Alþýðublaðið - 10.03.1920, Side 1
Alþýðublaðið
Grefið tit af A1 þýð uí 1 okknum.
1920
Miðvikudaginn 10. marz
55. tölubl.
fri Ungverjum.
Khöfn, 2. marz.
Frá Búdapeat — höfuðborg Ung-
verjalands — er símað, að Hoothy
admíráll sé orðinn ríkisstjóii og að
Huszar, sem var forsætisráðherra,
hafi lagt niður völd.
Khöfn, 4. marz.
Frá London er símað, að rúm-
enski forsætisráðherrann segi, að
i>að, að Hoothy aðmíráll sé kom-
inn til valda, sé tákn þess, að
vegur Hobaborgarættarinnar (keis-
araættarinnar austurriksku) sé að
aukast. Karl, fyrverandi keisari,
sem nú er í Sviss, sé í stöðugu
sambandi við fylgismenn sína í
Ungvérjalandi, og ef til vill verði
sonur hans, barnungur, útnefndur
konungur.
Vér moriintfjar.
Hið nýja leikrit Guðmundar
Kamban, með þessu nafni,
fær ágæta móttöku.
Frá Khöfn er símað 3. þ. m.
(skeytinu hefir seinkað sökum
símabilana), að hið nýja leikrit
Guðmundar Kamban, Vér morð-
ingjar, hafi verið leikið í fyrsta
skifti kvöldinu áður, á Dagmar-
leikhúsinu, og að í því felist ágætis
sálarfræðilegar athuganir um af-
brýðisemi milli hjóna, sem þó
nlskist.
Leikendur léku hlutverk sín
ágætlega, en aðal hlutverkin höfðu
Johannes Meyer og frú Clara Wieth.
Blöðin hæla öll leiknum, einkum
Serlinske Tidende og Nationaltid-
ende, sem hrósa leiknum sérlega
^hikið og segja að hvorttveggja
^áfi heiður af honum, hinn stór-
oáfaði höfundur og leikhúsið.
Lögskipaður kviðdómur um
kaupgjald.
Khöfn 4. marz.
Frá París er símað, að stjórnin
tilkynni að hún ætli að leggja
fyrir þingið lög, sem fyrirskipi
kviðdómsúrskurð um allar kaup-
kröfur.
3njlúenzulán.
Bærinn á að lána fátæku fólki
nauðsynjavöru meðan
Inflúenzan geisar.
Eins og nærri má geta, eru
margar fjölskyldur í bænum, sem
ekki hafa meiri peningum á að
skipa en það, að þær geta varla
keypt meira af nauðsynjavörum
en til daglegra þarfa; og sumar
eru jafnvel ekki svo staddar, að
þær geti ætið keypt á hverjum
degi það, sem þær nauðsynlega
þurfa á að halda, þegar allir eru
frískir á heimilinu, hvað þá þegar
veikindi eiu á ferðum.
Eins og nú er kunnugt orðið,
er inflúenzan farin að breiðast út
um bæinn, og mönnum er ráðlagt
að byrgja sig nú vel að kolum og
olíu, ásamt öðrum nauðsynjum.
En hvernig eiga þeir að byrgja
sig, sem enga peninga hafa? Eiga
þeir að deyja drottni sínum, vegna
eldsneytisskorts og olíuleysis?
Vissulega ekki. Bœrinn á þegar í
stað að gera þær ráðstafanir, að allir
geti fengið lánaðan hæfilegan
skamt kola og olíu, ásamt helstu
nauðsynjavörum, svo enginn þurfi
að deyja úr inflúenzu vegna þess,
að bæjarfélagið geri ekki skyldu
sína. En í þessu falli er sjálfsagt
að bærinn geri alt, sem unt er til
þess, að ekki hljótist að óþörfu
tjón af inflúenzunni.
Skrifstofu, sem annaðist þetta,
ætti sem allra fyrst að setja á
stofn á hentugum stað. Þangað
leita svo þeir, sem þarfnast bjálpar
í þessum efnum. Og engin tregða
ætti að vera á því, að mönnum
sé trúað til þess, að segja rétt frá
ástæðum sínum. Enda mundi
enginn að ástæðulausu leyta á
náðir skrifstofu þessarar. Lánið
mætti á engan hátt telja til sveit~
arstyrks. Vonandi bregða þeir, sem
hlut eiga að máli, fljótt við og
koma þessu í kring.
Kvásir.
Síðasta tilraun F*jóðverja tit
þess að halda Suður-Jótlandi.
Khöfn 2. marz.
Flensborg Avis segir, að 200
nafnkunnir menn, sem íulltrúar
fyrir allar stéttir manna í Slésvík-
Holstein, hafi í gær, á fundi, er þeir
hafi haldið í Flensborg, heimtað sjálf-
stjórn fyrir Slésvík Holstein. Vora
þrír fulltrúar kosnir til þess að
fara til Berlínar, til þess að til-
kynna þýzku stjórninni þessa kröfu..
Danir í Flensborg álíta að þetta.
sé kosningabrella frá Þjóðverja
hálfu, sem eigi að hafa áhrif núna
rétt áður en atkvæðagreiðslan fer
fram í öðru kjörhéraði Suður-
Jótlands.
Frá Berlín er símað, að prúss-
neski forsætisráðherrann hafi sagfc
að Flensborgar-samþyktin sé einn
þáttur í sjálfstjórnarviðleitni prúss-
neskra landshluta, en hér sé alls
ekki að ræða um skiinaðarhreyf-
ingu, eða skilnaðarósk að hálfu
Slésvík-Holstein.
Sjálfstjórn irlands.
Khöfn 2. marz.
Ensku blöðin taka fálega frum-
varpinu um sjálfstjórn íra.