Alþýðublaðið - 09.12.1926, Qupperneq 1
Alþýðublaðlð
Gefið út af Alþýðuflokknunt
1926.
Fimtudaginn 9. dezember.
287. tölublað.
Erlend símskeytí.
Khöfn, FB., 8. dez.
Bretar leyfa kolaútflutning.
Frá Lundúnum er símaö, að
framvegis verði engar hömlur
lagðar á útflutning kola, og sé
nú eigi nauðsynlegt að fá sérstök
útflutningsieyfi á neinum kolum
nema gljákolum.
ítalir og Jugoslavar.
Frá Berlín er símað, að stjórnin
í Jugo-Slavíu hafi sagt af sér,
þar eð ógerningur sé fyrir hana
að halda áfram hinni sömu
vinveittu stefnu sinni; í garð ít-
ala, vegna samnings þess, er ít-
alir og Albanir hafa gert sín á
milii.
Vinátta með Rússum og
Þjóðverjum?
Frá Berlín er símað, að Tjitje-
rin sé á ferðalagi í T>ýzkalandi, og
virðist tilgangurinn með ferðalagi
hans vera sá, að efla vináttu á
milli Þjóðverja og Rússa. Kvað
hann haida ])ví fram, að enska
stjórnin sé að reyna til að koma
á bandalagi í Vestur-Evrópu gegn
Rússum.
Aívinnubæíiimar.
Þegar atvinnubæíur stjórnar-
Innar eru komnar í verk, starfa
þar 25 atvinnulausir, og ef bæjar-
stjórnin veitir 50 atvinnu, þá eru
það 75 manns, sem hrifnir hafa
verið úr gini bráðasta hungursins,
og kann sumum að virðast pað
vel gert og drengilega. En gyll-
ingin fer þó nokkuð af þeirri
góðmensku, þegar þess er gáð,
að atvinnulausir menn í bænum
eru sjálfsagt alls um 750, svo að
það er ekki nema einn tíundi
hluti, sem náðarinnar verður að-
njótandi. Miskunnsemi hins op-
inbera er eftir þessum bókum 90o;»
of lítil, og er það því að því leyti
minna en hálfur maður. Hinu op-
inbera hlýtur að vera svipað inn-
anbrjósti, þegar það er að tína
tíunda hvern mann úr hinum
sveltandi hópi, eins og bónda, sem
í sláturtíðinni er að velja úr fénu
sínu, hvað sé á vetur setjandi. Það
hlýtur að vera ógeðsleg tilfinn-
ing, þegar um menn er að ræða.
flTengáamamma“
Alþýðusýningin í kvöld verður
síðasta sýning leiksins hér að
þessu sinni.
Frá sambandsþinginu.
Svohljóðandi þingsályktunartil-
laga var sanrþ. í einu hljóði, eftir
tillögum laganefndar:
7. þing Alþýðusambands Islands
skorar á sambandsstjórn þá, er
valin verður nú á þinginu, að
skipa nefnd manna hæfiiega
löngum tíma fyrir næsta sam-
bandsþing, er hafi það nreð hönd-
um að útvega fulltrúum þeim,
er næsta sambandsþing sækja ut-
an af landi, ódýra eða ókeypis
dvöl hér í bænum, á meðan sam-
bandsþing stendur yfir.
Frá ftalfiu.
Hann er sarnur við sig enn þá
hann signor Mussolini. Fyrir
skömmu bannaði hann kirkju-
stjórnunum að láta bóka þau nöín
skírnarbarna, sem kæmu i bága
við „alment skipulag, stofnanir
ríkisins eða góða siðu.“ Ástæð-
an er sú, að margir foreidrar láta
börn sín bera nöfn ýmissa for-
vigismanna frjálslyndu flokkanna.
ítalir eiga nýlendu eina á
Rauðahafsströnd í Afríku. Þar
hafa nokkrir sænskir trúboðar
dvaiið um skeið og stofnað þar
og rekið skóla. .Kaþólskum klerk-
um hefir lengi verið illa við þá
starfsemi, enda er öll mentun al-
þýðu eitur í þeirra beinum, og
nú hafa þeir fengið Mussolini til
þess að skipa að loka skólunum,
og sumir kennaranna iiafa verið
hneptir í varðhald.
ítalska blaðið „Corriere della
Sera“ birti nýlega lagafrumvarp,
sem Mussolini hefir lagt fyrir
þingið. Þetta er þar 6. grein: „Sá
borgari eða útlendingur, sem er-
lendis hefir gert sig sekan í ein-
hverju því, sem tilgreint er í
síðustu grein (þ. e. a. s. hefir
unnið að því, á hvaða hátt sem
er, að útbreiða ósannar, ýktar eða
hlutdrægar fréttir eða frásagnir,
sem snerta hið innra ástand ít-
alíu o. s. frv.), skal hegningu
hljóta eftir því, sem þessi lög
ákveða.“ — Minsta hegning er 5
ára fangavist, en getur vel verið
líflát, ef sakir þykja miklar. Og
þegar þess er gætt, að svartliðar
úrskurða sjálfír, hvað eigi að telj-
ast „ósatt, ýkt eða hlutdrægt",
þá er ekki ólíklegt, að frjálslynd-
um mönnum og sannorðum þætti
ilt að eiga mál sitt fyrir þeim
rétti.
