Alþýðublaðið - 21.02.1920, Page 1
aðið
Greíið lít af Alþýðuílokknum.
1920
99 lleiniþrá w
þixigmanna.
^l'u þingmenn á Alþingi fyrir sig,
eða fyrir landið i heild?
Oft er kvartaS yfir því, hve Al-
Mngi
standi iengi, og er þaS að
v°hum, þegar oft er þar lítið gert
| annaS en að masa, algerlega að
‘Jarfleysu, um hreppapólitík og
Aéraðakrit, kryddaðan eiginhags-
*nunagjálfri og þá jafnframt per-
sónulegum skömmum, bæði um
^'ugmenn innbirðis og jafnvel um
^^un utan þings, sem á engan
hátt geta borið hönd fyrir höfuð
sér.
í*rátt fyrir það, þó mörgum þyki
í’iugin leug — aðallega þó vegna
i>ess, hve lítið er gert þar þarf-
íegt — þá er ætíð fyrsta verk
ukkar ágætu þingmanna að stæla
u»i það, leynt og ijóst, hvenær
beir eigi að fara heim!! Eins og
frað eigi að vera aðail erindi þeirra
a Þing, að deila um það, að kom-
ast þaðan sem fyrst aftur ? Yissu-
leSa ekki. Slíkt er algert auka
at|'iði. Og ættu þingmenn að sjá
sónaa sinn í því, að nota ekki það
keyri á sjálfa síg, tjl þess að
starfa fijótt, en illa, áAlþingi voru.
^að er ekki alt undir þvi komið,
að þeir háu herrar hraði svo mál-
uui, að ajbrigði frá þingsköpum
Verði að reglu. Þeir verða að gæta
^ess, að þeir eru elcki komnir á
AlMng þeirra vegna, heldur iil
Þess, að ráða fram úr málum
Þióðarinnar í heild. Ef hagsmunir
sJálfra þeirra koma í bága við
b'ögstörfin, þá hefðu þeir betur
ðeima setið og aldrei til þings
k°nnð. Þeim hefði betur hent. að
SltJa heima á búrkistunni hjá
»Uióu“ og naga neglur sínar.
Ankaþing það, sem nú situr hér
1 bæ, var aðallega kvatt saman
^1 bess að afgreiða stjómarskrána
°g korna sér saman um stjórnar-
Uiyndim, Hvorugu hefir það lokið
Laugardaginn 21. febrúar
enn. Að minsta kosti virðist
stjórnarmyndunin ætla að standa
all óþyrmilega í kverkum þess.
Vonandi rætist samt á einhvern
hátt fram úr þessu, þó ekki verði
á annan hátt en þann, að „heim-
þrá" þingmannauna, sem kvað
vera óvenju mikil í þetta sinn,
valdi því að lokum, að þeir komi
sér saman, bara svo þeir geti
sloppið heim!
Heim vil ek! segja þeir háu
herrar. Hvað gerir svo sem til,
þó hin nýmyndaða stjórn hafi
ekkert til þess að styðjast við frá
þingsins hendi, á því í hönd far-
andi ári, sem þó margir hyggja
að verða muni hið erfiðasta? Það
væri líka vafalaust bezt, alls vegna,
að hún mætti hafa sem óbundn-
astar hendur. Að hún væri ekki
bundin í báða skó af miður heppi-
legum fyrirmælum, sem í flaustri
væru gefin.
Eu það eru fleiri mál, sem
liggja fyrir þinginu, svo sem
fjölgun þingmanna Reykjavíkur,
sem óhjákvœmilega verður að
hafa framgang nú, að ógleymdum
fossamálunum, sem líklega væri
happadrýgst, fyrir núverandi þing-
menn að minsta kosti, að tala
sem minst um; en sem þeir lík-
lega neyðast þó til að reka enda-
hnút á, fyr eða síðar.
Þingmönnunum ber skylda til
þess, að starfa vel og vandlega
að þeim málum öllum, sem fyrir
þingið koma, og þeir ættu að vera
vaxnir upp úr þeim óvana, að
vera altaf að jagast um heim-
ferðina.
Þeir ættu ekki að hafa það fyrir
sið, að vera altaf að horfa á klukk-
una meðan þeir eru að vinnu,
eins og latur strákur, sem þráir’
það mest allra hluta að komast
heim 1 bælið til þess að sofa.
Kvásir.
40. tölubl.
ÍDanm&rM og þjééa-
Banöalagié.
Khöfn 19. febr.
Allir fiokkar [í danska þinginu]
eru því fylgjandi, að Danir gangi
f [þjóðabandaiagið. Þó þeir finni
á því ýmsa galla, eru kostirnir þó
stærri, og þá ekki sízt sá, að ekki
er hægt að heimta hernaðartil-
kostnað af smáríkjunum.
Jk. lþingi.
(1 gær.)
I’ingmaimaíjSlgunin í n. d.
Annað mál á dagskrá í n. d.
var fjölgun þingmanna í Reykjavik.
Stjórnin hafði í frumvarpi sínu
lagt til að þeim yrði fjölgað úr 2
upp í ,6, sem kosnir væru hlut-
fallskosningu. Stjórnarskrárnefndin
(Sig. Stef., Þór. Jónss., Sv. Bj.,
Þorl. J., Stef. Stef., J. Sig., P. Ott.)
hafði, að undanteknum Sv. Bj.,
fallist á þá breytingartillögu, að
þingm. Rvíkur yrðu 4. Bjami frá
Yogi bar fram þá br.tillögu, að
þeir yrðu 6, en jafnframt yrði bætt
við 1 þm. fyrir Hafnarfj., 1 fyrir
Stokkseyri og Eyrarbakka, 1 fyrir
Snæfells- og Iínappadalss. og 1 fyrir
Barðastr. Sveinn Björnsson bar
fram br.till. þess efnis, að þingm.
Rvíkur skyldu vera 6, og varatill.
um að þeir skyldu vera 5.
Umræður urðu talsverðar og
tóku til máls: Þór. Jónss. (tvisvar),
forsætisráðherra, Sveinn Björnsson
(þrisvar), Bjarni Jónsson (tvisvar),
Sveinn Ólafsson (tvisvar), Jakob
Möller (tvisvar) og Pétur Jónsson
(tvisvar). Tillögur stj skr.nefndar
(uni' 4 þ. m.) voru sainþyktar.
(Br.till. B. fr. Y. voru feldar með
15 atkv. gegn 6, aðal br.till. Sv.
Bj. var feld með 19 gegn 3, og
varatill. með 19 gegn 5, að við-
höfðu nafnakalli. Já sögðu: Bjarni