Alþýðublaðið - 28.12.1926, Blaðsíða 3
ALEÝÐUBLAÐIÐ
3
ír efnaðir menn í héraðinu, ein-
tömir fátæklingar. Ef hér kæmu
ekki við og við rausnarlegir ferða-
menn, eins og herrann, myndum
við ekki komast af. Útgjöldin eru
svo mikil.“ Síðan tók bóndi henn-
ar við og reyndi að narra sem
mest fé út úr ókunna manninum,
sem honum heppnaðist pó ver
en hann hafði vonast til.
Frásögnin um dvöl Jeans Val-
jeans í veitingakránni „Liðþjálf-
anum frá Waterloo" er ágæt lýs-
ing á þeim, sem skríða fyrir auðn-
um, en níðast á lítilmagnanum.
Cosetta litla átti ekki upp á pall-
borðið hjá veitingahjónunum. Hún
var rekin til að rogast langa leið
með gríðarstóra vatnsfötu, jafnt
þó að náttmyrkur væri á, og bar-
in hve nær sem tækifæri gafst.
„Þessi betlarastelpa hefir dirfst að
snerta á brúðu barnanna ... með
andstygðar krumlum sínum,“
sagði „húsmóðirin". Þegar svo ó-
kunni maðurinn, sem enginn pekti,
kom inn aftur rétt á eftir og hélt
á stórri brúðu í höndunum, sem
allar telpur bæjarins höfðu ver-
ið að skoða allan daginn og hafði
fundist dásamleg, setti hana fyrir
framan Cosettu og sagði: „Þessa
máttu hafa,“ þá var þetta svo ó-
vanalegt, að hún snéri sér bráð-
lega undan og faldi sig inni í
skotinu undir borðinu alveg upp
við vegg og leit út eins og hún
þyrði ekki að draga andann. Þó
fanst henni „eins og hún sæi sól-
ina“ þegar hún fékk þessa óvæntu
gjöf, sem var fegurri en hana
hafði nokkru sinni dreymt um,
en hún þorði fyrst í stað ekki að
snerta hana. —
Þetta hefti er að vísu ekki eins
fjölskrúðugt af sálarlífsmyndum
og hið fyrsta, en margt er þó
mjög vel sagt í þessum þætti.
Gudm. R. Ólafsson
úr Grindavík.
Læknir deyr af radíum-
eitrun.
Hinn nafntogaði radíumfræð-
ingur, dr. Menard, forstöðumaður
radíumdeildar Cochin-spítalans í
Paris, andaðist fyrir skömmu, 54
ára gamall. Hafði hann orðið fyr-
Sr radíumeitrun.
Vetrarbraut
heitir bök, sem Ásgeir Magnús-
son kennari hefir ritað.
Einn er sá lcostur við bók þessa,
að efni hennar er skift í smágrein-
ar. Hver grein er tölusett og
hefir sérstaka fyrirsögn.
Þessi skifting er lesendum
þægileg, þar sem efni bökarinn-
ar er allþungt.
Aðalefni bókarinnar er sem hér
íSegir:
I. Sólkerfíð: Yfirlit. Sólin. II.
Jafnvœgi: Aðdráttarafl og geisla-
spyrna. III. Sólstjörnur: Yfir-
lit. Æfiskeið. Heimsendir. IV.
Stjörnuríki: Fjölstyrni. Stjörnu-
pokur. Sveippokur. V. Djúpið
mikla: Vetrarbrautin. Rúmið.
Þessir V kaflar skiftast í 91
grein. Hver grein hefir sína fyrir-
sögn.
Fyrsti kafli ritsins endar á þess-
um orðum:
„Enn þá lifir mannkynið lengst
inni í myrkrum fornaldarinnar og
heyir stríð við lágar hvatir. Langt
er enn til hádegis í æfi mannkyns-
ins.
Stundaglas sólkerfanna tæmist
hægt, og beri eigi slys að hönd-
um, þá gefast mannkyninu enn þá
áralangir tímar til starfs og full-
komnunar.‘‘
Síðar í bók þessari stendur
skrifað:
„Heimssmíðin virðist að því
skapi traustari, sem hún er betur
athuguð, og jafnvægi heims er í
augum nútiðarmanna órjúfanlegt
með öllu.“
Þannig byrjar 66. grein ritsins:
„Mestur hluti af þokum rúmsins
eru sveipþokur. Skifta þær mörg-
um hundruðum þúsunda. Þær
hafa afarmargvíslegt útlit. —
Sjáist á hliðina, þá blasir sveipur-
inn við. Sjáist á röndina, þá gætir
eigi sveipsins. Þokan sýnist þá
sporöskjulöguð, löng og mjó.
Sumar þokur hafa marga sveipi.
Hér og hvar eru flókar og hnykl-
ar. Víða liggja angalíjur í ýmsar
áttir.“
Svona slétt og felt ritar Ásgeir
Magnússon, þegar ekkert glepur
hann.
Niðurlagsorð ritsins drepa á
heimildir. Þar er skráð: „Bækur
þær, sem ég hefi stuðst við, eru
að mestu leyti gefnar út á síðustu
árum. Eingöngu eru það útlend
rit, og hefi ég ekki séð ástæðu til
að geta þeirra í svo lítilli bók.“
Enn er þessa getið í niðurlags-
orðum bókarinnar: „Myndamótin
hefir Ólafur Hvanndal gert. Mynd-
ina Æfiskeið sólnanna hefir Sam-
úel Eggertsson teiknað samkvæmt
mínum tillögum. Listaverkið á
kápunni hefir myndhöggvari Ein-
ar Jónsson látið mér í té, en
Tryggvi Magnússon hefir teiknað
kápuna að öðru leyti.“
Það er vandalaust að mæla með
efni því, sem bók þessi flytur.
