Alþýðublaðið - 23.06.1935, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.06.1935, Blaðsíða 1
ALÞYÐUBLAÐIÐ kemur ekki út á mánudag. RirSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XVI. ÁRGANGUR SUNNUDAGINN 23. JONl 1935. 164. TÖLUBLAÐ Alpýíœflohkarnir rðða Norðurlðndum. Norski Alþýðuilokkurinn fær hreinan meiri- hiuta eftir næstu kosningar. Viðtal við Stefán Jóh. Stefánsson ritara Alþýðu- íiokksins, sem iiefir átt viðtal við aðalforingja jafn- aðarmaima í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlándi. ^TEFÁN JÓH. STEF- ^ ÁNSSON ritari Al- þýðufiokksins kÓin úr íerðaiagi sínu um Norð- uiiöuci á föstudagskvöM- ið. Dvaidi hann lengst af í Stokkhólmi í sambandi vlð hátíðahöldin út af 500 ára afmæii sæuska ríkis- þmgsins, en auk þess kom Iiaiiii til Oslo og Kaup- mannaliafnar. Haí'ði Stef- án tai af mörgum aðalfor- iiigjum jafnaðarmanna í öilum þessum löndum. Alþýðublaðið hafði tal af St. J. St. í gærkvöldi. Hvernig var 500 ára minn- ingarhátíðin í Svíþjóð? .— Það var einhver tilkomu- mesta og glæsilegasta hátíð, sem eg hefi séð og heyrt, enda eru Svíar miklir glæsimenn. Há- tíðin bar ekki svip hinna liðnu ára. Hún bar svip hinnar nýju aldar og þeirrar menningar, sem nú er mestu ráðandi í Sví- þjóð. Hátíðin stóð í 4 daga. —- Hvernig er stjórnmála- ástandið í Svíþjóð? — Jafnaðarmannastjórnin er mjög föst í sessi. Merkasta mál- ið, sem hún hefir haft á döfinni undanfarið; eru lögin um al- mannatryggíngu, sem samþykt voru 1 byrjun þessa mánaðar. Ég hlustaði á umræðurnar í þinginu urn þessi mái, því að ég hafði mikinn áhuga fyrir þeim m. a. vegna þess, að alþýðu- tryggingarnar verða aðalmál okkar á næsta þingi. Rökræður fulltrúa Alþýðuflokksins voru sterkar og öflugar — og ég verð að segja að íhaldsmenn í Sví- þjóð eru ekki eins og íhalds- mennirnir hér. Þetta frumvarp hækkar styrk til gama'ls fólks mjög mikið. Mjög fullkomnar slysa- og ör- orkutryggingar hafa verið nokkur ár í Svíþjóð, en atvinnu- leysistryggingar voru samþykt- ar á síðasta þingi. Aðstaða stjórnarinnar er Nofrænt kvðld í leife- húsiim i Paris. FYRIR skömmu stofnaði leik- I húsið „L‘OEUVRE“ í París til skemtunar, sem kynna skyldi norrænar bókmentir og listir. Var henni þannig háttað, að hr. A. Jolivet, prófessor í norrænum fræðum við Sorbonne, hélt fyr- irlestur um nútíma bókmentir og listir á Norðurlöndum. Síðan, að fyrirlestrinum loknum, voru lesn- ir upp kaflar úr norræmim bók- menturn í franskri þýðingu og sýndir þættir úr tveim leikritum, prófessorhin mælti nokkur orð þeim til skýringar. Frh. á 4. síðu. mjög sterk í þinginu. Hún er að vísu ekki í lireinum meiri- hluta, hefir 115 þingrnenn á taak við sig*af 250 þingmönnum, en hún nýtur hlutleysisstuðn- ings Bændaflokksins og að nokkru leyti frjálslynda flokks- ins. Menn viðurkenna það alment, að í ríkisstjórninni sé einvalalið hinna hæfustu stjórnmála- manna, sem nú eru uppi í Sví- þjóð. Enda