Alþýðublaðið - 03.04.1935, Qupperneq 4
Það kostar fé
að auglýsa, pó er pað beinn
gróðavegur, pvi að
Það kemur aftur
í auknum viðskiftum.
AIÞTÐUBIAÐI
MIÐVIKUDAGINN 3. apríl 1935.
Það kostar meir
að auglýsa ekki, pví að
pað er
að borga fyrir aðra,
sem auglýsa og draga að
sér viðskiftin.
IflilBlSa Ba»<S|
Sýnir kl. 9:
Ast í meinam
Gullíalleg Þýzk talmynd.
Aðalh’.utverkin leika:
Magda Schneider,
Olga Tchechowa,
Willi Eichberger,
Gustav Griindgens.
Bönnuð börnum innan 12
ára. -
JAPAN
Frh. af 1. síðu.
muni nú hefja samvinnu um ýms
Austur-Asíu-mál.
Blöð japönsku stjórnarinnar
segja, að Japanir muni ekki þola
nein afskiftí þessara ríkja af því,
sem gerist í Austur-Asíu, og allra
síst af viðureign Japana og Kín-
verja. Japan hefir, segir blaðið,
töglin og halgdirnar í Austur-
Asíu, og ekkert annað ríki hefir
rétt til, né er fært um, að haldn
við friðinum þaft (FO.)
Frakkland
lætnr slá gnllpeninoa
til að Ioshm við ó ót-
aðgull.
PARIS í morgun. FB.
Flandin forsætisráðherra til-
kynti í ræðu, sem hann flutti í
gær í fulltrúadeild þjóðþingsins,
að ríkisstjórnin hefði tekiö á-
kvörðun um það, að hefjast
þegar í stað handa um sláttu
gullpeninga. Verða gullpening-
arnir settir í umferð undir eins
og peningasláttan er komin í
gang.
Ákvörðunin er tekin til þess að
minka að nokkru hinar feikna
birgðir af ómótuðu gulli, sem
geymt er í Frakklandsbanka.
(United Press.)
Flandin færtrausts-
yfirlýsingu.
BERLIN í morgun.
Franska þingið samþykti í gær
með 410 atkvæðum gegn 134
traustsyfirlýsingu til Flandin-
stjórnarinnar, og var fundum
þess síðan frestað til 28. maí. (FO)
Eldri dsnza.nir.
laugardaginn 6. apríl 1935 veiða
eldri danzarnir í Oddfellow-húsinu
og byrja kl. 9 'k. — Áskriftarlisti
liggur frammi í Templarahúsinu
sími 3355, og verður að sækja
pantaða miða á laugardaginn
milli 5 og 8 síðd. í Templarahús-
ið. Engir miðar afhentir eftir
pann tíma. Gætið þess að panta
miðana í tíma, því miðafjöldinn
er takmarkaður. Hljóðfæiasveit
S. G. T. (Bernburg) spilar.
Frimerkiasvikin.
Frh. af 1. síÖu.
þessum geigvænlegu fjársvikum.
Frímerkin fundust í Wien og
voru brend undir eftirliti.
Hins vegar var, af ástœdum,
sem etin er eftir ab upplýýg
hverjar verid hafa, engin gang-
skör gerb ab pví, ab rannsaka
málib og láta pá seku sœta á-
hyrgb fyrir svikin.
En eftir stuttan thna varð það
kunnugt hér heima, að hátíðar-
frímerkin gengu kaupum og söl-
um víðs vegar úti í löndum, sér-
staklegip. suður í Austurríki og
Sviss, við miklu lægra verði held-
ur en hér. Sýnir það, að Iregar
hefir verið búið að selja allmik-
inn hluta hinna fölsuðu frímerkja,
þegar fölsunin komst upp, eða
tekizt hefir að koma töluverðu
af þeim undan við það tæki-
færi. Það var þó ekki fyrr en
þetta hneykslanlega fölsunar- og
fjársvika-mál var komið í há-
mæli á Norðurlöndum og blöð
eins og „Politiken” voru búin að
birta langar greinar með feitum
fyrirsögnum um - „fölsuð íslenzk
hátíðarfrímerki”, sem færu eins
og „flóðalda yfir Evrópu”, að ís-
lenzka stjórnin setti þá rögg á
sig, að kæra svikin fyrir lögregl-
,unni í Wien og heimta rannsókn
í málinu!
Hve mikið tjón landið hefir
beðiö af frímerkjafölsuninni er
ennþá algerlega óupplýst. En í
frétt, sem „Politiken" birti fyrir
nokkru um málið, frá Wien, er
talið, að það muni vera mjög
mikið.
Sveinn Björnsson segir,
að menn hér hafi vitað
um svikin.
