Freyja - 01.07.1900, Síða 1

Freyja - 01.07.1900, Síða 1
VOL.3. SELKIRK, JULI 1900. NR 6. MORGUN. Eftir J exnie Betts Hartswick* Sem fögur rós úr dukku djúpi' er grœr svo dags á kinnum roðar ástar blossi, er Lœvirkinn mót sólu Jlogið fœr, þá fagnar nóttin deginum með kossi. Freyr LJÓÐEGGJAN. (1882.] Sing þíi ei með sorg og t&r saknaðsljóð um horfna æsku, þetta vor með veður gæzku, litla framkvæmd, fáar þrár; þessi fvrstu' í frið og leik, fótspor stignu’ á lífsins vegum — lofsæl æskan er við tregum, fögur er hún, en völt og veik. Þá er hennar hrós um of, hinna’ ef skyldum geta að engu manndóms ára mikilfengu, sem þó eiga æðra lof. Þó þau boði strit og stríð, störfin örðug, vinnu langa, *) Það glevmdist að setja nafn höfundarins í síðasta blaði við þýð- ingu Myrrah. sólbrennt enni, sveittan vanga; þau eru samt vor sumartíð. Ekki’ er neinu ætluð hör, æfi löng af hvíld og friði. Það, að vinna, verðá’ að liði, mannsins hæsta hlutverk er. Ei má heimsins lof nö last letja þig í góðu verki, ljóss og sannleiks sigurmerki skyldur ertu að fylgja fast. Sinnar æsku’ ei sakna mun sá, til þessa takmarks bjarta keppir fram, með heilu hjarta, vinnur ei með vol og stun; hann veit mannsins anda er eðli það, að vaka, stríða, og að framför lands og lýða, einnig hvíli’ á sjálfum sér. Sumri þínu’ ef vel þú verð verka til sem fagurt skína, ellihaust þitt heiðri krýna manndóms árin mikils verð. Laun þín verða fríð og fræg, fegri konungs tignar skrúða, hetja ljóssins hæruprúða, öllum gagnleg, góðum þæg. Fegra’ en æskan þín er þá þetta sumar lífsins blóma, ef með drenglund, dáð og sóma vinnur þú að vökva’ og sá.

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.