Bjarki - 22.10.1903, Síða 1
BJARKI
¥111,39-40
I Eitt blað á viku. Verð árg. 3 kr.
I borgist fyrír 1. júlí (erlendis 4 kr.
borgist fyrirfram).
Seyðisfirði 22. okt
Uppsögn skrifl., ógild nema komin |
sje til útg. fyrir l.okt. og kaupandi I J Q02
sje þá skuldlaus við b'aðið. 1 s O
NÝJA TESTAMENTIÐ MEÐ MYNDUM.
Margur befur lengi óskað eftir að geta
fengið nýja testamentið í lítilli, bandhægri
útgáfu.
Nú er slík útgáfa út komin. Stærð
bókarinnar að eins hér um bil 4x5^2
þuml. Þykkt tæpir 3/4 þuml.
Fjöldi litmynda.
Bandið einkar-skrautlegt,
Verð kr. 1.50 til 5.00 eftir gæðum
bandsins.
Sama útgáfa án mynda fæst einnig og
er verðið 50 au. lægra á hverju eint.
Til sölu hjá
D. ÖSTI.UND,
Seyðisfirði.
*7 0 Q Q Stúkcit1 y- Aldarhvöt no. 72»
• heldat fand í hinu nýa
húsi sína á Báðareyrí á hverjam sunnudegi
kl. 4 síðdegis. —- Meðlimir mæti. Nýir
meðlimir velkomniir.
Ti! augiýsenda.
Hr. David Östlund tekur á móti auglýsíngum
Bjarka og semur um verð á þeim.
Borgim fyrir allar auglýsíngar í blaðinu á að greiða
til hr. Östlunds, en ekki til mín.
Þorsteinn Gíslason.
Líkneski Snorra
Sturlusonar.
— o—
Fjallkonan kom nýlega fram með þá dreingi-
legu uppástúngu að vjer Íslendíngar reyndum
að eignast standmynd Snorra Sturlusonar, sem
Einar Jónsson myndhöggvari hefur unnið að
undanfarið, og talin er listaverk. Blaðið getur
þess jafnframt, að Einar geri myndastyttuna
fala fyrir 8000 krónur, ef hún verði reist á
ættlandi hans.
Svo sem kunnugt er skín eingin stjarna jafn
fagurlega á bókmenntahimni Islands út um
menntaða heiminn eins og nafn Snorra, en
ekki er óalgeingt í útlöndum að telja hann
Norðmann og sagnaföður Norðmanna. Þennan
misskilning þarf að leiðrjetta. Vjer verðum
að sýna í verkinu, að vjer og engir aðrir
— eigum þetta afarmenni fornaldarinnar, þennan
bókmentaberserk, stjórnkænskumann og stór-
höfðíngja, sem getið hefur sjer ódauðlegt nafn
í sögunni og sem fleytt hefur á arnarvængj-
um veg og virðíngu Islands út um heiminn
gegnum myrkur og galdra miðaldanna allt fram
á þennan dag.
Kornúngur las jeg sögu Snorra og um hans
hermilegu æfilok og oft hefi jeg síðan dáðst að
fjölhæfni og fróðleik þessa snillíngs og minnst
hans með lotníngu. Fjallkonugreinin var mjer
því mjög hugðnæm, og jeg fór þegar að hugsa
um, hvort jeg gæti nokkuð stutt þessa uppá-
stúngu, — en — mig vantaði afl framkvæmd-
anna — peníngana, og fann að hjer átti mörg
hönd að vinna ljett verk.
Rjett eftir að mjer barst Fjallkonublaðið
heimsótti jeg H. Ellefsen hvalveiðamann, og
hitti svo á, að hann var að blaða í nýkomnum
Fjallkonublöðum. Hann rakst fljótlega á hina
umræddu grein. og mjer til mikillar ánægju
heyrði jeg, að hann var uppástúngunni hlynnt-
ur. Við áttum tal um þetta og spurði jeg
hann að skilnaði, hvort jeg mætti nefna nafn
hans í sambandi við áskorun um samskot til
minnisvarðans. Hann kvað já við með áherslu,
sagði sjer ánægju að mega taka þátt í kostn-
aðinum og áskilja það eitt, að myndarstyttan
yrði reist í Reykjavík, en að sjálfsögðu ætti
Island að eignast listaverkið.
Síðan hefi jeg talfært þetta við ýmsa sveit-
únga mína, og einginn er sá enn, að ekki viiji
fúslega styðja svo þjóðlegt fyrirtæki.
Almenn hluttaka í þessu ætti að geta feng-
ist og væri líka skemmtilegust, verkið þannig
ljettast og minníngu Snorra og listfeingi og
dugnaði Einars mestur sómi sýndur.
Þessa tvöföldu skyldu eigum vjer dreingilega
að rækja og mæta Einari á miðri leið, sem
með óþreytandi elju hefur unnið að mennt
sinni og grafið gull úr jörðu.