eru allir ráðherr- arnir uppaldir í verklýðshreyf- ingunni og þrautreyndir starfs- menn hennar. Stjórnmálaástandið í Svíþjóð hefir ekki breyzt mikið á síðast- liðnu ári. Nazista gætir lítið, en hluti af íhaldsflokknurn var um skeið í einhverju slagtogi við þá. Ann- ars eru Nazistar margklofnir og ausa hver annan auri eftir nót- um, alveg eins og kommúnistar. Kommúnistar eru að minsta kosti tvíklofnir. Sá, sem verið hefir foringi Moskva-kommún- ista — réttlínumannanna — og sem þeir eru kallaðir eftir, Hugo Sillén (Sillénkommúnistar), hef- ir nú'verið rekinn úr flokknum. Plin sífelaa og þrauthugsaða umbótapólitík Alþýðuflokks- stjórnarinnar hefir valdið því, að dregið hefir úr öfga- og of- beldisflokkunum. Félagsskapur verkalýðsins í Svíþjóð, bæði hinn faglegi og pólitíski, er ákaflega öflugur og kraftmikill, og sérstaklega er þó hreyfing og öll starfsemi ungra jafnaðarmanna aðdáunarverð. Þessi félagsskapur allur, sem telur hundruð þúsunda karla og kvenna undirbýr sig nú undir næstu orustu. Kosningar eiga nefnilega að fara fram í Sví- þjóð á næsta ári, og þá ætlar Alþýðuflokkurinn að láta úr- slitahríðina standa við íhaldið og auðvaldið, Nazista og komm- únista. Norski Alþýðuflokkurimi fær hreinan meirihluta við næstu kosningar. — Og hvernig er aðstaðan í Noregi? — Norska Alþýðuflokks- stjórnin hefir ekki setið nema skamman tíma, en hún hefir þegar sýnt, að hún tekur málin líkum tökum og Alþýðuflokks- stjórnirnar í Danmörku og Sví- þjóð. Hún lætur sig langmest skifta atvinn,umálin og hefir verið mjög athafnasöm á því sviði. Stjórnin nýtur hlutleysisstuðn- ings Bændaflokksins og virðist samvinna vera sæmileg milli flokkanna. Norska Alþýðuflokksstjórnin hefir áreiðanlega unnið fylgi og traust þjóðarinnar síðan hún tók við völdum, og það er al- ment talið víst í Noregi, að AI- þýðuflokkurinn fái hreinan meirihluta í þinginu við kosn- ingarnar á næsta ári. ■J stefán JÓH. stefánsson Flokkurinn er sem stendur í stórkostlegum uppgangi, sem sést m. a.*á hinum aukna blaða- kosti hans og þeim stórbygging- urn sem hann hefir reist upp á síðkastið, eins og t. d. hús Ar- beiderblaðsins í Osló, sem er nú taiin einhver glæsilegasta ný- byggingin í Osló. Einn af aðalforingjum flokks- ins skýrði mér frá því, að það myndi ekki líða langur tími þar til norski Alþýðuflokkurinn myndi ganga í alþjóðasamtök jafnaðarmanna. Baráttan gegn Landsþing- inu er aðalmálið í Dan- mörku. — Og Danmörk ? — Um fjölda ára skeið hafa ekki verið eins fáir atvinnulaus- Frh. á 4. síðu. Stjörnmálafundur á Patreksf irði í f yrra- kvöid. Sigurður Einarsson alþingis- maður heldur nú stjórnmálafundi á mörgum stöðum í Barðastrand- arsýslu. í fyrrakvöld hélt hann fund á Patreksfirði, sem var mjög vel sóttur. Var Sigurði tekið ákaflega vel, og eykst fylgi Alþýðuflekksins stöðugt í Barðastrandarsýslu. Vúlur fapai* í Noregi. Knattspyrnufélagið Valur fór eins og kunnugt er fyrir nokkru til Noregs og ætlaði að keppa þar í knattspyrnu á nokkrum stöðum. Félagið hefir nú þreytt kapp- leiki; í Bergen og Drammen. 