Alþýðublaðið - 28.02.1920, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLA.ÐIÐ
Xoli konsmpr.
Verkamannafél. Dagsbrún
heldur fund í G.-T.-húsinu laugardaginn 28. febrúar
kl. 8. síðdegis. — Mjög mikilsvaröandi mál á dagskrá.
Félagar beðnir að fjölmenna.
Félagsstjórnin.
Iftir Upton Sinclair.
Öanur bók:
Prœlar Kola konungs.
(Frh.).
„Kosningarnarr“
„Vissir þú ekki, að fram eiga
að fara kosningar? Þingmaðurinn
fyrir kjördæmið er áauður og eftir
þrjár vikur eiga hér að fara fram
aukakosningar. Hefurðu ekki heyrt
minst á það?“
„Ekki einu orði. Eg skifti mér
ekkert af stjórnmálum. Mér kem-
ur siikt ekki vitund við".
„Einmitt, þar líkar mér vel við
þig“. sagði verkstjórinn ánægður.
„Ef þeir hefðu ailir vit á að láta
stjórnrnálamennina um stjórnmálin
þá myndu þeir fljótt fá bætt kjör
sín. Þeir ættu bara að gæta sinna
verka, segi eg sattl"
„Já“, sagði Hailur mjúkmáil,
„eins og eg gætti asnanna minna,
til þess að þeir dræpu mig ekki“.
Verkstjórinn hló samþykkjandi.
„Þú ert greindari en flestir þeirra.
Ef þú ert á bandi verkstjóra þíns,
er mögulegt, að þú komist áfram
í heimi hér“.
„Þakka yður fyrir, herra Stone",
sagði Hallur. „Gefið mér bara
tækifæri".
„Sko nú til, það eru þessar
fjandans kosningar. Á hverju ári
fáum við nokkurt fé til kosninga-
bardagans, og við verkstjórarnir
ráðum yfir þv/. Eitthvað af því
hrykki kannske ofan í vasa þinn,
ef eg kæmist að raun um að þú
gætir hugsað ofurlátið".
„Eg játa það, að eg hefði þörf
fyrir þá“, sagði Hallur fjörlega.
„Hvað á'eg að gera?"
„Fyrst áttu að leita dálítið fyrir
þér, heyra, hvað inenn segja. Eg
hefi vaiið þig, í stað þeirra, sem
eg nota vanalega, vegna þess að
enginn mun gruna þig. Ráfaðu
um og reyndu að grensiast eftir,
hvort menn Mac Dongalls, hafa
hafið nokkurn undirróður hér í
héraðinu, og hvort þeir hafa hér
umboösmenn. Þeir haida því fram,
að þeir hafi rétt til þess að koma
hingað og halda ræður og annað
þess háttar. Og lögin eru á þeirra
bandi, á sinn hátt, svo að ef við
útilokum þá, hefja þeir mesta
gauragang í blöðunum, og slíkt
Til sölu lítið notuð „togara"-
stfgvél. Tækifærisverð. Til sýnis
á afgr. Alþbl.
I. O. Gr. T.
Ht. Mínerva
heldnr fund í kvöld á
venjulegum stað og stundu.
Mætið stundvíslega.
Æ. T.
íhermos-flBskar
sem halda heitu í 24 tíma.
Kosta aðeins 4,65 í verzl.
Símonar lónssonar,
Laugaveg 12. Simi 221.
Kaupið
Fæst hjá
Gudgeiri Jónssyni.
lítur ekki sem bezt út. Svo við
verðutn að komast á undan þeim
f kyrþei. Til allrar hamingju er
ekkert samkomuhús hér, sem hægt
er að tala í, og við höfum bann-
að götufundi. Ef þeir reyna að
koma flugritum hicgað, þá hverfa
þau, þú skilur, áður en þeitn
verður útbýtt".
„Jú, jú“, sagði Hallur; hann
hugsaði um hvatningarit Toms
Olsons.
„Við viljum gjarnan vita, hvar
okkar menn er að finna, og
hvernig þeir kjósa. Nú segjum við
þeim, að það séu lýðveldismenn,
sem félagið vill láta kjósa, og þú
gætir svo að, hvernig þessu verð-
ur tekið í héraðinu".
Sitt hvað úr
sambandsríkinu.
Ósvííinn þjófnr.
í júnímánuði síöastl. kom uogur
Norðmaður F. E. Hendriksen til
Khafnar og tók sér gistingu a
Hotel Cosmopoiite. Hann tók
strax að seilast eftir peningum
nágranna sinna Hann stai þaf
samtals 1700 krónurn. Frá þessu
gistihúsi flutti hann til „Palads‘‘»
enda gekk honum betur þar. f’ar
stal hann 3400 kr. í peningum og
gimsteinahring, sem metinn er a
7000 krónur. Ekki undi hann sér
lengi á „Palads", en hélt til Át'
ósa og sóaði öllum peningunum
og fór svo til Hafnar afíur. Hatin
beindi þá ailri athygli sinnt
Hotel d’Angelterre. Dag einn tók
hann eftir því, að gestur sá, setO
bjó á herbergi nr. 119 fór út.
Hann beið nokkra stund, en gekk
svo inn og barði að dyrrnn or’
1x9. Þegar enginn ansaði, greip
hann lykil úr næstu dyrum, opa'
aði herbergið með honum
gekk inn. Þegar hann hafði aí'
hugað sig þar inni nokkra stunó>
heytði hann mannamál, en hanu
var ekki af baki dottinn, skrei^
undir rúmið og faldi sig. Þar varð
hann að kúra í 2 tírna, því tnað-
ur var í íylgd með leigjanda her'
bergisins og þurftu þeir eitthvað
að spjalla saman. Loks íór gest'
urinn, en þá tók ekki betra við»
því ábreiðan var tekin af rúmi»u
og Hendriksen fanst. Samt gat
hann sloppið, en það var skamu1'
vinm ánægja, því daginn eítir va?
hann handtekinn á Hotel Cosm0'
polite, þar sem hann aftur haÖ<
fengið sér leigt herbergi. +
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.