Alþýðublaðið - 23.06.1935, Blaðsíða 4
SUNNUDAGlNN 23. JONÍ 1935.
GAMLA BÍÓ IWm
Ást og skylda 1
læknisins.
Aðalhlutverkin leika:
Clark Gable, Myrna Loy,
Jean Hersholt og Elisa-
beth Allen.
Áukamynd:
ÍSLAND,
Sýnd í kvöld kl. 7 (lækkað
verð) og kl. 9.
Barnasýning kl. 5.
Þá verða sýndar bráð-
skemtilegar myndir,
teiknimyndir, fræðimyndir
o. fl.
15 anra
kostar að kopiera
myndir 6x9 cm.
Sportvöruhús
Beykjavíkur.
Kirkjuritið
sjötta hefti er nýkomið út og
hefst á kveðjuávarpi frá j)jóð-
kirkju íslands til „Hins ev. lút.
kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi“, eftir dr. theol Jón Helga-
son biskup. Þá er grein, sem
heitir Forsetar kirkjufélagsins, eft-
ir séra Friðrik Hallgrímsson,
Minningar vestan um haf, eftir
séra Pál Sigurðsson. ísland til-
sýndar, eftir séra Jakob Jónsson.
Opið bréf til Gunnars Benedikts-
sonar, fyrrum prests í Grundar-
pingum, eftir séra Benjamín Krist-
jánsson, o. m. fl.
BARINN.
Frh. af 3. síðu.
sta'ður Keflavík?“ „No goo'd stað-
ur Keflavík,“ segir hann. „This
líka no good,“ hann bendir á
glasið. „ítalía wine good.“ Hann
brosir hróðugur yfir jressum á-
gætu athugasemdum. Lítill mað-
ur með hvast og þunt nef hefir
hlustað á 'Og veltist nú um af
hlátri yfir grísa-ensku Keflvík-
ingsins. Hann kemur á eftir okkur,
pegar við göngum fram gólfið.
„Skál,“ segir hann -og opnar
munninn svo furðu gegnir fyrir
jafn lítinn mann. „Skál amigos.
Hasta la vista.“ Spænskan er hans
í gleði og glaum, en skyldi ekki
annað duga betur í alvörumálum.
Hann vindur sér að okkur, áður
en við komumst út um dyrnar.
„Heyrðu góði,“ sagir hann á dá-
lítið drafandi íslenzku. „Heyrðu
góði; áttu ekki tuttugu og fimm
aura?“
Barinn liggur okkur að baki.
Hann er orðinn hluti af karakter
bæjarins, þessi staður, með sitt
vota borð, og sína giftusnauðu
menn. Og pó er hann írsjálfu sér
ekkert slæmur, eftir j)ví sem séð
verður á yfirborðinu. Veitingarnar
eru meinlausar, að því er virðist,
að minsta kosti meðan þær eru
óblandaðar öðrum efnum, og
sjálfsagt getur skenkjarinn ekki
gert að því, þó náunginn komi
með eitthvað upp á vasann, eða
þó giftuleysingjar bæjarins sæki
salarkynni hans. En einhvern veg-
inn er hann nú samt svona, og
það er sú auðvelda skýring hlut-
anna, þeir eru einhvern veginn
svona.
a x
VIÐTAL VIÐ SFEFÁN JÖHANN
STEFÁNSSON.
Frh. af I. síðu.
ir menn í Danmörku og nú, enda
hefir stjórnin efnt til stórkost-
legra atvinnuframkvæmda.
Ríkisstjórnin nýtur almenns
trausts meðal þjóðarinnar, en
hið íhaldssinnaða Landsþing
eyðileggur þó mikið af umbóta-
starfi hennar. Er því baráttan
fyrir afnámi Landsþingsins eitt
aðalmálið sem nú er rætt í Dan-
mörku, enda er afnám þess
fyrsta skilyrðið fyrir því að um-
bótapólitík Alþýðuflokksins geti
notið sín.
Alþýðuflokkurinn heldur nú
þing, sem stendur frá 23. (í
dag) til 26. þ. m., og verður
Finnur Jónsson alþingismaður
gestur á því.
Stauning forsætisráðherra
kemur því ekki hingað í þessum
mánuði, en hann skýrði mér frá
því, að hann myndi koma hing-
að í lok næsta mánaðar.
Alþýðuflokkurinn danski er í
stöðugum og öruggum vexti.
