Alþýðublaðið - 08.10.1926, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
I ILÞÝÐUELABIB |
í kcntur út á hverjum virkum degi.. <
3 ........ —1 - - <
J Aigreiðsla í Alpýðuhúsinu við J
j Hverfisgötu 8 opin frá kl, 9 ctrú. j
j til kl. 7 siðd. J
j Síirifstofa á sania stað opin kl. j
j 91/2—IO' , árd. og kl. 8 — 9 siðd. j
j Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 j
1 (skrifstofan). J
; VerðTag: Áskriftarverð kr. 1,00 á j
! mánuði. AugJýsingaverð kr. 0,15 1
; hver mm. eindálka. <
j Prentsiniðja: Alpýðuprentsiniðjan j
Engiiiu kaim íveiimir herrum
að hjóna.
„Vðrður" Iháldsflokksmiðstjórn-
arinnar heiir undanfarið verið að
hampa því, að íhaldið hefði bind-
indis- og bann-mann í kjöri við
landskosningarnar í haust, þar
sem er Jónas Kristjánsson iækn-
ir. Við síðasta landskjör mintust
íhaldsblöðin lítt á bannmáiið. Pá
var Jón Þoíláksson líka á odd-
inum. Hinu ætlast þau til að bind-
indismenn og bannvinir vari sig
ekki á, að Jón Þorláksson er enn
á oddinum hjá íhaldsliðinu, og
að um það stendur aðaldeilan
nú við kosningarnar, hvort íhalds-
*
og Spánarvina-stjórn hans eigi að
halda völdum áfram eða ekki.
Þannig er því þó varið. Áður en
kosningar fara fram nú, hafa í-
haldsmtnn 18 þingmenn henni til
stuðnings, en 19 eru taldir and-
stæðingar hennar í þinginu. Með
kosningum þeim, seni fram fara
1. vrtrardag i haust, verður skor-
ið úr um [)að, Irvort hún fær að
sitja áfram eða ekki.
íhaidsstjórnin heíir jafnvel ekki
mátt heyra það nefnt, að t. d.
Siglíirðingum yrði leyft að losna
við útsölu Spánarvínanna og það,
sern flýtur í kjölfar hennar, þrátt
fyrir ítrekaöa beiðni þeirra. Þeim
mun síöur hefir stjórnin gert
neina minstu tilraun til að losa
þjóðina alla við Spánarpláguna.
Varla fer jafnvel „Vörður“ eöa
önnur íhaldsblöð aö predika það,
að „!egáía“-vist Gunnars Egilssón-
ar á Spáni sé ráðin í því skyni.
Nú er það víst, aó Jónas Krist-
jánsson ætlar fyrst og fremst að
styðja núverandi íhaldsstjórn, ef
sú slysni skyldi henda þjóðina
að hleypa honum inn i þingið tii
þess. Þar af leiöir, að þó að hann
kunni að vera óánægður með
gerðir hennar eða aðgerðaleysi í
bannmálinu, þá er hann bundinn í
báða skó og getur ekki þjónað
tveimur herrum, sízt svo ólíkum
sem vmbanmnu og Jóni Þorláks-
syni. Og þó að verið geti, aó
hann vilii ympra á áhugamálum
bannmanna, þá er vist, að flokk-
ur sá, sem hann hefir merlít sig,
kveður slíka viðleitni niður þeg-
ar í stað. Svo minnast víst líka
rnargir þess, aö Magnús dósent
þóttist ætla að verða vörður og
vetndari bannlaganna, þegar hann
bauð sig fram í fyrsta sinn. Það
heit rækti hann með því að safnn
sem allra flestum þingmönnum
eins og skjaídborg utan um Spán-
arvínin og fá þá til að greiða at-
kvæði með undanþágunni. Þar
kom i Ijós ósvikið íhaldshugar-
far: Því fleiri, sem eru samsekir,
því fremur verðum við látnir í
friði á eftir. Svona reyndíst „í-
haids-bannmaðurinn“ sá, þegar á
þingið kom.