„Politiken” átti, rétt eftir að Dr.
Reiter var tekinn fastur í Wien,
viðtal við Svein Björnsson sendi-
þerra í Kaupmannahöfn og spurði
hann að því, hvernig íslenzka
stjórnin hefði kðmist í samband
við Dr. Reiter út af útgáfu há-
tíðarfrímerkjanna. Og er þetta
v-iðtal prentað orðrétt hér á eftir
til frekari uppift'singa.
Sendiherrann sagði:
„Ég þekki þetta mál ekki frá
fyrstu hendi, þar eð samningarnir
um það voru gerðir beint frá ís-
landi. Ég hafði ekki einu sinni
grun um, að svikin hefðu verið
upplýst, fyrr en þér sögðuð mér
það nú.
Að svo miklu leyti, sem mér
hefir skilist, fékk íslenzka stjórnin
árið 1929 tilboð frá nokkrum
prívatmönnum í Wien, sem buð-
ust til þess að láta búa til og
prenta seríu af hátíðarfrímerkjum.
Tilboðið var mjög hagstætt og
ódýrara en hægt hefði verið að
búast við. Mér er ekki kunnugt
um, að nafn Dr. Reiters hafi verið
nefnit í sambandi við það, og mér
skilst, að hann muni hafa verið
milligöngumaður milli þeirra, sem
gerðu íslandi tilboðið, og prent-
smiðjunnar."
„Hver tók fyrstur eftir því, að
svik hlytu að hafa verið höfð í
tafli ?“
„Nokkur áreiðanleg vissa hefir
vist aldrei fengist, en þegar það
kom í ljós, að mikið var til af
frímerkjunum, varð það hljóÖ-
bært í hóp þeirra, sem við málið
voru riðnir, að eitthvað hlyti að
vera gruggugt í því. Það var ó-
mögulegt að gruna nokkurn sér-
stakan mann, en vitanlega var
rannsókn hafin í málinu. Það
hefir bersýnilega verið erfitt að
komast fyrir rætur þess, fyrst það
hefir tekið hvorki meira né minna
en fimm ár.“
„Politiken átti einnig viðtal við
forstjóra dönsku póst- og síma-
stjórnarinnar, Mondrup fram-
kvæmdarstjóra, út af útgáfu há-
tíðarfrímerkjanna, og spurði hann,
hvort danska póststjórnin hefði
nokkur afskifti haft af henni.
Forstjórinn svaraði:
„Alls engin. Það hefir verið
venja, að við prentuðum íslenzku
frímerkin, og við gerðum líka til-
boð árið 1929 um að prenta há-
tíðarfrímerkin. Og ég get ekki
neitað því, að okkur fanst það
dálítið einkennilegt, að island
skyldi hafna þessum gömlu við-
skiftasamböndum og láta prenta
frímerkin í Wien.”
Bilslfs í tæ Rveldi.
Um kl. 7% í gærkveldi varð
maður fyrir bíl í Austurstræti,
gegnt ísafoldarprentsmiðju.
Maðurinn, sem fyrir slysinu
'varð, heitir Pálmi Ingimundar-
son og er frá Vestmannaeyjum.
Bifreiðarstjórinn heitir Vilhjálmur
Jóhannesson. Ök hann bílnum RE
649, sem er eign Jóns Símonar-
sonar bakara. Varð hann einskis
var fýr .en maður gekk fyrir bíl-
inn og féll á götuna. Hemlaði
hann þegar bílinn. Fór vinstra
framhjól bílsins yfir öxl manns-
ins. Var hann þegar fluttur á
Landsspítalann. Blaðið átti i
morgun viðtal við Landsspítalann
og reýndist maðurinn ómeiddur
að kalla, að eins marinn lítillega
á síðu.
E r vélbáturinn
Knútur enn ofan~
sjávar?
Fréttaritari útvarpsins í Keflar
vik skýrir svo frá í dag: að
ekkert hafi frézt af vélbátnum
Knút síðan hann fór frá Þórshöfn
í Færeyjum fyrir' 17 dögum á
leið til Reykjavíkur. Fréttaritarinn
hafði í dag viðtal við Þórarinn
Guðmundsson skipstjóra frá Ána-
þaustum í Reykjavík.
