Alþýðublaðið - 10.03.1935, Page 4
Það kostar fé Bvv.ónvmv mfm Það kostar melr
að auglýsa, pó er pað beinn Bí IiwIITÍm 1 flSIIgl að auglýsa ekki, pví að
gróðavegur, pví að M U ulE r X mM Mlyf pað er
Það kemur aftur að borga fyrir aðra,
i auknum viðskiftum. sem auglýsa og draga að
— SUNNUDAGINN 10. MARZ 1935. sér viðskiftin.
fOftBila Bfdf
Viva Villa.
Viðburðarík og framúrskar-
andi spennandi mynd, sem
styðst við sanna viðburði úr
frelsisstríði Mexico -um 1911.
Aðalhlutverkið sem frelsis-
hetjan Pancho Villa, leikur:
Wallace Beery
af aðdáanlegri snild.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
Sýnd kl. 7 og kl. 9.
Barnasýning kl. 5.
Hann, hún og
Hamlet.
Talmynd með
Litla og Stóra.
Sausöngnr 1 Garala BIi.
Blandaður kór undir7st]órn
Sigfúsar Einarssonar.
Á fyrsta hluta söngskrárinnar
var meðal annars hið undurfagra
Áve Maris Stella eftir Grieg og
ljómandi kórlag, „Nachtiied", eft-
ir Reger, og var hvorttveggja á-
gætlega sungið. Annar hlutinn,
lagaflokkur eftir Söderman, eru
tilvalin fyrir kórsöng. Þessi elsku-
legu alþýðlegu lög vöktu hrifn-
ingu áheyrenda á sama hátt og
hin hljómpýðu lög eftir Mendel-
sohn.
Síðasta verkið á söngskránni
var ísland eftir stjórnandann,
Sigf. Einarsson, og lék frú Val-
borg Einarsson undir á flygel.
Þetta var áhrifamesta verkið á
söngskránni.
Bassarnir og altraddirnar
hljómuðu bezt. Þarna eru líka á-
gætar sopranraddir, en pær eru
í heild sinni ekki nægilega sam-
stiltar. 1 kórnum er ein tenór-
rödd, sem veldur nokkrum trufl-
unum. Að öðru leyti var söngur-
inn mjög prýðilegur og með köfl-
um ágætur.
Stjórnandi kórsins, Sigfús Ein-
arsson orgelleikari, hefir hér
unnið mikið starf. Undirbúningur
slíks „prógramms" kostar hér
geysilega vinnu, ef ná á peim
listræna árangri, sem hér hefir
tekist.
Æskilegt hefði að sjálfsögðu
verið, að kórinn hefði minst 250
óra afmælis meistara kórsöngsins,
Bachs, pó ekki hefði verið nema
með einu lagi.
Dr. F. M.
Blandaður kór
undir stjórn Sigfúsar Einarsson-
ar endurtekur samsöng sinn í
Gamla Bíó á priðjudaginn kl.
Ungmennadeild
Slysavarnafélags Islands heldur
fund í Varðarhúsinul, í dag kl. 4.
HÆSTIRÉTTUR.
(Frh. af 1. síðu.)
frá sendiherra Islands í Dan-
mörku. Hefir pað aldrei komið til
framkvæmda hér á landl í pau-15
ár, sem hæstiréttur hefir starfað.
I peim lögum eru gerðar svo
strangar kröfur til lögfræðilegr-
ar pekkingar, hæfileika og reynslu
peirra manna, sem til greina getaj
komið sem hæstaréttardómarar,
að algerlega er óparft og óvið-
kunnanlegt að ætlast til, að peir
fari að ganga undir próf eftir
margra ára embættistíma. Ákvæði
petta, sem bæði er úrelt og gagns-
laust, á pví að falla burt.
Loks er lagt til, að umsagnar
hæstaréttar verði leitað áður en
dómaraembætti er par veitt, og
virðist ekki rangt, að dómurinn
segi álit sitt á peim, er par vilja
verða dómendur, og gæti veiting-
arvaldinu orðið nokkur styrkur
að peirri umsögn, pví að dóm-
lenduT í hæstarétti væru oft næst-
ir manna til að gefa upplýsingar
um dómarah jfileíka peirra, sem
um dómaraembætti í hæstarétti
sækja.“
Einar Arnórsson hæstaréttar-
dómari gerði aðallega ágreining
út af pessu atriði. Hefir hann pó
lýst yfir pví, að hann telji pað
mikla bót, að umsagnar hæsta-
réttar skuli leitað áður en dóm-
araembætti er veitt.