Til viðbótar frásögn Alþbl. á
föstudaginn um „frægðarverk"
Mussolinis má geta þess, að svart-
liðar hafa ráðist á 200 hús í Mila-
no, skemt alt innan stokks og
jafnað sum við. jörðu. Margir
helztu menn frjálslyndu flokkanna
eru horfnir með öllu, og leikur
grunur á, að þeir hafi sætt sömu
örlögum og Matteotti. Einn þeirra
er vefaraforinginn Sthiawellos.
Svipað er háttalagið í Feneyj-
um. Þar hafa verið reistir upp
fjölda-margir, nýir gálgar. Til
hvers? Marinelli, einn af aðal-
mönnum Matteotti-morðsins, ræð-
ur þarna mestu.
Þessu líkar eru fréttirnar ails
staðar að úr ítalíu: Það er ekki
að furða, þótt „Mgbl.“ tali unr
bjargráð til viðreisnar italíu. En
hvernig lízt íslenzkum verkalýð
á þau bjargráð? Halda þeir, að
svipuð stjórn hér heima yrði okk-
ur greiðasta leiðin „út úr ógöng-
unum“?
Það er. ekki að ósekju, að
stjórnmálagarpur Suðurslava, Ste-
fán Raditsj, sagði nýlega í ræðu,
að allur heimurinn hefði skönnn á
ítalíu, enda væri hún nú miklu
verri en Rússland hefði verið á
dögum keisarastjórnarinnar, og er
þá langt jafnað.
Hvenær skyldi „Mgbl.“, þessi
auðmjúki aðdáandi Mussolinis,
viðurkenna opínberlega þessi aug-
ljósu sannindi?
Banniagabrlótar dæmdir.
■ Upp úr herferð lögreglunnar í
haust á hendur áfengisbannlaga-
brjótum og leynivínsölum hafð-
ist það, að þessir menn hafa ver-
ið kærðir og dæmdir fyrir slíkt
athæfi:
Ölafur Lárusson Fjeldsted,
Tage Möller, Franz Andersen,
Sigurður Berndsen, Bergstaða-
stræti 8A, Guðrún Jónsdóttir,
Bergþórugötu 11, Ásgrímur Jóns-
son, Jósef Sigurðsson, Lækjartorgi
2, Axel Daldstedt, veitingamaður
í kaffihúsinu „Fjallkonan", Ras-
musseri í „Hamri“, Ingvar Sig-
urðsson, Vegamótastíg, Guðmund-
ur Jónsson, Bergstaðastræti 53,
Hjörleifur Þórðarson frá Háisi,
Klapparstig 38, Hjörleifur, sonur
hans (fyrir aðstoðun við ólög-
lega áfengissölu), Helgi Nikulás-
son, Hveríisgötu, Hinrik Alne,
bryti á skipinu „Bru“ og Þórar-
inn Guðmundsson, Laugavegi 111.
Gísli Björnsson, Skíðastöðum, var
dæmdur fyrir ölsölu.
Hjá sumum þessara manna var
nm ítrekað bannlagabrot að ræða,
en aðrir þeirra voru nú dæmdir
í fyrsta sinni.
i Heillrlgt, bjart hðrunA;
ei* eStirsóknarverðapa
en Sriðleikurinn einn. ;
Menn geta fengið fallegan litar- ;
< hátt og bjart hörund án kostnað-
arsamra fegrunar-ráðstafana. Til ;
; þess þarf ekki annað en daglega •
umönnun og svo að nota hina dá-
samlega mýkjandi og hreinsandi ;
í TATOL-EIAISOSAiPU, [
! sem er búin til eftir forskrift ;
; Hederströms læknis. í henni eru
I eingöngu mjðg vandaðar olíur, f
svo að í raun og veru er sápan *
alveg fyrirtakshörundsmeðal. ►
__ ►
►
< Margar handsápur eru búnar til ;
úr lélegum fituefnum, og visinda-
j legt eftirlit með tilbúningnum er I
ekki nægilegt. Þær geta verið
hörundinu skaðlegar, gert svita- :
< holurnar stærri og hörundið gróf- ;
< gert og Ijótt. — Forðist slikar I
j sápur og notið að eins j
< TATOL-HAMBSAPU.
< [
j Hin feita, flauelsmjúka froða sáp-
< unnar gerir hörund yðar gljúpara,
| skærara og heilsulegra, ef þér
notið hana viku eítir viku.
j tatol-hanbsapa
< fæst hvarvetna á íslandi.
f a*T Verð kr. 0,75 stk. “fgd
J Heildsölubirgðir hjá
I I.Brpjólfssos!$IvÆ,an
| Eteykjavák.
<
<
Stækkaðap myndir
eftir gömlum myndum, .filmum og
plötum, er ávalt mjög
kærkomin jélagjöf,
Athugið þetta ogfinnið migaðmáli.
Cas*l ÖlaSssoia, ljósm.
Lækjartorgi 2 (Thomsenshús).
Sími 1413. Sími 1413.
Mme G. le Seime
heldur hljómleika í Nýja Bió
í siðasta sinn í kvöld kl. 7 7s>.
Operuhlutverk. Niðursett verð.