Alþýðublaðið - 23.12.1926, Blaðsíða 3
ALEÝÐUBLAÐIÐ
3
Una daginn og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Magnús Pétursson,
Grundarstíg' 10, sími 1185.
Brauðsölubúðum
verður lokað kl. 6 annað kvöld
og á sama tíma 2. jóladag. Á
jóladaginn verða þær að eins opn-
ar kl. 9—11 f. m.
„Dagsbrúnar“fundur
verður ekki í kvöld.
Verðlaunasamkeppni um til-
löguuppdrátt
að stúdentagarðinum býður stú-
dentagarðsuefndin öllum Islend-
ingum að taka þátt í. Sjá aug-
lýsingu!
Þula
eftir frú Theódóru Thoroddsen
er nýkomin út, myndum prýdd.
Hefir Björn Björnsson dregið
myndirnar og skrifað letrið, en
Prentsmiðjan Gutenberg h. f.
prentað.
Þorláksmessa
heitir þessi dagur af því, að
hann er dánardagur Þorláks bisk-
ups Þórhallssonar. Hann andað-
ist árið 1193. Síðar varð dagurinn
í kaþólskum sið messudagur „hins
heilaga Þorláks“.
Þenna dag
árið 1905 andaðist Páll Ólafs-
son skáld.
„Gangleri"
heitir tímarit um guðspeki og
andleg mál, sem 1. hefti 1. árs
þess er nýkomið út. Ritstjóri er
séra Jakob Kristinsson, forseti ís-
landsdeildar guðspekifélagsins. I
ritinu eru myndir af Jóni heitn-
um sagnfræðingi Aðils og Sig.
Kristófer Péturssyni sál. rithöf-
undi og greinir eftir þá báða um
guðspekileg efni. Auk þess eru
greinir eftir ritstjórann o. fl. og
jkvæði i ritinu, og er frágangur á
því vandaður.
Togararnir.
Af veiðum kom „Þórólfur" í gær
með 1100 kassa, „Tryggvi gamli"
með um 1800 kassa, hlaðinn, og
„Gulltoppur" með um 1400, báð-
jr í nótt, og „Ólafur“ með 1400
kassa í rnorgun. „Gulltoppur" fór
í morgun til Englands.
„Iðunn“,
X, 4, er nýkomin út, og hefst
þetta hefti á kvæði eftir Einar
Benediktsson: „Sterkur strengur".
M. a. er þar og erindi annars
ritstjórans, séra Eiriks Albertsson-
ar, er hann flutti á presta- og
sóknarnefnda-fundi i haust, smá-
saga: „Rauða rúmið“ eftir Guð-
brand Jónsson. Meðal ritdóma er
einn um „Rök jafnaðarstefnunn-
ar“ og þar bent á, hver fengur
íslenzkum bókmentum er að þeirri
bók.
Tilkynning
frá Bakarameistarafélagi Reykjavíkur.
Lokunartími brauðsölubúðanna verður sem hér
segir: Aðfangadag lokað kl. 6 e. m. Jóladag
að eins opið frákl. 9 —11 f. m. Annan jóladag
lokað kl. 6 e. m. Gamlársdag lokað kl. 6 e. m.
Nýársdag að eins opið frá kl. 9 — 11 f. m.
Alþýðubrauðgerðln
lokar biíðum sinum kl. 6 á aðfangadags"
kvöld. Opið 9-11 árd. á jáladaginn og 9-6
síðd. á annan í jólum.
Um jölin verða mjólkurháðir okkar opnar:
Á aðfangadag jóla til 5 e. h.
- 1. jóladag frá kl. 9 /2-ll /2 f. h.
- 2. jóladag frá kl 9 f. h. til 2. e. h.
Mjólkurfélag Reykjavikur.
Veðrið.
Hiti mestur 8 stig, minstur 1
stigs frost. Hæg vestlæg átt og
logn. Loftvægislægð og úrkoma
sennilega að nálgast úr suðvestri.
0tfit: Suðlæg og vestlæg átt, vax-
jhndi hér við Suðvesturlandið, og
verður sennilega allhvöss suðaust-
anáft í nótt, þokusúld í dag og
hlákuveður í nótt. Þíðviðri víðast
iUm landið eða alls staðar. Þurt á
Vesturlandi.
Jólamessurnar.
í dómkirkjunni: Á aðfangadags-
kvöld kl. 6 séra Bjarni Jónsson.
Á jóladaginn kl. 11 f. m. Jón
biskup Helgason, kl. 2 séra Bjarni
Jónsson (dönsk messa), kl. 5 séra
Friðrik Hallgrímsson. Á 2. jóla-
dag kl. 11 séra Bjarni Jónsson,
kl. 5 Sigurbjörn Á. Gíslason guð-
fræðingur. — 1 fríkirkjunni: Á
aðfangadagskvöld kl. 6 séra Ámi
Sigurðsson. Á jóladaginn kl. 2
séra Árni Sigurðsson, kl. 5 Har-
aldur prófessor Níelsson. Á 2.
jóladag kl. 5 séra Friðrik Friðriks-
son. — f Landakotskirkju: Á jóla-
daginn kl. 6, 61/2, 7, 8 og 81/2 f. m.
lágmessur, kl. 9 f. m. biskups-
messa (pontificalmessa), kl. 6 e.
m. biskupsguðsþjónusta. Á 2. jóla-
dag kl. 9 f. m. hámessa, kl. 6
e. m. guðsþjónusta með predikun.