Þórarinn hefir í mörg ár flutt
fjölda fiskibáta til íslands að
vetrinum. Spurði hann Þórarinn
hvort hann áliti að Knútur hefði
farist í hafi, og svaraði hann:
„Ég vil ekki staðhæfa neitt í
þessu máli, en ég gæti alveg eins
trúað því, að báturinn væri ofanr
sjávar. Ég hefi sjálfur lent í því
að fá vélabilun á bát á leið frá
Færeyjum til íslands, og var
langan tíma verið að koma vél-
inni í lag. Reyndi ég að sigla
bátnum til hafnar, en það tókst
ekki, og þá loksins er við fengum
vélina í lag, hafði bátinn rekið
norður fyrir Færeyjar.” Þórarinn
segir, að þessir litlu bátar séu
engin siglingaskip, vegna þess
hve stuttir þeir eru og seglin
lítil, og sin reynsla sé sú, að verði
vélbilun, þá séu þeir eins og rek-
ald á hafinu. Þannig vildi til síð-
ast á stríðsárunum, að bátur á
leið til íslands varð fyrir vélbilun
og hraktist 14 daga áður en
danska eftirlitsskipið Beskytteren
kom honum til hjálpar.
I DAG
Næturlæknir er í nótt Þórður
Þórðarson, Eiríksgötu 11. Sími
4655.
Næturvörður er í nóttt í Lauga-
vegs- og Ingólfs-apóteki.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 3 st.
Yfirlit: Hæð fyrir norðan land
og önnur fyrir sunnan land. Otlit:
Breytileg átt og hægviðri. Dálítil
rigning í dag.
ÚTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikár.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfréttir.
20,00 Fréttir.
20.30 Föstumessa í dómkirkjunni
(séra Bjarni Jónsson).
21.30 Tónleikar: a) Fyrsta hljóm-
kviðan eftir Brahms; b)
Kvöldlög (plötur).
Föstumessa
er i Hafnarfjarðarkirkju kl. 8V2
í kvöld. Séra Garðar Þorsteinsson
predikar.
Skipafréttir.
Gullfoss kom að vestan og
norðan i nótt. Goðafoss fer vestur
og norður annað kvöld. Brúarfoss
er á leið til Vestmannaeyja frá
Leith. Dettifoss var væntanlegui
til Hamborgar í dag. Lagarfoss er
í Kaupmannahöfn. Selfoss fór frá
Antwerpen i gær áleiðis til Lon-
don. Dronning Alexandrine er á
Akureyri í dag. ísland er í Kaup-
mannahöfn.
Höfnin.
Lyra kom í nótt fiá útlöndum.
Fisktökuskip kom frá Akranesi í
morgun.
Togarinn
Kári kom í nótt af veiðum með
106 tunnur.
Ármenningar!
Fimleikaæfingar í kvöld verða
þannig: 1. fl. karla k!. 8 á venju-
legum stað, kl. 7 Old Boys, kl. 8
íslenzk glíma og kl. 9 frjálsar í-
þróttir (hlaupaæfing).
Nafnlausi maðurinn
heitir myndin, sem Nýja Bíó
sýnir um þessar mundir. Sýnir
hún enskan stjórnmálamann, sem
er góður ræðumaður en drykk-
feldur úr hófi fram, þannig, að
hann mætir ekki þegar mest ligg-
ur við. Hittir hann þá frænda sinn^
sam er nauðalikur honum, og fær
hann til að mæta fyrir sig í þing-
inu. Siðan deyr hinn upprunalegi
þingmaður og frændinn tekur við
stöðu hans og konu. Myndin er
mjög skemtileg og fjörug.
Bæjarstjórnarfundur
verður haldinn á morgun. Verð-
ur þar m. a. rætt um ráðstöfun
borgarstjóraembættisins og vinnu-
miðlunarskrifstofu og kosningu
tveggja varamanna í stjórn skrif-
stofunnar.
Föstumessa
í fríkírkjunni í kvöld kl. 8V2. Séra
Árni Sigurðsson predikar.
Landið kaupir Skálholt.
í gæh var samþykt á fundi sam-
einaðs a’þingis íþingsályktunartil-
lögar um að kaupa hið gamla
biskupsseturVSkálholt í Biskups-
tungum og hverinn „Grýtu“ í Öl-
fusi.
Danzskóli
Helene Jónsson og Egild Carl-
sen hefir nemendasýningu og
lokadanzleik að Hótel Borg 10. þ.
m.
Föstumessa
er í dómkirkjunni í kvöld. Séra
Bjarni Jónsson predikar.
Rökstudda dagskráin,
sem þeir St. J. St. og J. J. báru
fram um að vísa frá hinni fáránlegu
tillögu Sig. Kr. uniþjöðaratkvæða-
greiðslu, var samþykt á fundi sam-
einaðs alþingis í gær.
