Alþýðublaðið - 25.09.1926, Qupperneq 1
Alpýðublaðið
Gefið úf af Alpýðuflokknum
1926.
Laugardaginn 25. september.
223. tölublað.
Gagnfræðakensla.
Þeir, sem enn kynnu að 'hafa í hyggju að njóta gagnfræðakenslu hjá
okkur í vetur, gefi sig hið bráðasta fram við annanhvorn okkar.
Ouðter. Jónsson, Sigfús Sigurhlartarssoir.
Lindargcitu 20 B. Freyjugöíu 10. Simi 1117.
Gengið og kosningarnar.
„Mgbl.“ hefir nú í bili hætt að
mæla með landskjörspingmanns-
efni Framsóknar-fiokksins, er Al-
þýðufiokkurinn styður gegn íhald-
inu, við alþýðu hér í bænum á
þann hátt, að hann boði „ómeng-
aða jafnaðarstefnu". Nú hefir það
tekið upp það ráð að sýna með
greinarkafla eftir Jónas Jónsson,
hvérsu ægilegar eru afleiðingar
af gengisfaili islenzkra peninga.
Ætti það ekki heldur að fæla al-
þýðu og aðra, sem andstæðir eru
gengisfalii, frá því að styðja sam-
fyikingu stjórnarandsta:- inga gegn
íhaldinu.
Raunar á þessi grein „Mgbl.“ að
sýna fram á hættu fyrir gengis-
hækkunarmáiið af samíylkingunni,
en það tekst þá svona höndulega,
enda er ekki von á betra, því að
undir niðri veit blaðið'það, sem
allir vita, að íhaldinu er ekki
trúandi fyrir gengismáiinu. Á síð-
asta ári var unt að koma íslenzkri
krónu upp í gullgengi, en íhaldið
spyrnli gegn því, enda eru þeir,
sem ráða íhaldsflokknum, stórat-
vinnurekendurnir, mjög andstæðir
gengisbækkun. Nú hefir óstjórn
íhaldsins á atvinnuvegum og við-
skiftum ónýtt þennan möguleika
og þannig framið. „stýfingu" í
verki.
Af þessu er það bert, að gengis-
málinu er ekki borgið í höndum
/íhaldsins. Ráöið til að sporna við
iækkun peninganna og styöja að
hækkun er aö efla áhrif Alþýðu-
flokksins á stjórnmálin. „Stýf-
ingu“ í lögum eða, verki verður
ekki komið fram, eins og flokka-
afstaða þingsins er nú, ef vald
íhaidsins, stóratvinnurékend nna,
er veikt, og því meiri sem áhrif
alþýðu á stjórnmálastarfsemi
Framsóknarflokksins verðá, þvi
minna gætir þar áhrifa hinna
stærri atvinnurekenda.
„Mgbi.“ hefir enn gert andstæð-
ingum sínum greiða með klaufa-
skap sínum. Nú sjá allir, að einn-
ig. vegna gengismálsins ber að
styðja samfylkinguna gegn íhald-
inu.
Eriend sínssskejtS.
Khöfn, FB., 24. sept.
Nýr heimsmeistari í hnefaleik.
Frá Philadeiphiu er símað, að
Jack Dempsey, hnefaleikakóngur
heimsins, liafi varið þar í gær
titil sinn fyrir hnefaleikamannin-
um Gene Tunney. Tunney vann
sigur og þar með heimsmeistára-
titilinn í þessari íþrótt. Dempsey
átti að fá 450 000 dollara'fyrir að
verja titilinn.
Af vopnunarmálið.
Frá Genf er símað, að afvopn-
unarnefnd Þjöðabándalagsins hafi
hra að undirbúningsstöríum undir
hina fyrirhuguðu afvopnunarráð-
stefnu, svo að hægt verði að
halda liana áöur en næsta þing
Þjóðabandalagsins kemur sáman,
en það er í september næst kom-
andi.
Jámbrautarslys.
Frá París er símað, að hraðiest-
in, sem fer á milli Lyon og París-
ar, liafi týnt aftan úr sér þremur
vögnum, og rakst næsta lest á
eftir á þá. Níu menn biðu bana,
en tuttugu. og sjö særðust.
Kolaverzlunin.
Sigurður Runólfsson kolakaup-
maður hefir í dag skýrt Alþbl. frá,
aö hann liafi enn kol til Sölu. Eihn-
ig mun eitthvað vera til af kolum,
sem höfnin á.
Innlend tíðiradi.
fsafirði, FB., 25. sept.
Tið og veiðar.
1 nótt snjóaði svq, að festi til
sjávar. Úrkomulaust í dag, en all-
þungur snjór. Síldveiði er mikil
í reknet á Steingrímsfirði, og
nokkrir bátar héðan stunda þar
veicar með góðum árangri. Þois’t-
veiði er þar einnig ágæt. Afla-
og gæfta-leysi við Djúp.
Kjötverð.
Slátrun er byrjuð, og, er kjöt-
verð kr. 0,90—1,00 hvert kg.
Skipafréttir
„Gullfoss“ kom í morgun frá út-
löndum og Austfiörðum. „Nonni“
(ekki þó strandvarnaskip) kom eirin-
ig í rnorgun. Fisktökuskip, „Kongs-
havn“, kom í gær úr Hafnarfirði,
feririt af fiski til útflutnings, og
fór bráðlega héðan aftur útári.
„Kakali" kom af síldveiðum i fyrra-
kvöld.
Framboðin í Reykjavík.
Framboðsfrestur til alþingjs við
kjördæmakosr.ingarnar er útrUnninn,
og ’hafa að eins komið frain þeir
tveir listar, . er áþur er frá sagt,
alþýðulisti og íhaldslisti. Þeir
„frjáislyndu" gáfust upp við að hafa
inenn í kjöri hér.
Á morgun
éru 765 á!r frá fæðingu. Guðmund-
ar góða, Hólabiskups, að pví er
sumir fræði i.enn telja, ea aðrir aMiu
hanp hafa fæðst árið áður. Guð-
mundur var, svo seni kunnugt: er,
viriur og verndari smælingja, svo
sem honum var framast unt.
Alþýðublaðið
er sex síður í dag.