Bjarki


Bjarki - 24.12.1902, Page 7

Bjarki - 24.12.1902, Page 7
B JARKI. 7 þeir fái fiskinn með gjafverði. »Vjer eigum von á fimm gufuskipaförmum frá Copeland og Berrie«, segja þeir. Afleiðingin af þessu hefur verið sú, að skip, sem komið hafa frá Islandi, hafa orðið að bíða í ráðstöfunarhöfn erlendis, af því að ekkert boð hefur feingist í fiskinn, eða þá alls ekkert viðunandi boð. Um miðjan ágúst komu skipin »Christian« (frá Bryde), »Asta« (frá Duus), og »Hebe« (frá Á. Ásgeirssyni) í ráðstöfunarhöfn, og voru farmarnir loks seldir til Bilbao, eftir 6—io daga bið, á 65 rígsmörk f. o. b.1, og sama verð fjekk Ásgeirsson fyrir farm sinn með »Union«, 4. sept. síðastl.. eftir að skipið hafði legið 6 daga í ráðstöfunarhöfn. Málfiskur sá, er Duus og Lefolíi sendu með »Vonin«, seldist í sept., eftir 8 daga bið í ráðstöfunarhöfn, á 64 rígsm. (Duus) og 62 rígsm. ((Lefolíis) og eftir síðustu fregnum fara þó horfurnar enn versnandi. Það eykur og mjög á áhættuna, að heita má allsendis ómögulegt, að selja fisk fyrirfram, eða fyr en skipin eru í ráðstöfunarhöfn kom- in, og lendir því tjónið á verlsunarstjett vorri, ef farmurinn verður fyrir sjóskemdum á leið- inni, án þess skip nemi grunn. Að því er snertir smáfisk og ísu, þá hafa söluhorfur að vísu verið rokkru skárri, en verðið þó einnig lækkandi um þessar mundir. Smáfiskur seldist 1' ágúst á 52 — 54 kr., al- geingast, en nú ekki von um hærra verð, en 50 og 40 kr. f. o. b. (Þjóðviljinn.) Gvendur og Glói —o— Hann Ovendur sat og Glói hjá; þeir gættu báðir saman ánna. Og Gvendur sat í grænni lá með grautarask á niilli hnjánna. En Glói lá þar hægur hjá húsbóndanum. Rakkinn væni mjakaði sjer maganum á og mændi eftir hverjum spæni. Þetta er dygðin, dreingur minn, - dilla skotti, kunna’ að bíða. Horfðu vel á hundinn þinn, hann er að kenna sjálfum þjer að skríða. Og vittu til, þín bíða bein og bitur frarn í skauti tíða, blessun guðs og auðna ein, ef þú bara lærir vel að skríða. Fl. Búnaðarframfaragrein Björns Jenssonar kennara, sem Bjarki flutti í haust útdrátt úr, hefur vakið mikla eftirtekt. í Reykjavík var í haust haldinn umræðufundur, sem Búnaðarfje- lag íslands stofnaði til, til þess að ræða um innihald greinarinnar. 1 f. 0. b." þýðir: auk vanalegrar fraktþóknunar. ^5 rj’gSmarka sala svarar til 55-56 kr. netto. Ýmsum af þeim sem þar tóku til máls þótti B. J. krefjast helst til víðtækra breytínga. Þeir vildu ekki láta byrja á þvi að plægja túnin og sá í þau gras- fræi, heldur nota þessa aðferð fyrst og fremst við alla nýa túnauka, t. d. í þurrum móum og á ræktunar- litlum útskæklum. Stefán Stefánsson kennari á Möðruvöllum ritaði móti grein B. J. í „Norðurland" og sagði þar, að aðferð hans ætti vel við Suðurland, því þar er jarð- vegur blautur, en miklu síður við Norðurland. En grein B. J. er mjög merkileg, og ættu allir sem við jarðrækt fást að athuga vandlega efni hennar. Með Agli fóru til útlanda um daginn Stefán Guðmundsson verslunarstjóri á Húsavík og Jósef Björnsson skóla- stjóri á Hólum. Jósef ferðast í vetur um Noreg, Svíþjóð og Danmörk til þess að kynna sjer búnað og búfræðiskennslu í þessum löndum. Biarki. Með þessu tölublaði er lokið VII. árg. Bjarka og kemur blaðið ekki út milli jóla og nýárs. SMÁVEGIS —o— Fólkstalan í Argentínu í Suður-Ameríku var um síðastl. nýár 48.000,000. Lángmestur innflutningur er þángað frá rómönsku þjóð- unum, ítölum, Spánverjum og Frökkum. Landið tekur á síðustu árum mjög miklum framförum, mest með tilstyrk enskra auð- manna. Þeir eiga þar ógrynni fjár í allskon- ar fyrirtækjum, járnbrautum, jarðræktunarfyrir- tækjum o. s. frv. Höfuðborgin í Argentínu hefur nú 800,000 íbúar Og kvað vera mjög skrautleg borg. 27,887 kirkjur eru í Englandi og Wales; þar af eru 15,309 engilsaxneskar. • Þann heiður hlaut Ungverjinn