Alþýðublaðið - 03.04.1935, Blaðsíða 1
XVI. ÁRGANGUR.
MIÐVIKUDAGINN 3. apríl 1935.
92. TÖLUBLAÐ
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
RlfSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
Folsuð alpingisbátiðarfrímerki
fara eins og fléðalda yfir Evrópn.
E u ísienzkir menn í vitorði með fðlsurunam ?
ÞEGAR ÁRIÐ 1930, varð það kunnugt hér á landi, að stórfeld
fjársvik'ihöfðu átt sér stað i sambandi við útgáfu alöingis-
hátiðarfrímerkjanna. Einhver málamyndarrannsókn var pá strax
látin fara fram, suður i Vin, par sem frimerkin voru prentuð, og
einhverju brent af ftjlsuðum frimerkjum.
Örstuttu siðar kom pó i ljós, að fölsuð alpingishátíðai'fri-
merki gengu kaupum og sölum um alla Evröpu. Árum saman var
pö ekkert gert i málinu af hálfu íslenzku stjórnarinnar. En fyrir
rúmum hálfum mánuði upplýstist pað við réttarrannsókn í öðru
máli í Vín, að formaður „íslandsvinafélagsins“ par hafði látið
falsa alpingishátiðarfrímerki fyrir meira en 20 miljónir islenzkra
króna.
Þetta mál hefir pegar orðið íslandi til stór skaða og
skammar i utlöndum. Það virðist auðsætt, að peir Tryggvi Þór-
hallsson páverandi forsætisráðherra og Magnús Kjaran fram-
kvæmdarstjóri alpingishátiðarinnar, beri ábyrgð á pvi, að skift
var við pessa svikara. Og verður að krefjast pess, að rannsókn
séllátin fara fram á pvi hér, hvers vegna peir ekkijgengu fram
i pvi strax árið 1930, pegar fölsunin komst upp, að sökudólgur-
inn yrðijlátinn sæta fullri ábyrgð fyrir svikin og hin fölsuðu
frimerki öll gerð upptæk.
í byrjun marzmánaðar var
málafærslumaður nokkur í Wien,
Dr. Heinrich Reiter að nafni, tek-
inn fastur þar í borginni. Hann
var ákærður fyrir það, að hafa
árum saman stolið úr sjálfs síns
hendi fé, sem honum hafði verið
trúað fyrir, og er talið, að stuld-
irnir nemi alls um 40 púsundum
austurrískra skildinga.
Það upplýstist von bráðar, að
Dr. Reiter hafði auk pess frá
upphafi verið einn aðalmaðurinn
í frímerkjasvikum peim í sam-
bandi við alþingishátíðina hér á
landi árið 1930, sem svo oft hefir
verið talað um, án þess að nokk-
urn tíma hafi, fram að þessu
tekist að grafast fullkomlega
fyrir rætur þeirra.
merkjunum, þar eð hún óskaði
þess ekki, að þau yrðu notuð til
neins gróðabralls af frímerkja-
kaupmönnum, hvort heldux. væri
hér heima eða úti í heimi. Og
það varð að , samkomulagi og
bundið samningi, að prentuð
skyldu 25 000 „sett“ — hvert
„sett“ upp á 16 frímerki, sem
kostuðu frá 3 aurum upp í 10
krónur, samtals 20 kröuur og 50
aura „settið" — og skyldu pönt-
uð í nafni íslenzku stjórnarinnar
hjá prentsmiðju einni í Wien og
veitt móttaka af þar til kjörnum
trúnaðarmanni „Islandsvinafélags-
ins“.
Prentsmiðjunni afheiit
ialsað skjal.
hent banka einum í (Mimchen sem
trygging fyrir láni, sem svaraði
andvirði þeirra. En pöntunin, sem
trúnacarmaður félagsins afhenti
prentsmidjunni í Wien, hljódadi
ekki upp á 25 000 heldur upp á
livorki meira né minna en 1 025-
000 — eina milljón og tuttugu
fimm púsund — - „sett“!