Er það vel fallið til þess að vekja
lesendur af dægurdvala og lyfta
huga þeirra frá jörðu.
„Maður! Líttu þér nær!“ sagði
Bjarni Thorarensen, og er það
heilræði gott. En hitt er ekki
minna um vert: Maður! Littu þér
fjær! Og það verður sá að gera,
sem „Vetrarbraut" les. —
Ofmörg smálýti hafa slæðst
inn í bókina og meinlegar prent-
vlilur. Skal um það hvort tveggja
rætt við höfund sjálfan.
Mörg málsgrein í bók þessari er
fyrirmynd og setningaskipun all-
víða fögur, en dagsönn glepur,
svo að nákvæmni verður ekki alls
staðar sem skyldi. Og hugarflug
um víðar veraldir leiðir athygli
frá smámunum.
Ásgeir Magnússon hefir unnið
þarft verk, þegar hann ritaði
þessa „alþýðu- og skóla-bók“.
Guðmundur Gamalíelsson gaf
bókina út í Reykjavík 1926.
Hallgrímur Jónsson.
Um daginn og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Kjartan Ólafsson,
Lækjargötu 4 uppi, sími 614.
Sjómannafélagið
hefir jólatrésskemtun í Bárunní
annað kvöld kl. 5 fyrir börn fé-
lagsmanna, svo sem áður hefir
verið getið um. Skemtunin verður
einnig á fimtudaginn fyrir þau
börn, sem ekki komast að á
morgun eða óska heldur að vera
þann dagfnn. Þegar skemtun barn-
anna er lokið, hefst skemtun fyrir
fullorðna fólkið. Aðgöngumiðar
afgreiddir í Bárunni í dag kl.
1—7 og á morgun kl. 1—5.
í kvöld
kl. 8V2 byrjar fundurinn í „Jafn-
aðarmannafélagi íslands". Félag-
ar! Fjölmennið!
Greinin
„Mér er spurn —“, sem birtist
hér í blaðinu í gær, var fyrst
send „Vísi“ til birtingar, þar eð
hún var rituð út af frásögn í
því blaði, undirritaðri „Læknir“,
um ópíumvindlinga, sem hann
hafði orðið var við að seldir
væru hér í Reykjavík. „Vísir“
neitaði grein „Leikmanns" Um rúm
og bar við lengd hennar.
Stefnuvottaskifti.
Þorsteinn Gunnarsson, stefnu-
fvottur hér í borginni, hefir sagt
þeim starfa af sér sökum heilsu-
bilunar. 1 hans stað hefir Einar
Jónsson frá Brimnesi, fyrrum
hreppstjóri, verið skipaður stefnu-
vottur frá næstu áramótum. Hann
á heiraa í Þingholtsstræti 15, sími
1583.
Skipafréttir,
„Esja“ fór til útlanda í gær-
kveldi.
Hjúskapur.
Á aðfangadaginn voru gefin
saman i (hjónaband ungfrú Ágústa
Guðjónsdóttir, Baldursgötu 22, og
Guðmundur Guðmundsson prent-
ari, sama stað.
Frá Hjálpræðishernum.
Opinber jólatrésskemtun verður
í Herkastalanum á morgun kl. 8
síðdegis. Aðgangseyrir er 35 aurar
fyrir fullorðna, en 20 aurar fyrir
börn.
Veðrið.
HitS mestur 5 stig, minstur 1
stigs frost. Átt víðast vestlæg.
Stormur og regn í Vestmannaeyj-
um. Deyfa hér og á ísafirði. Ann-
ars staðar þurt veður. Loftvæg-
MJarta-ás
smjsrfikið
er bezt.
Ásgarður.
Veggfðður.
Nýkomnar fjöldamargar fallegar
tegundir. Orvalið hefir aldrei ver-
ið jafn-fjölbreytt og einmitt nú.
Komið! Skoðið! Kaupið!
Sigurður Kjartansson,
Laugavegi 20B
Simi 830 Simi 830.
Vetrarsjðl,
tvílit, mjög ódýr,
nýkomin.
Alfa, Bankastræti 14.
Eyjablaðlð,
málgagn alþýðu i Vestmanneyjum
fæst við Grundarstíg 17. Útsölu-
maður Meyvant Hallgrímsson. Simi
1384.
islægð fyrir norðan land á leið til
austurs. Otlit: Vestlæg átt áfram,
hvöss á Suðurláglendinu í dag„
en skúraveður við Faxaflóa og
Breiðafjörð. Hryðjuveður víða í
nótt, sennilega vaxandi norðvest-
læg eða norðlæg átt um Faxaflóa
og Breiðafjörð.
Dánarfregn.
Ársæll Gunnarsson kaupmaður,
sonur Gunnars kaupmanns Gunn-
arssonar, andaðist í gærkveldi.
Hann lagðist veikur rétt fyrir jól-
in. Haldið er, að banameinið hafi
veriö hjartabilun. Ársæll heitinn
var um þrítugt. Tók hann tals-
verðan þátt í skátahreyfingunni
hér.
Gengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund............kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 121,77
100 kr. sænskar .... — 122,20
100 kr. norskar .... — 115,68
Dollar.....................— 4,57 V*
100 frankar franskir. . . — 18,27
100 gyllini hollenzk . . — 183,08
100 gullmörk þýzk... — 108,92
Kveikja ber
á bifreiðum og reiðhjólum kl.
3 e. m.