Gezsa Mar- oczy í mars í vetur á skákþínginu í Monakko, að verða fyrsti skákmeistari heimsins. Annar í röðinni er ameríkumaðurinn Pillsbury, þriðji pólverjinn Jannovski og fjórði Þjóðverjinn Teichmann. Qísli póstur varð fyrir hrakníngi í Eyvindará á leiðinni norður uin daginti, segja Hjeraðsmenn. Hann sendi með pósthestana yfir á brúnni, en reið sjálfur beina leið frá Eyvindará í Egilsstaði og út í ána á vaðinu, eða þar í nánd. En dimmt var orðið og áin í miklum vexti og kom hann úr henni votur frá hvirfli til ilja og klökugur heim í Egilsstaði, en sakaði þóekk- ert og hjelt áfram ferð sinni morguninn eftir. Kolaframleiðsla heimsins var árið 1901 um 840 miljónir tonna. Þar af var frá Bandarík- unum 290 mill, Bretlandi 246 millj. Þýskalandi 200 millj, tons; Frá Bandaríkjunum var flutt ý1/^ millj. tonna, mest til Kanada og Suður-Ameríku, og nokkuð til Evrópu, þannig !/4 mill tons til Frakklands. — Þar voru grafin úr jörðunni 53^/2 millj. tonn af antracitkolum; önnur kol er bannað að brúka i hinum stærri bæjum, Newjork og Boston. At venjulegum steinkol- um var frá Pennsylvania 85 mill, Illinois 26 B æjarst jórna rf undur var haldinn í gær. Samþ. var að kaupa af Sig. kaupm. Johansen götuljósker það, sem stendur fram- anvið hús hans, fyrir 25 kr. Bæjarfógeti skýrði fráað hann hefði samið við Jónas póstafgreiðslumann Stephensen um pössun á götuljósunum, fyrir 12 kr. endurgjald, það sem eftir er vetrarins. Samþ. að taka tilboði frá Fr. Gíslasyni og Andr. Rasmussen um að leggja vatnsleiðslu um Ölduna og út að Goodtemplarahúsi sunnan megin fjarðarbotnsins. Bæjarfógeta og þeim Stefáni Jónssyni og Eyólfi Jónssyni var falið að semja við þá um verkið. Samþ. að taka 9000 kr. lán gegn ábyrgð bæjarfje- lagsins til að koma vatnleiðslunni á og bæjarfógeta falið að útvega lánið. I Sig. Johansen og Tryggvi Guðmundsson kosnir í ; kjörstjórn með bæjarfógeta við kosníngu tveggja manna í bæjarstjórn eftir nýárið í stað E. Th. Hall- grímssonar og Eyólfs Jónssonar, sem búnir eru að vera lögákveðinn tíma í bæjarstjórninni. Kosníng í bæjarstjórn á tveim fulltrúum fer fram 3. jan. næstkomandi. Sjúkir læknar. Eins og áður hefur verið skýrt frá í Bjarka hafa þeir íngólfur læknir Gíslason á Einarsstöðum í Reykja dal og Sigurður læknir Pálsson á Sauðárkrók leingi_ legið sjúkur á spítalanum á Akureyri, lngólfnr í botn- lángabólgu, en Sigurður í beinátu í kjálkanum. Þeg- ar Egill fór að norðan um daginu voru þeir báðir á góðum batavegi. 485,000 kr.á hvert eintak af skrautútgáfu af ritum Charles Dickens, heimsfræga söguskálds- ins, að kosta, sem kostað er af forleggjaranum G. D. Sproul í New York. Það eru að eins prentuð 15 eintök, svo ólíklegt er að kostn- aðarmaðurinn komi til að liggja með mikið óselt. Alls koma út 130 bindi og kostar hvert 1000 ; dollara (3750 kr.). í hverju bindi er inngángur, kritík, sjerstaklega um það saminn, eftir fræg- ? ustu höfunda, t. d. Bret Harte, William Ross- ett, Edmund Goose og George Gissing, Myndirnar sem fylgja, eru einnig búnar til af frægum listamönnum. Þær eru bundnar inn sjer í 7 — 8 bindi. Þar að auk fá kaupendur eftirgjörðir af hinum eldri, frægustu Dickens myndum; t. d, Cruikshank o. fl. Hin nýja brú milli New Jork og Brooklyn, sem verður fullger eftir tvö ár, er áætláð að kosta muni 29 milljónir kr. Hún verður 2200 metra löng (sú, sem nú er, er 1858 m.) og 36 metra breið. Brúarstöplarnir eru úr stáli og eru 100 met- ra háir; hver þeirra vegur 3000 tonn. Brúin sjálf vegur 20,000 tonn. Þegar hún erfuilgerð verður búið að eyða 2 millj. metra af timbri að lengd, 130000 ferhyrningsmetrnm múrsteypu og 450000 tonnum af stáli. Fegursta postulínssafn heimsins seldi James A. Garlund nýlega fyrir 2,160,000 krónur.

x

Bjarki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.