Þessi svik voru pannig fram-
kvœmd, ad. tölunni 10 hafdi verid
bœtt inn í 'pöntun íslenzku síjórn-
arinnar fijrir framan töluna 25-
000! '
Samkvæmt þessari fölsuðu
pöntun, prentaði prentsmiðjan
1 025 000 „sett“ af hátíðarfrímerkj-
unum og afhenti þau trúnaðar-
manni „íslandsvinafélagsins“, en
hann faldi þau í íbúð einni í
Wien. I árslok 1929 kornu síðan
fulltrúar frá „íslandsvinafélaginu“
hingað til Reykjavíkur og færðu
landinu hin fyrirfram ákveðnu 20
þús. „sett“ af hátíðarfrímerkjun-
um að „gjöf“, og var tekið hér
eins og vænta mátti með kostum
og kynjum.
JEftir voru í Wien, auk peirra
5000 „setta“, sem félagid átti ad
fá fijrir prentunarkostnadinum,
1 000 000 „sett“ af frímerkjunum
og œtlaði Dr. Reiter og ef til vill
einhverjir aorir, sem óvíst er enn
hverjir kunna að hafa verið, að
hafa andvirdi pessara raunveru-
legcL fölsuðu frímerkjci að launum
fyrir óinak sitt. En ef öll pessi
frímerki hefðu verið séld við
nafnverði, pá hefði pað numið
meira en 20 milljónum íslenzkra
króna!
Formaður íslandsvinafél-
agsins í Vín margfaldur
svikari og pjófur.
Dr. Reiter stofnaði fyrir mörg-
um árum síðan „íslandsvinaféliag“
í Wien, sem ætlað var að starfa
í svipuðum anda og hið alþekta
„íslandsvinafélag" í Þýzkalandi.
Hann var þá þegar kosinn forseti
félagsins og hefir verið það siðan.
En það leið ekki á löngu, þar
til Dr. Reiter uppgötvaði, að
þessi félagsskapur gæti verið til
margs annars góður en að efla
þekkingu á og andlegt samband
við þá litlu, norrænu — eða eins
og það er nú nefnt í þýzku mæl-
andi löndum — „arísku“ þjóð,
sem hann hafði heyrt að ætti
heima hér norður á íslandi.
Þegar undirbúningur var hafinn
hér til þess að halda upp á þús-
und ára afmæli alþingis, sneri
stjórn „lslandsvinafélagsins“ í
Wien sér til alþingishátíðarnefnd-
arinnar, sem Magnús Kjaran var
formaður fyrir, eins og kunnugt
er, og fór "fram á það, að
mega auðsýna Islandi vináttu
sína með því að færa íslenzku
stjórninni „seríu“ af íslenzkum
hátíðarfrímerkjum að „gjöf“ í til-
efni af þeim viðburði, sem til
stóð.
Islenzka stjórnin þáði þetta
höfðinglega boð, en gerði það þó
að skilyrði, að ekki yrði prentað'
nema lítið upplag af hátíðarfrþ
Af þessum 25 000 „settum" á-
kvað þó íslenzka stjórnin að eftir-
láta „íslandsvinafélaginu“ 5000
„sett“ fyrir prentunarkostnaðin-
um. Og þar eð félagið sjálft hafði
eitkert fé til forráða voru þau af-
íslenzka stjórnin fékk
fregnir af svikunum 1930.
Bæði íslenzka stjórnin og bank-
inn í Milnchen fengu þó pata af
Frh. á 4. síðu.
Fækkað í atvinnubótavinnunni
um 100 manns í nœstn vlku.
ÆJARRÁÐSFUNDUR var
haldinn í gærkveldi, __ og
kom þar meðal annars til um-
ræðu atvinnpbótdmáli'ð.
íhaldsmenn lögðu til, að á
fimtudaginn í næstu viku
yrði enn fækkað í atvinnubóta-
vinnunni um 100 manns, eða úr
200 manns niður í 100.
