Alþýðublaðið - 10.03.1935, Side 1
AMðifloktefélk
_ mys
C ^llstann
við kosningarnar
f útvarpsráð!
Varist sprengilistann!
RlfSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XVI. ARGANGUR. SUNNÚDAGINN 10. MARZ 1935. 68. TÖLUBLAÐ
Kjósið lista Alpýðu-
flokksins í útvarps-
ráð:
C-listann.
Bort með ihaldið!
Oplnber atkvæðagreiðsla i Hæstarétti.
Frumvarp um breytingar á lögunum um
Hæstarétt var lagt fram á alþingi 1 gær.
T ö GFRÆÐINGANEFNDIN, sem skipuð var á
síðasta alþingi til að athuga og gera tillögur
um breytingar á lögunum um Hæstarétt hefir nu
skilað áliti og bera tveir nefndarmennirnir Stefán
Jóhann Stefánsson og Bergur Jónsson fram frum-
varp um breytingar á lögunum um Hæstarétt. Var
pað lagt fram á alþingi í gær.
Veigamestabreytingin, sem gerðverðuráHæsta-
rétti samkvæmt frumvarpinu er, að atkvæðagreiðsla
dómara skuli vera opinber og ef ágreiningur verði
milli þeirra um dóma, skuli almenningi verða ljóst
i hverju hann sé fólginn, Auk þessa verða skil-
yrðin fyrir því, að geta orðið hæstaréttardómarar
og varadómarar rýmkuð mjög frá því sem nú er.
Einar Arnórsson hæstaréttardómari vai þriðji mað-
ur í nefndinni og er hann i öllura höfuðatriðum
samþykkur frumvarpinu.
I lögfræðinganefndinni, sem
skipuð var á síðasta alþingi, og
sem stendur að frumvarpinu, áttu
sæti Stefán Jóh. Stefánsson hæsta-
réttarmálafærslumaður, Bergur
Jónsson sýslumaður og Einar
Arnórsson hæstaréttardómari.
Eru nefndarmenn allir í höfuð-
atriðum sammála um frumvarp-
ið. Einar Arnórsson hefir þó lýst
yfir því, að hann teldi ekki heppi-
legt, að hið svokallaða dómara-
próf yrði úr gildi felt.
Frumvarpið hefir að geyma all-
miklar breytingar á lögunum um
Hæstarétt, og hefir orðið tölu-
verð barátta um sumar þeirra, t.
d. um opinberu atkvæðagreiðsl-
una.
Opinber atkvæðagreiðsla,
Um veigamesta atriði frurn-
varpsins, opinberu atkvæða-
gœiðsluna, segir í 13. greinfrum-
varpsins:
„Niðurlag dóms eða úrskurðar
skal lesa upp: í dóm® í heyranda
hljóði. Að því loknu skal þess
getið, ef ágreiningur hefir verið
um niðurstöðu, og lesa þá upp
á sama hátt niðurlag ágreinings-
atkvæðis.
Alla dóma hœstaréttar og úr-
skurdi og öll ágreiningsatridi
skal ordrétt birta jafnhardaji í
dómasafni hans, snda fijlgi hverju
bindi af pví rœkilsgt efnisyfirlit.
Sá af dómendum, sem dómurinn
felur það, annist útgáfu dóma-
safnsins og fyrir þá þóknun, sem
dómurinn ákveður."
Og í greinargerð fyrir þessari
breytingu segir meðal annars:
„Aðalbreytingin er sú, að svo
verði um búið, að almenningur
geti jafnan átt þess kost aðkynna
sér það, hvort allir dómendur
hafi verið sammála um dóms-
úrlausnir hæstaréttar. Yrði því þá
lýst jafnharðan og dómur er upp
sagður, hvort ágreiningur hefði
verið um niðurstöðu, og sú nið-
urstaða þá birt, en síðan öll á-
greiningsatkvæði birt í dóma-
safni réttarins, alveg eins og
sjálfir dómarnir.