í 2. grein frumvarpsins er á-
kvæði um pað, hverjum megi
veita dómaraembætti. Segir par
meðal annars, að veita megi peim
embættið, sem „hafi verið 3 ár
hið skemsta kennari í lögum við
háskólann, hæstaréttarmálaflutn-
ingsmaður, hæstaréttarritari,
skrifstofustjóri í stjórnarráðinu,
héraðsdómari eða 5 ár fulltrúi i
dómsmálaráðuneytinu, lögmanns
eða bæjarfógeta í Reykjavík, við
samningu dóma og úrskurða, eða
fulltrúi lögreglustjórans íReykja-
vík við rannsóknir opinberra mála
og samningu dóma í peim, eða
sýnt verulega yfirburði í lög-
fræði með fræðimensku eða á
annan hátt.“
Til pessa hafa peir ekki getað
orðið dómarar, sem hafa fengið
2. einkunn við lagapróf, en petta
verður afnumið, og segir um pað
í frumvarpinu:
„Má veita peim, er fengið hefir
2. einkunn við lagapróf, dóm-
araembætti, ef hæstiréttur mælir
með honum, enda hafi hann sýnt
sérstaka hæfileika sem fræðimað-
ur í lögum eða lögfræðistörfum
að öðru leyti.“
Val varadómara.
I gildandi lögum um hæstarétt
er svo ákveðið, að ef einhver
dómari víki sæti, skuli velja ein-
hvern prófessor í lögum til að
taka sæti hans, og skal valinu
ráða hlutkesti.
Frumvarpið gerir ráð fyrir
breytingu á pessu atriði, og segir
um pað í 1. grein pess:
„Nú víkur hæstaréttardómari
sæti í máli, og velur pá dóms-
heldur danzleik í K.R,
í kvöld (sunnudag).
Nýja bandið leikur.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl
BALKANRIKIN.
(Frh. af 1. síðu.Á
dag önnum kafnir við að bera til
baka pær fregnir 1 sambandi við
uppreistina í Grikklandi, sem
fluttar voru í gærdag.
Italía ber pað til baka, að par
í landi sé verið að gera neinar
hernaðarlegar ráðstafanir í sam-
bandi við pessa atburði. Tyrk-
neska stjórnin ber pað til baka,
að hún hafi haft uppi nokkurn
liðsdrátt við landamæri Búlgaríu.
Búlgarska stjórnin ber pað til
baka, að hún hafi kvatt nokkrar
hersveitir til vopna og fullyrðir,
að henni muni aldrei koma til
hugar að rjúfa neinar af skuld-
bíndingum sínum.
Gríska stjórnin ber pað til
baka, að uppreistarmenn sé að
varpa sprengjum á Apenuborg,
að hún hafi sagt af sér og fjölda;
margt annað, sem henni pykir at-
hugavert í fregnum síðustu daga.
Loks bera uppreistarmenn pað
til baka, að Venizelos hafi særst.
Innan um allar pessar neitanir
er lítið af jákvæðum fregnum.
Þó hefir gríski hermálaráðherr-
ann játað, að árásunum á upp-
reistarmennina hafi orðið að
fresta vegna hins slæma veðurs.
En ef marka má pær fregnir,
sem berast frá öðrum löndum
um Grikkland, er helzt svo að
sjá, sem uppreistarmenn séu að
yinna á, og ýms ensk blöð láta
pað í ljós í dag, að vel megi
svo fara, að uppreistarmenn beri
sigur úr býtum. (FO.)
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Pilt og stúlku'kl. 3,15 í
dag og leikritið „Nanna“ kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1.
íslendingar í Vesturheimi
hafa gefið 6000 krónur í land-
skjálftasjóð. Ráðuneyti forsætis-
ráðherra barst í dag tilkynning
um pessa gjöf frá söfnunarnefnd
Eyfirðingaklúbbsins „Helga
magra" í Winnipeg, en söfnunar-
nefndina skipuðu Sóffónías Thor-
kelsson, Páll Hallsson og Friðrik
Sveinsson. Fjársöfnun pessa hóf
klúbburinn pegar á síðasta sumri,
og hafa íslendingar víðs vegar í
Norður-Ameríku lagt gjafir í
sjóðinn.