Theodór Ámason
fiðluleikari hélt síðastliðið
sunnudagskvöld fjölbreytta söng-
skemtun á Ölafsfirði í kirkj-
unni. Aðalþáttur þessa söng-
kvölds var kórsöngur undir stjórn
Theodórs. Hefir hann æft hér í
vetur tvo söngflokka og er þeim
nú vaxinn svo fiskur um hrygg
að ráðgert er, að þeir fari á næst-
unni til Akureyrar og haldi þar
söngskemtun. (FÚ.)
Suðin
kom til Keflavíkur frá Noregi
í gær með efni í fisktrönur. Skil-
ar hún þar hálfum farminum og
verður honurn skift á veiðistöðvar
á Suðurnesjum. (FÚ.)
Skákpingið.
Sjötta umferð í fyrsta flokki
Skákþings Norðurlands fór þann-
ig: Guðbjartur vann Möller, Jón
Sigurðsson vann Guðmund, Stef-
án vann Jón Sörenson, Haukur
vann Þóri, Sveinn 0 g Eggerz
höfðu biðskák. Hæstu vinningar
í öðrum flokki að loknum átta
umferðum eru þessir: Gunnlaugur
hefir 6, Hjálmar 6, Júlíus 5V2-
Unnsteinn 5V2 Ragnar 5. (FÚ.)
Línuveiðarinn Aldan
kom til Stykkishólms af veið-
um í fyrrinótt með góðan afla
180 skippund, og er afli hans alls
orðinn um 200 smálestir. (FÚ.)
Á Hornafirði
hefir verið mjög aflatregt að
undanförnu og beituleysi. ! fyrra-
dag kom Birkir með beitusíld frá
Akuneyii. Loðna veiðist dálítið á
firðinum. 1 gær réru allir bátar
afli var frá 4—6 skippund. (FÚ.)
Bólusetning gegn barnaveiki.
Börn Austurbæjarskólans, sem
eiga að bólusetjast gegn barna-
veiki eiga að mæta á morgun eins
og liér segir: Kl. 8 f. h. 11 ára
bekkir B, C og E. Kl. 9 11 ára
bekkir D og F. 10 ár bekkur A.
Kl. 3 e. h. 10 ára bekkir B, C og
D. KI. 4 e. h. 10 ára bekklr E, F
og G. Kl. 5 e. h. 9 ára bekkir A,
B 1 ig C. Kl. 6 e. h. 9 ára bekkir
D, E. og F.
Bólusetning gegn barnaveíki.
Þeir, sem æskja bólusetningar
gegn barnaveiki á öðrum en
skólabörnum, eru vinsaamlega
beðnir að hringja í síma 4434 kl.
9—12 f. h. næstu daga og panta
bólusetningu.
Ný|s mé
Nafnlansi maðnr-
ÍIjö.
Amrrísk tal- og tón-mynd,
samkvæmt hinni víðfrægu
skáldsögu Masqucrader.
Aðalhlutverkin leika:
Elissa Landi og
Ronald Colman.
Aukamynd:
MICHEY MOUSE
teiknimynd.
Dauzskéli
Helene Jónsson.
Egild Carlsen.
Nemendasýning (með 150
nemendum) og iokadanz-
leikur 1935, miðvikudaginn
10 apríl, kl. 8—3 að Hótel
Borg.
Aðgöngumiðar á kr. 2,50
(alt i nifalið) fást daglega
á Skólavörðustig 123 og
má panta í sima 3911.
Pantaðir aðgöngumiðar
óskast sóttir fyrir 4. april.
Einkatimar fást á hverjum
degi i aprílmánuði.
Fiuttur á Uvertisgðtu 36.
Valdimar J. ilfsteln,
klæðskeri.
Unglingspiltur óskast nú pegar
að gaiðyrkjustöðinni í Fagra-
hvammi. Getur fengið að læra
garðyrkju ef vill. Uppl. í Flóru,
Austurstræti 1.
Flantukatlar
Blikkfötur
Alum. flautukatlar
Kaffikönnur, emaii.
Fiskspaðar, alum.
Brauðristari
Eldhússpeglar
Búrvigtar
Bónkústar
Strauboltar
1,00
2,25
4,00
3,00
1,00
1,50
1.50
6.50
10,50
13,00
Aluminiumpottar, emailerað-
ir pottar, pönnur, borðbún-
aður, rafmagnsstraujárn, raf-
magnsperur, vartappar.
Sig. Kjartansson,
Laugavegi 41.
Jarðarför Helgu Þórðardóttur fer fram fimtudaginn 4. þ. m. frá
dömkirkjunni og hefst með bæn á heimili mínu kl. 1 V*.
Halldóra Þórðardóttir, Smiðjustíg 11.
Gnla bandið bezt
og édýrast. að eins krónnr 1,30 kílóil
Þetta giða smjörliki fæst í Kaupfélagi Reykjavíkur.