Par með fá allir þeir, er vilja,
sannar og réttar upplýsingar um
ágreining dómenda, og getafeng-
ið þá 'fræðslu af ágreiningsat-
kvæðum, sem vitanlega oft má
fó.“
Með þessari breytingu ergeng-
ið inn á þá braut, að hæstiréttur
skuli starfa fyrir opnum tjöld-
um. Eykur það ábyrgðartilfinn-
ingu dómaranna, því að með því
verða þeir hver og einn að bera
ábyrgð á afstöðu sinni og dómum
fyrir allri þjóðirini..
Fær og almenningur meiri upp-
lýsingar með þessu um starfsemi
réttarins en verið hefir.
Um tilhögun ráðagerða dómar-
anna, samningu frumvarpa að
dómum og ákvörðun hans eru
ákvæði frumvarpsins mjög svo
eins og nú er í reyndinni og
hefir reynst hagfeld vinnubrögð.
Hins vegar þykir það einsætt,
að dómararnir skifti með sér
samningu dómsfrumvarpa. Er það
bæði sanngjarnt og svo má þá
hverju sinni fela hvert einstakt
mál að þessu leyti þeim dómar-
anum, sem kann að hafa bezta
þekkingu á sakarefni.
Pað virðist engin ástæða til að
gera að þessu leyti upp á milli
Kosningin í útvarpsráð hófst
hér i bænum 1. pessa
mánaðar. Á þeim 8 dögum,
sem kjörstofan hefir verið op-
in hafa alls neytt atkvæðis-
réttar síns um 1100 kjósenöur.
Er pað lítil páttaka pegar pess
er gætt, að á kjörskrá hér i
Reykjavik eru 4700 kjósendur.
Það er vitað, að íhaldsflokkur-
inn leggur mikla áherzlu á þessa
kosningu og smalar öllu sínu
liði. Það ætlar að reyna að koma
Magnúsi Jónssyni prófessor í út-
varpsráð og byggir aðalvon' sína
um að það takist á tómlæti í-
haldsandstæðinga um þessakosn-
ingu.
Kosningin í útvarpsráð er eins
áríðandi eins og hver önnur kosn-
ing, er víðsýnir menn, sem unna
framförum og umbótum, berjast
gegn íhaldinu. Það er því hin
mesta fásinna af mönnum aÖ á-
líta, að kosning þessi sé ekki á-
ríðandi.
Við kosningarnar síðustu fékk
&
STEFÁN JÓH. STEFÁNSSON.
forseta og hinna dómarannia. For-
seti verður jafnan eins starfhæf-
ur og þeir, eins og nú er um
hag embættismanna búið. Það er
ekki heldur nokkur ástæða til
þess, að hann segi síðast til um
tillögur sínar eða álit. Því er það
látið felast í tillögum frumvarps-
ins, að forseti semji frumvörp
að dómum að sínum hluta eins
og hinir.
Rýmkuii á skilyrðum fyr-
ir pvi að verða dómarar.
Önnur merkasta breytingin á.
lögunum, sein frun\narpið gerir
ráð fyrir, er niðurfelling hins svo-
kallaða dómaraprófs.
Til þessa hefir það verið1 í lög-
um, að sá, sem ætlaði að verða
dómaii í hæstarétti, yrði að
ganga undir prófþraut hjá hæsta-
rétti.
Um þetta atriði segir meðal
pnnars í greinargerð:
„Ákvæði þetta, um að dómara-
efni skuli ganga undir sérstakt
próf í hæstarétti, var á sínum
tíma teldð upp úr dönskum lög-
um, en er óþekt í öllum öðrum
löndum, samkvæmt upplýsingum
(Frh. á 4. síðu.)
listi Otvarpsnotendafélags Reykja-
víkur meiri hluta atkvæða. Þá átti
ekki að kjósa nema einn mann.
Nú er kosningabaráttan harðari,
og þar sem það er reynt, að and-
stæðingar íhaldsins eru þroskaðri
í opinberum málum og fylgjast
betur með en það, ætti iþeim
ekki að veitast örðugt að halda
sömu aðstöðu og listi þeirra fékk
siðastliðið sumar, en það þýðir,
að C-listinn fær þá báða kosna,
Jón Eyþórsson og Emil Jónsson,
því að ekki er hægt að gera ráð
fyrir því, að listi Pálma rektors,
sprengilistinn, fái nema þau fáu
atkvæði, sem Bændaflokkurinn
getur reitt sarnan handa honum.
