1 gærkvðldi var fyrsti reglulegi
bæjarstjórnarfundurinn, sem hinir
nýkosnu fulltrúar tóku sæti á. Pá
er jafnan kosiö i allar fastar
nefndir í bæjarstjórn, svo sem
fasteignanefnd, fjárhagsnefnd o.s.frv
og var þaö, meöal annars, á dag-
skrá í gær.
Undanfarið hefir það verið venja
borgarstjóra að kalla fulltrúana
saman og ræða um þessar nefud-
arkosningar og hvaða mann eða
menn af hvorum flokki skyldi
velja í þá og þá nefndina.
Alþýðuflokksfulltrúarnir í bæjar-
stjórn (sem nú eru 6, eins og
áður, en 15 eru íulltrúarnir alls,
auk borgarstjóra), höfðu haft við-
talsfundi sín á meðal um það, í
hvaða nefndir þeir vildu fá menn
og hverja. Og þar sem þeir eru
meira «n þriðjungur bæjarstjómar
áttu þeir skylyrðislausan rétt á að
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
hafa 1 mann af sínum flokki í
hverri 3 manna nefnd.
Var sendur maður á fund Knúts
borgarstjóra til að fregna hvort
undirbúningsfundur yrði um nefnd-
arkosningarnar. En borgarstjórinn,
með blessaða einlægnina, sagði,
að það þýddi ekki að hafa neitt
samkomulag, það yrði ekki haldið/
Meira var ekki úr honum að hafa.
En það kom seinna.
Þegar búið var að kjósa forseta
á fundinn i gær, var farið fram
á það af Alþýðuflokksmönnum, að
hlutfallskosning yrði höfð við
nefndakosningar. Var það borið
undir fundinn og felt. Var þá sýnt
hvað í vændum var.
Sjálfstjórnarhöfðingjarnir höfðu
sem sé komið sér saman um, að
þeirra menn skyldu vera í öllum
meiriháttar nefndum, og enginn
hinna komast í nokkra nefnd,
nema eftir því sem Sjálfstjórnar-
höfðingjarnir höfðu áður gert sam-
þykt um.
Nú er það kunnugt, að mestu
ræður um úrslit mála starf hinna
ýmsu nefnda, og nú nota Sjálf-
stjórnarherrarnir meirihluta vald
sitt til þess, að útiloka áhrif A3-
þýðuflokksfulltrúanna á málin í
nefndunum, og þar með útiloka
heilar stéttir í bænum frá nokkr-
um áhrifum á bæjarmál.
Sjálfstjórnarhöfðingjunum hefir
gramist það, að Alþýðuflokksfull-
trúarnir hafa getað hindrað nokk-
uð af braski þeirra með eignir
bæjarins, t. d. þegar átti að fleygja
í stórkaupmennina hafnarlóðunum.
Nú ætla þeir að fá að vera í
friði og geta braskað með eignir
bæjarins eftir vild.
Nú geta þeir í nefndunum und-
irbúið svo málin, að ekkert vitnist
fyr en að bæjarstjórnarfundum
kemur, og fengið þar samþyktir
fyrir gerræðum sínum.
Það voru þeir Sveinn og Knútur,
sem gengust fyrir því, að svifta
ranglega mörg hundruð bæjarbúa
atkvæðisrétti við næstsiðustu bæj-
arstjórnarkosningar.
Skömmu síðar kom fram til-
laga um sölu haínarlóðanna.
Nú hafa þeir ranglega og með
*) Hann mun hafa átt við það,
að í fyrra vildu tveir Sjálfstjórnar-
höfðingjarnir komast í hafnarnefnd,
en ekki rúm nema fyrir annan,
og sviku þeir þá hvor annan á víxl.
ofbeldi svift meira en þriðjung
bæjarfulltrúanna atkvæði um þaÖ,
hverjir eigi að búa mál undir sam-
þyktir í bæjarstjórn.
Hvað skyldi koma næst?
Alþingi.
(í gær.)
Sameinað þing.
Kosning Jakobs Mðller.
Form. kjörbréfanefndar, Gísli
Sveinsson, lagði til að kjörbréf
J. M. væru tekin gild, samþ. m.
öll. gr. atkv.
Nedri deild.
1. mál var frumvarp til laga
um breytingu á iögum n. 28, 3.
nóv. 1915 um kosningar til Al-
þingis. (2. umr.).
Frumvarpið, sem aðeins var til-
komið til að samræma kosninga-
lögin hinni nýju stjórnarskrá, var
samþ. með lítilsháttar breytingum
frá stjórnarskrárnefndinni. Málinu
vísað til 3. umræðu.
2. mál var frv. til laga um
breyting á lögum nr. 64, 14. nóvbr.
1917 um laun hreppstjóra og
aukatekjur m. m. Form. fjárveit-
ingan., M. Pét., lagði til fyrir
hönd nefndarinnar, að frumvarpið
væri samþ. án breytinga. (Efni
frv. var það, að hreppstjórar
njóti samskonar launauppbótar sem
embættis- og sýslunarmenn lands-
ins samkvæmt 33. gr. launalag-
anna). Hákon Kristófersson and-
mælti frumvarpinu, og áleit, að
ekki bæri að taka hreppstjóra
eina undan og bæta laun þeirra,
þvf fleiri embættismenn mættu þá
fylgjast með. (Auk framsm. töl-
uðu P. Ott., Þorl. Jónsson, Þór-
arinn Jónsson, Gísli Sveinsson,
Björn Hallsson, Pétur Jónsson,
forsætisr., Jón A. Jónsson.) Ekki
gat þessi Gísli Sveinsson látið hjá
Jíða, að gefa strák sínutn lansan
tauminn og ausa sér yfir alþýðu
með hinni venjuiegu ósvífni, sem
allir Reyicvíkingar kannast við.
Frumvarpið var samþ. í e. hl.
Vísað til 3. umr.
3. mál var tillaga til þingsá-
lyktunar um að skora á stjórnina
að láta sömu reglur gilda um út-
borgun á launum presta og ann-
ara embættismanna rfkisins, Flutn-