Jón Axel Pétursson mótmælti
harðlega þessari tillögu og fyrir
ætlun íhaldsmanna í þessa átt.
Hann hélt þvi fram, að það væri
alger óhæfa að fækka1 í atvinnu-
bótávinnunni meðan engin aukn-
ing á atvinnu yrði í bænum, ann-
aðhvort með því að byrjað yrði
á vinnu við Sogsvirkjunina að
einhverju leyti eða bæjarvinna
ykist. Hann sagði, að undanfarið
hefði vinna verið mjög stopul og
lítil og ástandið væri því ákaflega
slæmt meðal verkalýðsins, og ckki
myndi það batna, ef 100 menn
yrðu sviftir því litla kaupi, sem
þeir hafa haft í latvinnubótavinn-
unni.
Ihaldsmenn höfðu þó þessi c-
mótmælanlegu rök að engu og
samþyktu að fækka í atvinnu-
bótavinnunni um 100 manns.
Kemur sú ráðstöfun íhalds-
meirihlutans til framkvæmda í
næstu viku.
Ríkissjóðsframlag
tiivegagerðar verð-
ur ekki lækkað.
Tillaga hafði komið fram um
það nýlega á alþingi, að lækka
framlag ríkissjóðs til nýrra ak-
vega um 10°/o í sambandi við
greiðslu á kjötuppbót til bænda.
Tillaga þessi var feld á alþingi
í gær, og verður framlag ríkis-
sjóðs til vegagerða því ekki lækk-
að frá því, sem það er áætlað
á fjárlögunum fyrir yfirstandandi
ár, sem afgœidd voru á síðasta
þingi.
S t annlng
veiknr
af hjartabilun.
STAUNING forsætisráðherra.
EINKASKEYTl TIL ALÞÝÐUBL.
KAUPMANNAHÖFN í miorguin.
STAUNING forsætisraðherra er
veikur af hjartabilun.
Hann var í gær lagður inn á
„Kommunehospitalet".
Sjúkdómur hans er ekki talinn
hættulegur og sjálfur hefir hann
sagt í viðtali, að hann áliti ekki
að hann sé veikur heldur að eins
ofþreyttur.
Hann annast ráðherrastörf sín í
ruminu.
STAMPEN.
Renaudeilátinn
Skrifar Pólland undlr
Ausflnr-Evrépnsáttmála ?
♦ ——————
Pólska stjórnin vill ekki styggja
Þjóðverja.
VARSJÁ í morgun. FB.
Q amkvæmt áreiðanlegum
heimildum ræddu þeir Ant-
hony Eden og Beck um skilyrð-
in fyrir því, að Pólverjar gerð-
ist aðili að Austur-Evrópusátt-
mála, en ýmsar fregnir voru
uni þetta bornar í gær, ogmikið
um . það rætt, að síjórnmála-
horfurnar i álfunni myndu mikið
batna, ef Pölverjar hefði sitrna-
skifti í þessu máli, þótt þeir
ekki vildi fallasí á siikan sátt-
inála á nákvæmlega sama grund
velli og áður var um hann rætt.
Það er þó gengið út frá því,
samkvæmt heimildum þeim, sem
hér er stuðst við, að breyta þurfi
hinurn fyrirhugaða sáttmála, ef til
þess komi, að Pólverjar skrifi
undir hann, og þar sem þeir hafa
áður tekið afstöðu í þessu máli,
sem svipar nokkuð til afstöðu
Þjóðverja, vilja þeir ekki styggja
þá að óþörfu. Má því búast við
að á næstunni verði mjög um það
rætt og alt gert, sem hægt er til
þess að þoka samkomulagsum-
leitununum áleiðis á þeim grund-
velli, að von sé um að Austur-
Evrópu-sáttmálinn nái fram að
ganga í einhverri þeirri mynd, aö
verulegt gagn verði að.