Alþýðublaðið hvetur alla and-
stæðinga ihaldsins að kjósa sem
allra fyrst og fylkja sér um C-
listann.
Kjörstofan er á Lælqartorgi 1.
húsi Páls Stefánssonar, herbergi
nr. 10.
Kjósið C-Iistann, lista vina út-
varpsins.
1100 manns haf akosið 1 útvarpsráð.
AlÞýðaEnenn og allir Vrfálslyndir menn verða
aðfylk|a sér á kjörstofnna og kJésaC"lfstann.
Balkanríkin hervæöast af kappi.
Júgóslavía, Rúmenía og Tyrkland hóta
strí ði, ef Búlgar ía sendiher inn í Mab edóniu.
EINKASKEYTl TIL ALÞÝÐUBL. KAUPMANNAH ÖFN í gæhkveldi,
UNSKA BLAÐIÐ „Daily Express“ flytur pá frétt
frá Sofia, að útlitið á Balkanskaga sé stöðugt
að verða ískyggilegra. Stjórnin í Belgrad hefir gef-
ið út opinbera yfirlýsingu þess efnis, að Júgóslavía
Rúmenía og Tyrkland muni tafarlaust grípa til
vopna og veita Grikklandi lið, eins og þeim beri
skylda til samkvæmt Balkansamningnum, ef Búlg-
aría skyidi gera allra minstu tilraun til þess að
notfæra sér borgarastyrjöldina í Grikklandi til
þess að senda her inn í Makedóníu. Jafnframt er
símað frá London, að erindrekar frá tyrknesku
stjórninni hafi gert þar stórkostleg innkaup ástál-
hjálmum, hermannastigvélum, khakiefnum og öðr-
um hernaðanþörfum.
JEVTITCH, forsætis- og utan-
ríkis-ráðherra Júgóslavíu.
,5
Fréttastofa þýzku stjórnarinnar j
flytur þá frétt, einnig frá Sofia, j
að uppreisnin sé stöðugt að
magnast í Þrakíu og Makedóníu,
að tugir þúsunda af sjálfboða-
liðum streymi til uppreisnarhers-
ins og heilar hersveitir úr liði
stjórnarinnar hafi neitað að berj-
ast og gengiið í lið með uppreisn-
armönnum.
Hins vegar tilkynnir stjórnin í
Aþenu opinberlega, að hún hafi :
í öllum höndum við uppreisnar-
menn, að herinn haldi fullkom-
inni trygð við hana, og það sé
aðeins veðurvonzku að kenna, að
enn hafi ekki verið hægt að bæla,
uppreisnina niður að fullu.
STAMPEN
Stjórnmálamenn óttast
útlitið á Balkanskaga.
LONDON í gærkveldi. (FB.)
Frekari áreiðanlegar fregnir um
viðureignir stjórnarliðsins og
uppreistarmanna í Grikklandi
hafa ekki borist, og er talið, að
veðurfar hindri, að til úrslita
verði barist á- landi.
TaDdarduflin verða óslgrandi
varnartæki í næsta éfriði.
Einkaskeyti frá fréttaritara ALÞÝÐUBLAÐSINS um
milliríkjamál
KAUPMANNAHÖFN í gærkvieldi,
UNDURDUFLIN, sem gerðu
allar siglingaleiðir ótryggar
á stríðsárunum 1914—1918, eru
mönnum enn í fersku minni.
En alt bendir þó til þess, að
tundurduflin verði notuð ennþá
meira í næsta stríði. 1 því efni
hefi ég fyrir mér alveg nýjar upp-
lýsingar frá Englandi, sem sýna,
hve gífurlega áherzlu stjórn enska
flotans liefir lagt á það í allra
seinustu tíð, að fullkomna tund-
urduflin og útbúnað þeirra skipa,
sem ætluð eru til tundurdufla-
lagninga.
Fjöldamörgum enskum herskip-
um hefir verið breytt til þess að
þau gætu lagt út tundurdufl.
Stærst þeirra er herskipið „Ad-
venture", sem áður var beitiskip,
en hefir nú verið breytt þannig,
að það getur flutt með sér 310
tundurdufl og lagt þau út.