— Ég vil að lokum geta þess,
að á hátíðinni í Svíþjóð hitti ég
flokksbróður minn, Hakkilla frá
Finnlandi, en hann var einn af
fulltrúum á Aiþingshátíðinni
1930.
Hann sagði, að finski Alþýðu-
flokkurinn væri nú búinn að
yfirstíga afleiðingarnar af
klofningi kommúnista og ráða
niðurlögum Lappó-hreyfingar-
innar að mestu. Og hann kvað
það sína skoðun, að ekki myndi
líða mörg ár þar til að finski
Alþýðuflokkurinn tæki við völd-
um svo að hægt væri að segja,
að Alþýðuflokksstjórnir sætu að
völdum á öllum Norðurlöndum.
NORRÆNT KVÖLD í PARÍS.
Frh. af 1. síðu.
1 fyrirlestrinum sýndi prófessor
Jolivet fram á, að íslendingar eru
ekki eingöngu merkileg þjóð
vegna hinnar fornu siðmienningar
vorrar, heldur einnig sökum nú-
tíma rnenta vorra, sem væru þess
verðar, að þeim væri fullur gaunr-
ur gefinn. Fór hann nokkrum orð-
um um Einar Benediktsson; taldi
hann víst, að Einar væri eitt hið
mesta ljóöskáld, sem nú er uppi,
og að hann hefði ótvírætt náð
heimsfrægð, ef hann hefði ort á
máli einhverrar annanar stærri
þjóðar. Því næst mintist hann á
skáldsagnagerð. Dvaldist honum
mest við Guðmund Friðjónsson,
Guðmund Kamban og þó einkum
við Halldór Kiljan Laxness. Þá
var sýndur kafli úr þriðja þætti
leikrits Kiljans: Straumrof. Var
því mjög vel tekið af áheyrend
um. — Mun nú í ráði, að leikrit
Kiljans verði þýtt á frönsku.
Það ber ekki oft viö, ef norræn-
ar bókmentir eru kyntar í út-
löndum á slíkan hátt og þennan,
að Islendinga sé þar að nokkru
getið; því síður, að verk þeirra
séu kynt umheiminum með jafn-
milrium skilningi sem hér. Er oss
það einkum mikils virði, hve mjög
ant prófessor Jolivet lætur sér
um að auka þekkingu Frakka á
nútímabókmentum vorum. IÁ
hann í alla staði mjög vinveittur
þjóð vorri, og njóta allir íslend-
ingar, sem koma á heimili hans,
hinnar alúðlegustu gestrisni.
— Þarna var og dálítil norræn
listasýning, en ekki munu h.afa
verið þar verk eftir íslenzka lista-
menn (að eins myndabók af verk-
um Einars Jónssonar), en í fyrir-
lestri sínum mintist prófessor
Jolivet á allmarga þeirra.
Skemtunin var vel sótt og stóð'
yfír fulla þrjá tíma.
S. A.
Gamanvísaasafa
Bjarna Bjöms&onar, vísur þær,
sem hann syngur nú ásarnt beztu
vísum þeim, sem hann áður hefir
sungið, eru nýlega komnar út í
einni heild, og mun alla þá, sem
hlustað hafa á Bjarna, langa til
að eignast þær, svo sem „Vísur
um útvarpsráðið", „Minnisvarða-
vísurnar“, „Hvað amar að?“ „Só'l
úti, sól inni“, „Sogsvísurnar",
„Jón í hjáleigunni", „Sumir gera
það aldrei“, „Sjómannasöngur",
„Alveg eins og ég“, „Framfarirn-
ar í Reykjavík“ o. fl. ágætt. —
Sumar vísurnar eru snjallar, en
hinar alls ekki verri en annár
skáldskapur, sem þykir fullgóður'’
og selst vel. En aðalkostur vísna-
safnsings er, að það ber með sér
hreim hins ógleymanlega Bjarna,
enda er mynd hans sem eins
konar filmstjörnu framan á bók-
inni; en hún er 64 síður, kostar að
eins eina krónu. Kaupið bókina og
lesið hana. Hún fæst hjá öllum
bóksölum.
Krossfiskurinn.
Hjónaefni.
í gærkveldi opinbemðu trúlofun
sína ungfrú Guðbjörg Sigurjóns-
dóttir (Ólafssónar alþihgismanns)
Hverfisgötu 44 og Sigurður Jóns-
son flugmaður.