Hvalurinn,
sem rak í Trostansfirði, var 23
metrar á lengd, og er hann pegar
skorinn að mestu. Auglýst verð
á Bíldudal var 30 aura kg. af
rengi og 6 aura af kjöti.
málaráðherra, að fengnum tillög-
um dómsins, einhvern kennara
lagadeildar háskólans eða ein-
hvern meðal hæstaréttarmála-
flutningsmanna eða einhvern hér-
aðsdómara, sem fullnægir skilyrð-
um pessara laga, til pess að vera
skipaður dómari í hæstarétt, og
er peim skylt að taka við peirri
kvaðningu.
Nú forfallast dómari, eða sæti
hans verður laust af öðrum á-
stæðum, og velur pá dómsmála-
ráðherra, að fengnum tillögum.
dómsins, einhvern lagakennara
háskólans til að taka sætl í dóm-
inum, par til hinn reglulegi dóm-
ari tekur par aftur sæti eða par
til nýr dómari verður skipaður."
Frumvarp petta stefnir að pví,
að auka lýðræðið í skipun hæsta-
réttar og opna hann, svo að
starfsemi hans verði kunn allri
pjóðinni.
I DAfi
Næturlæknir er í nótt Jón Nor-
land, Skólavörðustíg 6B, sími
4348.
Næturvörður er í nótt í Reykja-
víkur- og Iðunnar-apóteki.
MESSUR:
Kl. 11 Messa í dómkirkjunni, séra
B. J.
— 2 Barnaguðspjónusta í dóm-
kirkjunni, séra Fr. H.
— 5 Messa í dómkirkjunni, séra
Fr. H.
— 2 Messa í fríkirkjunni, séra
Á. S.
— 2 Messa i Hafnarfjarðar-
kirkju, séra G. Þ.
— 8 Messa í Aðventkirkjunni, O.
Frenning.
— 10 Hámessa í Landakotskirkju.
— 6 KvöldguÖspjónusta með
predikun
— 9 Hámessa í Spítalakirkju
Hafnarfjarðar.
— 6 Kvöldguðspjónusta með
predikun.
ÚTVARPIÐ:
9,50 Enskukensla.
10,15 Dönskukensla.
10,40 Veðurfregnir.
14,00 Messa í fríkirkjunni (séra
Árni Sigurðsson).
15.30 Tónleikar: a) Beethoven:
Hljómkviða nr. 1. b)
Skemtilög (plötur).
18.20 Þýzkukensla.
18,45 Barnatími: Sögur og söng-
ur (séra Friðrik Hallgríms-
son — ungfrú Guðrún Sig-
urbjörnsdóttir).
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Tónleikar: Sígild skemtilög
(plötur).
20,00 Fréttir.
20.30 Erindi: Skáldskapur. og
menningarmál, I. (Guðm. G.
Hagalín rithöf.).
21,00 Tónleikar: Ástalög (plötur).
Danzlög til kl. 24.
Kvennadeild Verklýðsfélags Ak»
ureyrar
hafði „basar" og kaffisölu í
samkomuhúsinu Zion síðastliðinn
fimtudag til ágóða fyrir björgun-
arskútusjóð Norðurlands. Söfnuð-
ust fullar 400 krónur. Fyr í vet-
ur hefir deildin safnað um 300
krónum í sama sjóð. Verklýðs-
félagið hóf söfnun pessa 1. maí
síðastliðinn, og hafa nú alls safn-
ast um 1200 krónur í björgun-
arskútusjóðinn.
Próf i kökugerð
Nýlega hefir lokið meistaraprófi
í kökugerð (bakaraiðn) við
Sænsk-pýzka Kondiíor-fagskólann
í Stokkhólmi Halldór J. Ólafsson,
til heimilis á Brekkustíg 7 hér í
Reykjavík. Er Halldór fyrsti ís-
lendingurinn, sem stundað hefir
nám við pennan skóla, sem talinn
er með peim beztu og fullkomn-
ustu á pessu sviði og hlaut fyrstu
verðlaun á Konditori-sýningu í
Stokkhólmi árið 1933. Halldór er
maður mjög áhugasamur og hefir
hlotið ágæta einkunn og beztu
meðmæli sem fyrsta flokks fag-
maður. Hann vinnur nú í Kaup-
mannahöfn og mun hafai í hyggju
að dvelja erlendis enn um skeið.
l. O. G. T.