1 Bergen tapaði það með i marki gegn 5 og i Drammen með 1 marki gegn 4. í kvöld mun félagið þreyta síðasta kappleikinn við knatt- spyrnufélag í Osló, og er pað tal- ið vera eitt bezta félagið í Noregi. Mun Valur varla bera sigur af hólmi í Viðurfeigninni við það fé- lag, ef dæma má eftir hinum kappleikjunum. Valur mun koma hingað heim upp úr mánaðamótum og taka þátt í kappleikjunum gegn Þjóð- verjunum, sem koma hingað ura miðjan næsta mánuð. Rauðhólar. Strætisvagna? nir hefja fastau ferðir upp í Rauðhóla i dag Rauðhólanefnd verklýðsfélag- anna hefir undanfarið staðið í samningum við Strætisvagnafé- lag Reykjavíkur urn að það tæki upp fastar áætlunarferðir upip að hiiðinu að skemtislað verklýðsfé- iaganna í Rauðhólum. Nú mun Strætisvagnaféiagið hafa ákveðið að gera tilraun til að hafa fastar ferðir þarna uppeftir að minsta kosti á sunnudögum, — og verða fyrstu ferðirnar í dag. Þetta er til mikils hægðarauka fyrir alþýðufólk, sem langar að fara uppeftir og ekki hefir ráð á að kaupa sér prívat bíl eða kaupja farið hvora leið fyrir eina krónu. Farið uppeftir kostar í strætis- vögnunum 50 aura hviora leið eða krónu báðar leiðir. Á hverjum degi verður vörður í Rauðhólum, sem veitir fólki þann þeina í skálanum, sem það biður um. Fólk er beðið að ganga eins vel um staðinrj og því er frekast unt, ekki að henda bréfum eða rusli út um alt og ekki að skilja eftir matarleyfar í liajutunum. Formaður RauðhólanefndBr hef- ir beðið Alþýðublaðið að skila því til verkamanna að ef einhver vildi feggja fram sjálfboðaliðsvinnu, þá mundi það vera vel þegið. Vinnatiini lenydar i bæjarvinnunai. Fundur bæjarráðs, sem haldinn var á föstudagskvöld, ákvað að lengja vinnutímann í bæjarvinn- unni nú þegar upp í 10 klst. á dag. Fá verkamenn því rúmar 80 krónur á viku í s/taö rúmlega 60, sem þeir hafa haft undanfarið. Nauðsyn var til að lengja vinnutímann fyrir löngu í vor, en íhaldið í bæjarráði mun hafa ætlað að draga það svo lengi, sem því var unt, og þar til að það yrði mint á það, en það gerði Ólafur Friðriksson á síðasta bæj- arstjórnarfundi. Skip rekast á 03 stranda f pofea á Ermarsnndi. LONDON 22. júní. FB. Miklar þokur hafa valdið erf- iðleikum og slysurn á siglinga- leiðum á Ermarsundi. Ilafa orðið margir árekstrar milli skipa, en afleiðingar sumra eru ekki mjög alvarlegar. Þó er ókunnugt um afdrif þýzka eim- skipsins ,,Genua“, en árekstur varð milli þess og brfezka eim- skipsins „Grainton". Tvö brezk skip strönduðu, en annað þeirra hefir náðst á flot aftur. (United Press). Boiivía og Paraguay sömdu frið í gær. LONDON 22. júní. Friðarsamningar milli Bolivíu og Paraguay voru undirskrifað- ir í dag. (F.U.). Gengur Þýzkaland aftur í ÞJóðabandalagið? Hafa Bretar gert það að skilyrði fyrir flotasamn- ingnum? LONDON í gærkveldi. 