— í Aðventkirkjunni: Á aðfanga-
dagskvöld kl. 6, á jóladaginn kl. 8
e. m. og 2. jóladag kl. 8 e. m.
Séra O. J. Olsen predikar ,í öll
skiftin. — Fyrir Sjómannastofuna
verður haldin guðsþjónusta í
Nýja Bíó á aðfangadagskvöld kl.
6. Séra Friðrik Friðriksson predik-
ar. Allir velkomnir. — / Hafnctr-
firdi: f þjóðkirkjunni: Á aðfanga-
dagskvöld kl. 6 og á jóladaginn
kl. 1 séra Árni Björnsson. Á 2.
jóladag kl. 1 séra Friðrik Friðriks-
son. — f fríkirkjunni: Á aðfanga-
dagskvöld kl. 7 og á jóladaginn
kl. 2 séra ólafur Ólafsson. — í spí-
talakirkju kaþólskra manna: Á
jóladaginn kl. 9 f. m. söngmessa,
kl. 6 e. m. guðsþjónusta með
predikun. Á 2. jóladag kl. 9 f. m.
söngmessa, kl. 6 e. m. guðsþjón-
usta með predikun. — Á Vífils-
stödum messar séra Árni Björns-
son á jóladaginn kl. 10 f. m. —
Á Bessastöðum: Á aðfangadags-i
kvöld kl. 8 séra Á. B. — Á Kálfa-
tjörn á Vatnsleysuströnd: Á 2.
jóladag kl. 12 séra Á. B.
Jarðarför
Kristrúnar sálugu Jónsdóttur var
fjölmenn, og fylgdu margar fé-
lagssystur hennar í verkakvenna-
félaginu „Framsókn" líkl hennar
til grafar. Séra Bjarni Jónsson
flutti húskveðju og líkræðu í
dómkirkjunni.
Búðir
verða opnar í kvöld til mið-
nættis, en á morgun til kl. 4.
„Eimreiðin“,
4. hefti, er komin út nýlega.
Af efninu má nefna þetta: „Eli-
vogar", kvæði eftir Einar Bene-
diktsson, „Sálarlíf konunnar", eftir
S
frú Aðalbjörgu Sigurðardóttur,
„Fiskiróður fyrir 40 áruin“ eftir
Odd Oddsson (með teikningum
eftir Finn inálara), Lækninga-
úndrin í Lourdes" eftir ritstjór-
ann og „Fundabók Fjölnisfélags“.
Snjör
er að niestu horfinn hér í
Reykjavík, og lítur út fyrir „rauð
jól“.
Listaverkasafn Einars Jöns-
sonar
verður opið 2. jóladag kl. 1—3.
Heilbrigt, bjart bðrnnd
er eftirsóknarverðara
en fríðleikurinn einn.
Menn geta fengið fallegan litar- ;
; hátt og bjart hörund án kostnað- [
: arsamra fegrunar-ráðstafana. Til ;
; pess parf ekki annað en daglega í
umönnun og svo að nota hina dá- ;
samlega mýkjandi og hreinsandi •
TATOL-HANDSAPU,
: sem er búin til eftir forskrift ;
Hederströms læknis. í henni eru !
! eingöngu mjðg vandaðar olíur, ;
• svo að i raun og veru er sápan !
! alveg fyrirtakshörundsmeðal.
___
►
! Margar handsápur eru búnar til ;
úr lélegum fituefnum, og visinda- !
! legt eftirlit með tilbúningnum er ;
; ekki nægilegt. Þær geta verið [
; hörundinu skaðlegar, gert svita- ;
; holurnar stærri og hörundið gróf- •
i gert °g IJótt. — Forðist slikar :
; Wsápur og notið að eins
| TATOL-HANDSAPU.
f Hin feita, flauelsmjúka froða sáp- ;
unnar gerir hörund yðar gljúpara, í
: skærara og heilsulegra, ef pér ;
notið hana viku eftir vikú.
►
; TATOL-HANDSAPA & I.
; fæst hvarvetna á íslandi.
; iMp- Verð kr. 0,75 stk. i
; Heildsölubirgðir hjá
j I. Brynjólfsson & Kvaran
Reykjavík.
Verzlið Við Harald
i? ■> ' ■ í
mm
Handtaska með 34 kr. í týnd-
(ist í morgun á Vesturgötu, á milli
nr. 25 (Doktorshúss) og nr. 30.
A. v. á.