Alþýðublaðið - 20.02.1920, Blaðsíða 4
4
A.LÞÝÐUBLAÐIÐ
I. O. G. T.
Sökum ÍDÍlúenzub.ættuniiar verður Utlld»emÍsþÍllgÍHU,
sem halda átti 22. þ. m. í Hafnarfirði, frestaO.
Reykjavík 19. febr. 1920.
Signrbjðrn Á. Gíslason, (ruðgeir Jónsson,
u. æ. t. u. r.
ingsm. Sig. Stefánsson. Auk frum-
mælanda talaði forsætisráðherra,
sem gat þess, að biskup hefði
vakið eftirtekt stjórnarinnar á
þessu. Þingsáiyktunartillagan samþ.
í e. hl.
4. mál var frumvarp til laga
um löggiidingu verzluaarstaðar í
Valþjófsdal í Mosvallahrepp í V.-
ísafjarðarsýslu. Flutningsm. Ói.
Proppé. Samþ. að vísa málinu til
2. umræðu.
5. mál. Frumvaip til laga um
breytingu á íögum nr. 45, 16.
nóv. 1907 um skipun prestakalla.
Flutningsm. Bjarni Jónsson. Málið
er þannig tilkomið, að sóknarmenn
í Hjarðarhoitssókn vestra eru óá-
nsegðir með það, að sókn þeirra
Jeggist undir aðra sókn.
Samþ. að vísa málisu til 2. um-
ræðu og allsherjarnefndar.
6. mál var frumvarp tii laga
um breytingar á lögum nr. 34,
ió. nóv. 1907 um skipun læknis-
héraða o. fl. Efni frumvarpsins er
það, að Hróarstuaguhéraði eystra
skuli skift í 2 læknishéruð. Flutn-
ingsm. Björn Hallsson og Þorst.
M. Jónsson, sem báðir töluðu fyrir
frumvarpinu. Talaði einkum hinn
síðarnefndi af svo mikilli mælsku,
að stytta Magnúsar Stephensens
viknaði. Auk framsm. töluðu Stef.
Stef., Magn. Pétursson, atvinnu-
málaráðherra, Pétur Jónsson og
Eiríkur Einarssoa.
Samþ. að vísa máliau til 2. umr.
Og allsherjarnefndar. H.
Xoli konungnr.
Eftír Upton Sinclair.
Önnur bók:
Prœlar Kola konungs.
(Frh.).
En nú gat þetta kannske hjálp-
að upp á sakirnar. Á þessu gat
Mary fengið áhuga, hér gat hún
gefid tiifinningum sfnum iausan
tauminn. Auðvitað gat kona ekki
tekið þátt f sendinefnd kolaverka-
manna, en hún gat verið góður
ráðgjafi, og hvassyrði hennar gátu
rekið aðra f hópinn og haldið
þeim þar. Vegna þess, hve Hallur
var sokkinn niður í þetta áform,
hugsaði hann eins og körlum er
títt ekki um persónurnar — og
gekk á þann hátt í nýja snörul
Houum kom það ekki i hug, að
áhugi Maryar var því skilyrði
bundið, að hún óskaði að sjá dá-
lítið meira til hans; og þvf síður
hugkvæmdist honum, að hann var
sjalfur feginn að fá þannig átyllu
til að hitta Mary aftur.
Hann dróg að eins upp af
henni mynd i nýju hlutverki, sem
var þýðingarmeira, en það, að
þvo gólf, búa til mat, og gæta
barna. ímyndun hans tók á rás,
hann hafði henui að færa, bæði
von og takmark og starfsvið fyrir
orku hennar. Voru það ekki ein-
mitt konur, sem stóðu fyrir öllurn
stórum byltingahræringum?
Hann fór heim til hennar og
hitti hana utan dyra. „Það var
þó svei mér gaman að sjá þig,
Joe Smith", sagði hún.
„Sama get eg sagt við þig,
Mary Burke", sagði Hallur.
Hann sá, að hún var í góöu
skapi. Hún skyldi verða góði En
hún var dálítið fölari en seínast
þegar hann sá hana. Gat það
verið, að hinn frægi írski yfirlitur
gæti horfið? Honum fanst hún
líka grenri í bláa bómullarkjóinum.
Hallur braut strax upp á efn-
inu. „Eg hefi í dag séð þig í sýn,
Mary".
»Mig! Hvers konar sýn var ]
það?“
Hann hió. „Eg sá andlit þitt
Ijóma af eldmóði og hárið Iýsa á
höfði þér eins og gullkórónu. Þú
sast á fannhvítum fáki, klædd ;
hvítum kjóli, mjúk og Ijómandi
eins og Jeanne d’Arc eða for-
gengill kosningaskrúðgöngu —
þú reiðst í broddi herfylkingar—
hljómarnir kveða enn þá við í
eyrum mér, Mary“.
„Æ, hættu — hvað á þetta að
þýða?“
„Komdu, við skulum fara ínn,
þá skal eg segja þér það", sagði
hann. Þau fóru inn f eyðilega,
litla eldhúsið og settust á trcstól-
sér, eins og krakki, sem biður
eftir að heyra æfintýr.
„Svona, Joe, segðu mér frá
nýja kjólnum, sem þú hefir fært
mig f. Ertu orðinn leiður á gamla,
bláa bómulíarkjólnmn ?“
Hann endurgalt bros heiinar.
„Það er kjóll, sem þú átt sjálf að
vefa þér, Mary, úr ífngerðustu
þráðunum í eðli þinu — úr hug-
rekki þínu, góðvild og sjálfsfórnar-
anda þínum".
„Eg vissi að það var æfintýri!
En hvað áttu eiginlega við méð
þvf?“
Hann íeit í kring um sig. „Er
hér nokkur annar?“
„Nei engínn".
Ef einhver hefir efast.
Ef einhver hefir efast um, að
árásir Vísis á Jón Magnússon
forsæíisráðherra væru af persónu-
legu hatri sprottnar, þá ætti sá
að lesa vmídlega grein í Vísi í
gær um myndun nýrrar stjórnar.
Getur það verið giftusamíegt
að siíga fyrstu sporiii inn í þing-
salinn, með siíkum svívirðingar-
árásum.
Og þetta leyfir sér sá maður,
er gabbaði síðasta þing með máls-
höfðunarbesðnt sinni á hendur Jóni
Magnússyni.
XX. :■
Vfða blæðir.
Lands um svæði lítið græðist
næði, —
víða blæðir ennþá æð
eftir hræðiélin skæð.
J.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: '
Ölafar Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.