Freyja - 01.07.1900, Side 4
108
FREYJA
róttindi mæðra mannkynsins.
Star'semi og áhuga, sem konur al-
mennt sýna í þarfir stjórnmála-
flokka, kyrkna, minnisvarða eftir
ýmsa ménn. geistlega og verslega,
heimili presta og biskupa, vildi óg
að þær sýndu og leggðu fram alla
slfka krafta, til þoss að fá sjálfar sig
viðurkenndar senr jafningja bræðra
sinna, í því að byggja upp og halda
við sönnu lýðveldi.
Mér vitanlega hefur William Mc-
Kinloy aldrei sagt eitr. einasta orð
með menntun, menningu og kjör-
gengi kvenna og í stjórn þans hafa
E. C. STANTON.
þær engan fulltröa haft, þó ver höf-
um ár eftir ár, I meir en fjórðung
aldar flutt réttarkröfur vorar í höf-
uðstað sambandsins, og bænarskrár,
mn að fá XVI. lagagrein bætt inn i
löggjöf þjóðarinnar, þess efnis að
veita oss jafnrétti í öllum greinum
við karimenn þjóðarinnar, þá erum
vér enn þann dag í dag óbænheyrð-
ar. Vér höfum enga fulltrúa eða
frelsisvini til að berjast fyrir mál-
efni voru í hvorugri stjórnardeild-
inni.
I 27. kapítula 4. Mósesbókar, er
oss sagt að dætur Zelophehad hafi
komið í stjórnarsctrið og beðið um
erfðarétt gagnvart bræðrum sínum.
beim var sýnd öll virðing; og Jlóses
hinn mikli löggjafi varð snortinn af
réttmæti beiðni þcirra og fór inn í
klefa sinn og lagði hana fyrir drott-
inn, og drottinn sagði:
„Beiðni þeirra er sanngjörn, lát
þær erfa með bræðrum sínum.“
Oldungur gyðinganna hlýddi
þeirri skipun tafarlaust. Og fyrsta
bæn þessara Uyðinga dætra var
heyi’ð. En dætur Jeffersons, Han-
cocks og Adams biðja og öðlast ekki
tænheyrslu, þó að allar grundvall-
arréglur rikisstjórnarinnar séu
brotnar með íéttleysi þeirra.
JTorfeður vorir sögðu:
,,Engin iéttlát stjórn getur orðið
til án samþykkis þeirra sem stjórn-
að er.“
„Skattálögur £n hluttekningar í
ríkisstjórninni, er harðstjórn.11
Og þó ei' lielmingur þessaíar þjóð-
ar undir stjórn og skattálögum, án
hans samþykkis.
Meðan þessu fer fram, geta for-
setar og flokkarekki verið oss neitt
áhugamál.
Orðsending mín til allra kvenna í
þessu landi er sú, að þær leggi fram
alla þá krafta, sem þær nú nota í
þarflr kyrkju, stjórninálaflokka og
hátiðahalds, til að ávinna sér þá
dýrmætustu eign sem til er í heimi
þessum, þegnlegt og þjóðíélagslegt
jafnrétti.
Elizabeth Cachj Stanton.
(Free Thought Magazine.)