En valinkunnir menn í Reykjavík ættu að
standa fyrir framkvæmdum verksins og þar
ætti að hefja samskotin.
Eg leyfi mjer því að skora á sagnavini í
Reykjavík og aðra, sem geta verið mjer sam-
dóma um nytsemi þessa fyrirtækis, að efna til
samskota til þess að reisa myndarstyttu Snorra
Sturlusonar þar svo fljótt sem hún verður full-
gjör frá hendi myndasmiðsins og, að auglýsa
sem fyrst í blöðunum nöfn forstöðumanna og
fyrirætlanir þeirra.
Það er ætlun mín, að í hverri sveit lands-
ins sjeu fleiri eða færri menn, sem meta kunna
verk Snorra, eins og líka áhuga myndasmiðs-
ins, og jeg get fullvissað um einhverja hlut-
töku hjer að austan. Jeg kann svo höfðíngs-
lund H. Ellefsens, að ekki láti hann fyrirtækið
fyrir fjárskort daga uppi á miðri leið; en þar
liggur sómi vor Íslendínga við, að vjer drög-
uin oss eigi hjer í hlje og látum útlenda menn
eina um að vinna það verk, sem oss er öilum
skyldara.
Firði, Mjóaf. 6. okt. 1903.
Sv. Ólafsson.
Búnaðarfundur
Fljótsdalshjeraðs,
—o—
A síðastliðnu vori sendi síra Einar Þórðar-
son í Hofteigi áskorun til búnaðarfjela í Fljóts-
dalshjeraði þess efnis að þau kysu fulltrúa til
þess að mæta á sameiginlegum fundi þar sem
ræða skyldi um samband búnaðarfjelaganna
og fleira. Fundur þessi var haldinn á Eiðum
8 okt. 1903 og voru mættir fulltrúar frá þess-
um búnaðarfjel.: Frá Búnaðarfjel. Skriðdals-
hrepps 2 fulltrúar, frá Búnaðarfjel. Vallahrepps
1 fulltr. frá Búnaðarfjel. Eiðahrepps I. fulltr.
frá Búnaðarfjel. Túnguhrepps I fulltr. frá Bún-
aðarfjel. Jökuldalshrepps I fulltrúi. -— I full-
trúi var forfallaður.
Fundarboðandinn, fulltrúi Búnaðarfjelags Jök-
uldals, setti fundinn og skoraði á fulltrúana að
kjósa fundarstjóra og skrifara.
Fundarstjóri var kosinn sjera M. BI. Jónsson
í Vallanesi og skrifari Jón kennari Jónsson á
Eiðum.
Sjera Einar Þórðarson skýrði frá tilgángi
fundarins og hvaða’málefni yrðu á dagskrá.
Þá var tekið fyrir:
1. Fyrirkomulag á sambandi búnaðarfjelaga
á Fljótsdalshjeraði.
Fundarstjóri bar undir atkvæði: »A að mynda
samband af búnaðarfjelögum á Fljótsdalshjeraði.«
Það var samþyKkt í einu hljóði.
Fundurinn ákvað, að væntanlegri framkvæmd-
arnefnd sambandsfjelagsins verði falið að leita
álits hinna einstöku búnaðarfjelaga um fjár-
framlög til sambandsins, taldi nauðsynlegt
að sambandsfjelagið hefði umráð yfir föstum
fjártillögum, sömuleiðis er framkvæmdanefnd-
inni falið að leita eftir því við hreppa og sýslu-
nefndir á fjelagssvæðinu, hvo: t ekki mundi fá-
anlegur styrkur til hins væntanlega sambands-
fjelags.
2. Kvnbœtur og Sýníngar. Samþykkt var
með öllum atkvæðum að eitt hið fyrsta sem
Búnaðarsambandið hefði til meðferðar og ynni
að væH kynbætur og sýníngar á búpeníngi.
Samþykkt var einnig að framkvæmdarnefnd
Búnaðarsambandsins verði falið að hún í Sam-
ráði við kynbótaráðanaut, Guðjón Guðmundsson,
undirbúi myndarlegar búfjársýningar, helst næsta
vor.
3. Fjclagsplœgíng- Tillaga frá fuiltrúa Bún-
aðarfjelags Jökuldals: »Að leitað sje álitsbún-
aðarfjelaga nm, hve rnikið verkefni mundi
fást fyrir plógmann í þeirra umdæmum, og
reynist verkefnið mikið, er framkvæmdanefnd-
inni fafið að útvega góðan plógmann er taki
að sjer plægíngarnar fyrir vissa borgun á hverja
dagsláttu.« Var samþykkt í einu hljóði.
4. Mjaltakensla. Tillaga frá fulltrúa Bún-
aðarfjelags Jökuldalshrepps: »Búnaðarsambandið