Stúkan FRAMTÍÐIN nr. 173
heldur fund mánudaginn 11. p.
m. kl. 8V2. Stúkan 1930 heim-
sækir. Inntaka. Systumar ann-
ast fundinn og eru beðnar að
koma með kökur.
F. U. J. í Hafnarfirði
heldur fund! í rdag kl. 4 í (Bæj-
arpingssalnum. Fundurinn er op-
inn fyrir alt Alpýðuflokksfólk.
Erindi flytja á fundinum Sigurð-
ur Einarsson alpingismaður og
Ragnar E. Kvaran rithöfundur.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
heldur aðalfund í Baðstofu
iðnaðarmanna í dag kl. 2 e. h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf. Lög fyrir iðnsamband bygg-
ingarmanna lögð fram til um-
sagnar. önnur mál.
Bakarasveinafélag íslands
heldur aðalfund sinn í dag kl.
4 e. m.. í Baðstofu iðnaðarmanna.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 17.—23. fe-
brúar (í svigum tölur næstu viku
á undan): Hálsbólga 147 (94).
Kvefsótt 167 (84). Kveflungna-
bólga 4 (2). Barnaveiki 0 (2).
Gigtsótt 1 (1). Iðrakvef 6 (4).
Inflúenza 11 (0). Taksótt 1 (0).
Skarlatssótt 1 (5). Munnangur 3
(0). Heimakoma 2 (0). Hlaupa-
bóla 3 (0). Ristill (20). Mannslát
12 (5). — Landlæknisskrifstofan.
(FB.)
Hrakningar.
í fyrri nótt réru allir bátar af
Sandi, en er peir voru nýkomnir
út, hvesti og gerði versta veður.
Tveir bátar gátu ekki komist að
landi í gærmorgun, og sendi
Slysavarnafélagið skeyti til skipa
um að gæta að bátunum og veita
peim aðstoð, ef á pyrfti að halda.
Annar báturinn komst hjálpar-
laust að landi síðdegis í gær, en
enskur togari veitti hinum hjálp
til að ná höfn. velkomnir. O. Frenning.
Blandaðar kór.
söngstlóri Sigffls Einarsson,
endurtekur samsöng sinn í Gamla Bíó priðjudaginn 12.
marz kl. 7^4 e. h.
Aðgöngumíðar á 2,00, 2,50 og 3,00 (stúka) seldir í
bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og hljóðfæraverzl-
un Katrínar Viðar.
9
1 1 : 1 : 1 j ' ■'(
heldur aðalfund sunnudaginn 17. p. m. kl. 4 e. m. i Baðstofu iðnaðar-
manna.
Fundarefni samkv. félagslögum.
STJÓRNIN.
Anglýslng
una
ótflutning á saltfíski.
Samkvæmt lögum nr. 76, 29. desember 1934, um
fiskilmálanefnd, útflutning á fiski, hagnýtingu markaða
o. fl., hefir atvinnu- og samgöngu-málaráðuneytið falið
fiskimálanefndinni, að hafa á hendi úthlutun útflutnings-
leyfa á verkuðum og óverkuðum saltfiski, að undan-
eknum fiskbirgðum fyrra árs, sem Sölusamband ísl.
fiskframleiðenda hefir umboð fiskeigenda til að
selja.
Ber mönnum um allan slíkan útflutning að snúa
sér til fiskimálanefndar,
Atvinnu- og samgöngu-málaráðuneytið, 9. marz 1935.
H, HnOinalióssoii.
Gunnl. E. Briem.
Bakarsveinafélag
i ! Lfcl I
Nýja Bló
CzardasmæriD.
(Die Czardasfúrstin).
Stórfengleg pýzk tal- og
hljómlistarkvikmynd, sam-
kvæmt hinni heimsfrægu
óperettu með sama nafni
eftir E. Kalman.
Aðalhlutverkið leikur og
syngur leikkonan viðfræga
Marta Eggerth, ásamt Paul
Hörbiger, Hans Schröder
og skopleikaranum fræga
Paul Kemp.
Sýningar i kvöld kl. 5, 7
og 9. Lækkað verð kl. 5.
Engin barnasýning.
í dag tvær sýningar
Kl. 3,15.
Piltur og s*álka
Lækkað verð
kl. 8.
NANNA,
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7-
daginn fyrir, og eftir kl. 1 leik-
daginn.
Sími 3191,
í Aðventkirkjunni
verður guðspjónusta; í kvöld kl.
8. Ræðuefni: Hvað er maðurinn
og sál hans? Allir hjartanlega