Þá hefir og 4 strandvarnarskip-
um verið breytt í sama tilgangi,
og margir af nýjustu tundurspill-
um enska flotans, svo sem „Ex-
press“, sem getur farið 10 000
kílómetra langa leið án þess að
endurnýja kola- og olíu-forða
sinn, eru útbúnir með vélum til
þess að leggja út tundurdufl.
Sama er að segja um aðstoðar-
herskipið „Grimsby“, sem var
bygt í fyrra.
Loks er búiÖ að smíða nokkra
kafbáta og aðrir í smíðum, sem
eru þannig gerðir, að þeir geta
flutt með sér töluverðan forða af
tundurduflum.
Þá hefir ekki síður verið lögð
áherzla á það, að finna upp og
framleiða riýjar tegundir af tund-
urduflum.
Sumar þeirra eru gerðar með
það fyrir augum, að verja með
þeim hafnir og árósa. Otbúnaði
þeirra er haldið stranglega leynd-
um, en hann er sagður vera þann-
ig, að fjarlægar stöðvar, sem
standa í sambandi við tundur-
duflin, verði þess varar undir
eins, meira að segja í myrkri og
þoku, ef fjandsamleg skip koma
inn á verkanasvæði þeirra, og
geti þá látið tundurduflin springa
á hvaða augnabliki sem er.
Önnur tegund tundurdufla, sem
nýlega hefir verið fundin upp, er
þannig, að ekki er hægt að finna,
þau og fiska þau upp með neti
eins og algengt var í styrjöldinni
1914—1918. Þessi nýju tundurdufl
eru þannig gerð, að akkerisfestin,
sem þau liggja við, opnast þegar
netið rekst á hana, og sleppir því
í gegn, en festir tundurduflið
strax aftur við akkerið.
Otbúnaðinum, sem gerir þessa
ótrúlegu hluti mögulega, er hald-
ið stranglega leyndum.
DIPLOMATUS.
Um hina fyrirhuguðu árás upp-,
reistarmanna á Saloniki hefir
ekki frézt meira enn sem komið
er.
Frá Genf hafa borist fregnir
um, að Antonoff, fulltrúi Búlg-
ara, hafi sent Avenol bréf þess
efnis, að hann afturkalli orðsend-
inguna viðvíkjandi liðsafnaði
Tyrkja. Er því máli þar með lok-
ið, að því er til afskifta Þjóða-
bandalagsins kemur.
1 bréfi sínu segir Antonoff, að
viðræður um þessi mál fari nú
fram milli stjórnarvaldanma) i So-
fia og Angora. Bendir það til,
að ríkisstjórnir Búlgaríu ogTyrk-
lands ætli að jafna þessi ágrein-
ingsmál síh á milli.
Hins vegar er fullyrt, að stjórn-
málamenn stórveldanna hafi mikl-
ar áhyggjur af því, hvernig horf-
ir um þessi mál, því að þeir ótt-
ist að erfiðleikar á Balkan séu
þess valdandi, að Búlganar hafi
tekið þessa stefnu, og eitthvað sé
þarna á bak við, sem ekki er
komið í ljós enn. (United Press.)
Fregnimum af ástandinu á
Baikanskaga mótmælt.
LONDON, í gærkveldi.
Ýmsir stjórnmálamenn eru i
(Frh. á 4. síðu.)
Stlórnatskifti talin ötajá-
kvæmiieg i Noregi.
—
OSLO í gærkveldi. (FB.)
Fulltrúar norska Bændaflokks-
ins í fjárliagsnefnd hafa lagt til,
að lagður verði á söluskattur til
þess að afla tekna vegna kreppu-
ráðstafana höfuðatvinnuvegunum
til styrktar, svo sem jarðrækt,
skógrækt og fiskveiðum. Gizka
þeir á, að skatturinn muni nema
30 millj. króna. — Fulltrúar hægri
og vinstri flokkanna hafa varað
við, að grípa til slftra ráða sem
þessara til tekjuöflunar.
Fjárlagaumræðurnar hefjast
ekki fyr en mánudag 18. marz
samkvæmt beiðni ríkisstjórnar-
innar.
Evenrud vinstri flokks leiðtogi
telur víst, í grein, sem birzt hef-
ir í blaði hans j Oslo, að til
stjórnarskifta komi innan
skamms.