Freyja - 01.04.1907, Qupperneq 4

Freyja - 01.04.1907, Qupperneq 4
222 FREYJA IX. 9. staka áherzlu á voru Afturgöngurnar. Var auöheyrt aö hún skildi til hlýtar tilganghöf. meö því að sína arfgengi sið- ferðislegra synda,—áhrif þeirra á soninn, eins og þau eru sýnd á Osvald Alving. Og þó að sjúkdómurinn í þessu til- felli lægi í blóöi föðursins aðeins, vœri móðirin samt ekki á- byrgðarlaus gagnvart barninu sínu, og þó hún geröi allt sem í hennar valdi stóð til að frelsa soninn, eftir aö hafa gefið honum tilveru, reyndist það of lítið. Fyrsta skilyrðið fyrir því, aö konur fullnœgi skyldum sínum sein niœður mannkyns- ins, er að þær séu vandar að faðerni þess og sínu eigin heils- ufari. Nœsta skilyrðið, eru hæfilegar ytri kringumstæður til að tryggja börnunum heilsusamlegt uppeldi, því það stendur alls ekki á sama hver hin ytri lífsskilyrði eru. Vitaniega liggja sömu skyldur—eða ættu að liggja áfeðrutn mannkyns- ins. En af hverju það kemur, að svo lítur út, sem Ibsen ætl- ist sérstaklega til þessa af rriœðrunum, getur hver ráðið fyrir sjálfan sig. Mín hugmynd er, að hann sé að sýna, hve von- laust verk þetta sé, rneðan konan viðurkennir eins marga drottna og'énn gjörir hún, og skyldurnar við þessa drottna hrekja hana ýmist á þenna eða hinn veginn, og útkoman verður of oft sú, að hún ekki einungis fórnfærir sinni eigin velferð, heldur og einnig velfeið barnanna sinna, með ávtxt- arlausri tilraun til að fullnægja þeirn ölLin, einsogdæmi Mrs. Alving í leikriti þessu sýnir. Eitt af ritum Ibsens sem Emma taiaði um var ,,Brand- ur, “ strangleiki hins unga piests og virkileiki þeirra kenn- inga sem hann flutti, eins og hann skildi þær, sem gekk svo langt, að hann neitaði móðursinni á deyjanda degi imaflausn synda hennar. Eftir þessa menn nefndi hún fjögur yngri skáld og meðal þeirra fyrstan og mestan Bernard Shaw, enskan ieikritahöfund, sem talinn er eftirmaður Ibsens í Re- alism. Minntist hún sérstaklega á tvö leikrit hans, Man and superman og Mrs Warrens profession. Bœöi hafa leikrit þessi verið leikin á Englandi og víðar og fengið mjögmisjafna dóma ekki síður en ,,Afturgöngurnar“, þá er þœr voru leikn- ar í Winnipeg. Síðara leikritið fjallar 11 m ,, fallnar ‘ konurog sýnir hvers konar öfl knýja þær út á lastanna brautir.

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.