Friðrik Hjartar
skólastjóri á Siglufirði, fiytur
erindi í útvarpið kl. 18,45 í kvöld,
er hann nefnir: Um Siglufjörð.
Málverkasýningu
hefir Magnús Á. Árnason list-
málari opna í Iðnskólanum.
I DAG
Næturlæknir er í nótt Jón Nor-
land, Skólavörðustíg 6 B, simi
4348.
Næturvör'ður er í nóÍLt í Laugn-
vegs- og Ingólfs-apóteki.
MESSUR:
í dómkirkjunni ver'ður guðs-
þjónusta til að setja kirkjuþingið.
Séra Eiríkur Brynjólfsson á Út-
skálum predikar, en séra Gar&ar
Þorsteinsson í Hafnarfirði verður
fyrir altari.
í fríkirkjunni verður messað
kl. 5. Séra Árni Sigurðsson pre-
dikar.
ÚTVARPIÐ:
10,40 Veðurfregnir.
11,00 Messa í dómkirkjunni (séra
Garðar Þorsteinsson og
séra Eiríkur Brynjólfsson).
Setiur almennur kirkjufund-
lur.
15,00 Tónleikar (frá Hótel Is-
land).
18,45 Barnatími: Um Siglufjörð
(Friðrik Hjartar skólastj.).
19,10 Veðurfregnir.
19,10 Tónleikar: Sönglög eftir
Schubert (plötur).
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi (úr dómkirkjunni);
(jm skipun prestakalla (séra
Friðrik Rafnar).
21,15 Tónleikar: a) Sumarlög
(plötur); b) Endurtekin lög
(plötur).
Danzlög til kl. 24.
Á MORGUN:
Alþýðublaðið kemur ekki út.
Næturlæknir er Daniel Fjeld-
sted, Aðalstræti 9, sími 3272.
Bjarni Björnsson
endurtekur skemtun sína í
kvöld í Iðnó.
TU Hallgrímskirkju í Saubæ.
Áheit afhent af Bjarna
Helgasyni, frá Kristínu kr. 3,00.
Beztu þakkir. Ásm. Gestsson.
Stefán Guðmundsson
söhg í kirkjunni á Siglufirði
á miðvikudagskvöld við feikna
aðsókn.
dónas Sveinsson læknir
er meðal farþega til útlanda
með íslandinu í kvöld. Verður
hann fjarverandi um mánaðar-
tíma og gegna þeir læknarnir,
Kristján Sveinsson, Gísli Páls-
son og Júlíus Sigurjónsson
læknisstörfum hans, á meðan.
Fór upp í hrepp
fyrir skömmu, hafði margt
heyrt um pólitíkina þar. Kom að
Apavatni. Þar er Helgi, gamall
félagi frá skak-árunum; rifjuð-
um gamlar endurminningar. Fór
um Tungur og Grímsnes. Á
Hömrum var einu sinni sterkur
maður sem glímdi fyrir biskup-
ana. Ég talaði við leikmenn og
lærða, sagði þeim um einstæð-
ingsskap minn og urðu lærðir
menn hissa við að heyra, að
bæjarráðið léti mér ekki með-
hjálp í té og sögðu, sem satt er,
að sjálfur guð hefði fyrir löngu
séð, að ekki væri gott að mað-
urinn væri einn. Þetta kann að
lagast.
Oddur Sigurgeirsson.
Ath. Var 2 nætur í Reykja-
dal, þaðan er hesturinn ættaður.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
10,00 Veðurfregnir.
12.10 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Erindi: Athyglisverðar mál-
farsbreytingar (Friðrik
Hjartar skólastjóri).
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi (úr dómkirkjunni):
Ijm safnaðarfræðslu (Valdi-
mar Snævarr skólastjóri).
21,15 Tónleikar: a) Alþýðulög
(Útvarpshljómsveitin); b)
Einsöngur (Einar Markan);
c) Brahms: Kvartet í B-dúr
(plötur).
Málaflutningur. Samningagerðir
Stefán , Jóh. Stefánsson,
hæstaréttar málaflm.
Ásgeir Guðmundsson,
cand. jur.
Austurstrætl 1.
Innheimta. Fasteignasala
Verftsmlðjan Rún
Selur beztu og ódýri stu
LlKKISTURNAK.
Fyrirliggjandi af öllum
stamðum og gerðum.