4SK-ÞÍZKU flotamálaum- umræðunum í London erHú lokið. von Ribbentrop fer heim- leiðis til Rerlín á morgun. Hann gekk á fund Sir Samuel Hoare utanríkisráðherra í dag og ræddu þeir fram og aftur um málin. Talið er, að rætt hafi verið meðal annars um möguleika þess, að Þjóðverjar gangi aftur í Þjóðabandalagið, og munu þeir nú ekki vera því fráhverfir. (F.Ú.). Það -verður erfitt fyrir Eden að sætta Frakka við flotasamninginn. LONDON, 20. júní. FB. Frá París er símað, að Anthony Eden ætli, þegar hann kemur úr Rómaborgarferðinni , að loknum umræðunum við Mussolini, að koma aftur til Parísar og ræða þá frekara við Laval forsætisráð- herra, aðallega um mál, sem standa í sambandi við brezk- þýzka flotamálasamkomulagið, er hefir vakið xnikla óánægju frakk- neskra og ítalskra stjórnmála- manna . Eins og fyrri fregnir herma, eru Bretar og Frakkar stiaðráðnir í að halda áfram samvinnunni, sem veilð hefir þeirra milli síðan á heimsstyrjaldarárunum, en Frökkum hefir mislíkað svo stór- lega samningsgerð Breta við Þjóðverja, að það er talið, að Eden hafi fengið mjög viðkvæmt og vandasamt hlutverk með hönd- um að þessu sinni, þ. e. að vinna að því, að sambúð Breta og Frakka geti, þrátt fyrir óánægju þá, sem upp er komin, .orðið jafn vinsamleg í framtíðinni og hún hefir verið. Hins vegar eru hæf:- leikar hans til að sætta og vinna að samkomulagi svo miklir, að menn gera sér vonir um mikinn árangur af för hans. (United Press.) Blöðin í Moskva telja flotasamninginn alvarlegt áfall fyrir friðinn. LONDON í gærkveldi. 1 Moskvablöðunum eru í dag mjög harðorðar árásir á ensk- þýzku samningana. Segja þau, að öryggið í álfunni sé nú minna en áður, vegna þessara samn- inga og séu þeir líklegir til þess að ýta undir vígbúnaðinn, frem- ur en, að minka hann. (F.Ú.). Haír annsóknaskipið sekkor eftír árekstur í Noróursjónum. Eo Dað tófesí að bjarga allri ðhðfainni EINKASKEYTl TIL ALÞYÐUBL. KAUPMANNAHÖFN í morgun. FTIR því, sem einka- skeyti frá Esfojerg 1 hermir, sigldi þýzki togar- i inn „Pickhuben“ frá Cux- hafen klpkkan sex í morg- un á danska hafrann- j sóknaskipið „Dana“ úti fyair vesturströnd Jót- lands, á að gizka 83 sjó- mílur í norð-norðvestur af Horusrlfi. Togarinn var á follri ferð og „Dana“ sökk á örstuttri stundu. Það tókst þó að bjarga aliri áhöfniúni, 22 skspsinönn- dm og 3 vísindamöimum, 'sem. imdanfarið hafa ver- ið á skipinu við fiskirann- sóknir á Doggerbauka í Norðursjónum. Nánari fréttir af, slys- inu eru ókonmar enn. STAMPEN. De Valera sigrar við auka- kosningar. LONDON 22. júní. I aukakosningum, sem fóru fram í dag í írska fríríkinu, sigr- aði stjórn De Valera, en þó með nokkuru minni meirihluta en við síðustu kosningar. (F.Ú.). Frá Ferðanefnd K. R. Farið verður í Raufarhólshelli á sunnudag. Lagt á s'að frá K. R,- húsinu kl. 8,1/2. Hafið með ykkur vasaljós, ef þi'ð eigið þau.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.