Freyja - 01.04.1907, Page 5
IX. 9.
FREYJA
223
A5 lcvknum fyrirlestrinum voru lagöar fyrir hana spurn-
ingar viðvíkjandandi því, af hverju óregla sú stafaði, er leikrit
Shaw’s fjailaöi um og hvernig hægt væri aö útrýma hennú
Svaraði hún hiklaust og einarðlega. Ástæðurnar kvað hún
margar, en aðailega voeru þær hagfrœðislegs eðlis, og yrði
mein það ekki að fuflu bœtt meðan núveraudi þjóðfélagsskipu-
iag héldist.
Merkilegt þótti mér að sjá þenna stóra sal þétt skipað-
ann vel búnu fólki, sem hlustaði með athygli á allt þetta, ÁN
þess að hneykslast, og ég spurði sjálfa mig, hvort þe ta fó k
væri virkilega komið lengra en íslenzk alþýða? Ég ætla ekki
að svara þessari spurningu hér, en geta má þess, að þónokkr-
ir íslendingar, bœði konur og karlar, lilustuðu á fyrirlestur
þenna og voru allir sem ég hafði tal af, ánægðir.
Ég vii skjóta því hér inn, sem einn af merkustu mönn-
um heimsins sagði fyrir löngu síðan, af því að fólk vort virð-
ist annaðhvort aldrei hafa heyrt það, eða eklci heimfœra til
sín sannindin sem í því felast þá um einhver ógeðfeld alþjóða
inál er að ræða. Hann sagði eitthvað á þessa leið: ,,Sann-
asti mœlikvarði j fir siðmenning hverrar þjóðar og sérhverrar
stéttar í mannfélaginu er meðferð þeirra á vandrœðamálum
þeirra. Vitrar þjóðir og vitrir menn. eins og vitrir og sam-
vizkusamir lœknar, grannskoða allt, og þess vegna m. n þeim
auðnast að lækna þjóðarmein sín. En heimskingjarnir loka
augunum fyrirþvísem afiagafer, ana biindandi út í hvert for-
æði sein á vegi þeirra verður, óhreinka síðan alla er þeir
koma nærri, þar til öll þjóðin er smittuð. “ En því minnist
ég nú þessa, að Islendingum hættir við að vera óþarflega til-
tektasamir og viökvæmir fyrir ýmsum rnálum séu þau opin-
berlega rædd í blöðum eða á mannfundum, og hvað helzt
þeim, er menn skyldu ætla, að sjálfra sín vegna heiðu vit áað
þegja. En það eru einmitt þeir, sem ekki skilja h1nn gull-
væga sannleika: ,, Allt er hreinum hreint, “ og að yfir sér-
hverja hugsun hins hreinhjartaða, sanna manns og sérhvert
verk hans má dagsljósið skína, hann hefir ekkert að fela
íyrir neinum. Þess vegna má og hver hans hugsun segjast í
heyranda hljóöi.