Það er líka eins og brennivíns-
saurblaðið „Störmur" sjái, hvað á
spýtunni hangir. Magnús, fyrr
verandi „Varðar“-ritstjóri, er ekki
vanur a‘ð mæla með þeinr mönn-
uin, sem iíklegir eru til að verða
áfengisbanninu tii eflingarj en eft-
ir að kunnugt var orðið, hver
efstur yrði á landskjörslista í-
haldsins, heldur hann áfram að
óska honum inn í þingið. Magnús
er sjáanlega í finjgum vafa um, að
efling íhaldsins rnuni verða til
að auka en ekki minka vínflóðið
í landinu, og það skifti ekki svo
miklu máli, þó að sá þingmaður,
sem ljær Ihaldinu liö, kunni að
vera óónægður með afskifti þess
af bannmálinu. Með því að styðja
Spánarvíriastjórnina slær hann
sjálfur bannvopnin úr hendi sér.
Hugur „Varðar" íhaldsflokks-
miðstjórnarinnar til vínbannsins
kom líka greinilega í Ijós á laug-
ardaginn var. Auk allrar bölvun-
arinnar, sem Spánarvínin hafa
flutt yfir þjóðina, er nú alkunn-
ugt orðið, hve gagnslaus Spánar-
samningurinn er fyrir fisksöluna.
Samt sem áður vill „Vöröur"
þessi, sem svo er nákominn í-
haldsstjórninni, halda dauðahaldi
í Spánarsamninginn og Spánar-
vínin, og útreikningum, sem
reynslan hefir marghrakið, er ætl-
að að sanna nauðsyn þeirra fyrir
þjóðina(!).
Frá bæjarstj órnarfundi í gær.
Héðinn Valdimarsson skýrði
nánara- það voðaástand, er at-
atvinnuleysisskýrslurnar lýsa, og
brýndi fyrir bæjarstjórninni nauð-
syn þess að bæta úr atvinnu-
leysinu. Benti hann á, að utan-
sveitarfólkið, sem svo er neínt
í skýrslunum, myndi yfirleitt vera
gjaldskylt hér í bænum og hafa
kosningarétt í bæjarmálum. Það
væri því bæjarfólk, og bæjarfé-
lagið hefði líka skyldur við það.
Húgsun sú, er kæmi fráiri í lög-
unum um styttingu sveitfestistím-
ans, að menn hafi réttindi og
skyldur þar, sem þeir eiga heipia,
væri rétt að kæmi hér til greina.
Einnig benti hann á, hve gríðar-
mikið húsaleigan gleypir af hin-
um litlu tekjum verkafóiksins.
Óiafur Friðriksson benti á, að
skifting bæjarmanna í sveitfasía
menn í bænum og utansveitar-
menn hefði engan rétt á sér. Ut-
ansveitarmenn, búsettir í Reykja-
vík, væru engir til, nema e. t. v.
iþeir, sem fluzt haía í bæinn árið,
sem yfir stendur. Meiri hlutinn í
bæjarstjóniinni forðaðist að Ijúka
upp munni sínum, á meðan at-
vinnuleysismálið var á dagskrá,
Bæjarstjórnin lagði samþykki sitt
á, að borgarstjóra væri falið að
láta gera kostnaðaráætlanir um
þau verk, er skýrt var frá hér í
blaðinu í gær.
Byggingarnelnd barnaskólans
var samkvæmt tiliögu hennar fal-
ið að gera fullnaöarsamningá við
Sigurð Guðmundsson bygginga-
meistara um, að hann veitti skóla-
byggingunni forstöðu. Jafnframt
lagði Héðinn Valdimarsson á-
herzlu á, að verkið verði að byrja
n ú í haust.
Bæjarstjórnin samþykti, að
skólanefndin ráði Guðbjörgu
Árnadóttur hjúkrunarkönu við
•barnaskólann.
Skólanefndin hafði ekki séö sér
fært að lána íþrótíafélögum, sem
þess höfðu óskað, leikfimissal
barnaskólans • til afnota, þar eð
gólfið ef orðið mjög slitið. Skýrði
settur borgarstjóri frá, að efni í
nýtt gólf hefði veriö pantað í
sumar, en reynst ónothæft, og
liefði nú verið pantað á ný.