Séð um jarðarfarir.
mr Sími 4094,
Ef yður vantar smurt brauð,
þá munið eftir Smurðsbrauðs-
búðinni, Laugaveg 34. Sími
3544.'
9
Balilla. |
J gær birtir Morgunblaðið langa :
grein eftir danska höfundinn J. i
Jörgensen, sem býr á ítalíu og er
þektur fazistaaðdáandi, og fjallar
greinin um Balilla eða ítölsku
barnahersvieitirnar. Maður skyldi
ætla, að íslenzkt blað myndi ekki
geta skýrt frá því í fréttum að
í einu landi séu smábörnin alin
upp samkvæmt vísindum hernað-
arlistarinnar, alin upp til haturs
og morða, án þess að láta x ljósi
andúð sína og viðbjóð á slíku at-
hæfí. En Morgunblaðið er í sjö-
unda himni yfir þessari grein og
biríir hana með ýmiskonar útflúri
til að vekja athygli á henni. Á-
stæðan er sú, að hér á fazisminn
í hlut, og hér er agitasjón fyrir
nazismanum á ferðinni, og hér er
verið að reyna að hafa áhrif á
Jiugi íslenzkra drengja, til að að-
hyllast félagsskapi mazista og faz-
ista. Hefir nokkur nokkurn tíma
séð í Morgunblaðinu grein urn
starf þeirra mannia, sem fórna
allri æfi sinni til þess að kenna
þjóðunum að lifa í sátt ,hver við
aðra. Eða hefir nokkur nokkurn
tíma séð grein í Morgunbl. ,um
þá hætíu, sem barnssálunum staf-
cir frá hernaðarsinnum og ofbeld-
isflokkum. Þetta er eins og svo
svo margt annað, sem sýnir ,þ.að
og sannar, að Sjálfstæðisflokkur-
inn er þess albúinn að taka upp
starfsa'ðferðir nazista þegar hon-
um finst tækifærið komið.
Athyglisverðar málfars-
breytingar
heitir erindi, sem Friðrik Hjart-
ar skólastjóri flytur i útvarpið
kl. 19,20 annað kvöld.
Valdimar Snævarr
skólastjóri flytur erindi í út-
varpið annað kvöld kl. 20,30.
Nefnir hann erindið: Um safnað-
arfræðslu.
Æskan,
júní heftið er nýkomið út. Er
þar meðal annars grein, sem
heitir Sundíþróttin, og fylgja
henni 4 myndir. Þá er önnur
grein, sem heitir Islenzkir sund-
garpar, með myndum af þremur
sundgörpum. Óli Snarfari, saga
eftir Erika Mann, þýdd af Guð-
jóni Guðjónssyni. Dvergurinn,
framhaldssaga. Sundkunnáttan,
eftir Svan, skrítlur og margt
fleir-a.
NÝJA BÍÖ
Æíiiijffi
tonskáldanaa.
StiSSiSÍ!
Bráðskemtileg og fjörug
tal- og sönjjvamynd l'i á
Paramount um tvo unga
menn, sem þykjast til þess
kjörnir að græða á hljóm-
myndasamníngu, og lend x
þeir þvl í mörgurn skringi-
legum æfinl.ýrum.
Áðalhlutverkin leika:
Jack Oakte, Taek Haíey.
Ginger ííogers og
Thehna Todd.
Aukamyndin:
FRÉTTABLAÐ og
TEIKNÍMYND.
Sýningar kl. 5, 7 og 9.
(Bai nasýning kl. 5.
Álþýðusýning kl. 7).
Bíladekk*
Síerkasta ameríkðnsk
tegimd, mjög ódýr.
Skoðið þau.
Þórður Péturs-
son & Co.
ALLA
venjulega matvöru og
lireiniæiisvöm, sel eg
með lægsta verði.
Fljót og góð afgreiðsla.
Sent wfl allan bæixm.
Cæsa? lar, ilmi 2587.
Alúðar þakkir fyrir sýnda samúð við fráfall og jarðarför
Magmisar Vigfússonar verkútjóra, Kirkjubóli.
Solveig Jónsdóttii* 1, börii og tengdabörn.
Reykjavík, Akiirejrrl
Akiire$rlf Me^kjawlk
Alla Mánudaga, Miðvikuílaga ©g Föstudaga.
Frá Akureyri sömu daga.
Afgreiðsla á Akureyri er á Bifreíðastöð Oddeyrar.
BifreiðastilO Stelndöra.
Sími 15807