Hins vegar er það tekið fram
af heimildarmönnum, sem standa
pólsku ríkisstjórninni nærri, að
engar bindandi umræður hafi
farið fram, heldur beri að skoða
viðræður Edens og Becks sem
undirbúningsumræður til skýring-
BECK
utanríkisráðherra Pólverja.
ar og glöggvinuar undir Stresa-
ráðstefnuna. (United Press.)
Japanir óttast brezk-
rússneska samvinnu í
Austur'Asíu.
BERLIN í morgun.
Japönsku blöðin ræða mikið um
för Edens til Moskva, og virðast
þau óttast, að Rússar og Bretar
- Frh. á 4. síðu.
RENAUDEL
LONDON í gærkveldi.
Pierre Renaudel er látinn.
Hann var fæddur í Normandie
1871, og stundaði dýralækningar
sem ungur maður. Skömmu fyrir
stríð var hann kosinn á þing, og
var'ð hann brátt framarl-ega í
flokki jafnaðarmanna. Fyrir tveim
árum varð ósamkomulag milli
hans og annara leiðtoga flokksins,
og stofnaði hann þá nýtt flokks-
brot.
Hann var einn af mælskusiu
þingmönnum Frakka. (FÚ.)
Noííð iönd st,nd,i saman í Genf.
U anrlk sráðherrar Norðurlanda gegn vigbúttað:
Nazi tastjðrnadnnar.
EINKASKEYTI
TIL ALÞÝÐUBLAÐSINS
KAUPMANNAHÖFN í miorguin.
UTANRÍKÍSRÁÐHERRA
Norðurlanda Peder Munch
utanrikisráðherra Dana, Haiv-
dan Koht utanríkisráðherra
Norðmanna og Richard Sandler
utaurikisráðherra Svía héldu
fund hér í Kaupmannahöfn i
gær, til að ræða saineiginlega
afstöðu Norðurlanda á auka-
Lerroux myndar stjérn
á Spáni án þátttöku fazistaflokksins.
Þinginu hefir verið
MADRID í morgun. FB.
Lerroux áformar, að því er
United Press hefir fregnað frá
áreiðanlegum heimildum, að
mynda ríkisstjórn með þátttöku
að eins tveggja flokka, róttæka
flokksins og óháðra.
Jafnframt er gert ráð fyrir, að
Alcala Zamora ríkisforseti fyrir-
skipi þingfrestun um þrjátíu daga
í/keið, í von um, að samkomulag-
ið milli flokkanna batni -eftir þ-etta
hlé og mestu pólitísku æsingarnar
í landinu hjaðni. (Unit-ed Press.)
frestað i 30 daga.
Fazistarnir heimtuðu
meirihluta í stjórninni.
Velasco, f-ormaður Bændaflokks-
ins, gerði árangurslausa tilraun
til þess að mynda stjórn. Hefir
Alcala Zamor-a fali'ð Lerroux, 1-eið-
toga róttæka flokksins, að gera
enn tilraun til stjórnarmyndunar.
- Tilraunir V-elasco ströndu'ðu á
því, a'ð Gil. Robles, foringi faz-
istaflokksins kaþólska, heimtaði,
að s-ex m-enn úr flokki hans skip-
uðu ráðherrastöður.
HALVDAN KOHT
h-inn nýi utanríkisráðherra Norðm.
fundi Þjóðabandalagsins i Genf
þann 15. þ. m.
Utanríkisráðh-e'rrarnir gáfu í
gærkveldi út yfirlýsingu, þar sem
þ-eir tilkynna, að þeir hafi rætt
um síðustu viðburði í hejms-
stjórnmálunum og það ástand,
sem þeir hefðu skapað. Þeir hcfðu
enn fr-emur rætt um afstöðu
Norðurlanda á aukafundi Þjóða-
bandalagsráðsins í Genf þ. 15. þ.
m., þar sem kæra Frakk-a út af
endurvígbúnaðarákvörðunum Naz
istastjórnarinnar v-erður tekin til
m-eðferðar, og möguleikana á því,
að þau gæíu þar átt einhvern þátt
í að stöðva vígbúnaöarkapphhup-
ið. STAMPEN