Freyja - 01.04.1907, Qupperneq 13

Freyja - 01.04.1907, Qupperneq 13
IX. 9. FREYJA 231 ttil 2>,ess, hve öröugt þaö er aö snúa -viö—öröugt fyrir einstæö- ings ungiings, sem allir trúa illu um, af því aö kringumstæöurn- ar ráku liann einu sinni út á ranga leiö. Hvaöa von gat ég átt? —Þegar ég var í þessum hugleiöingum var dyrabjöllunni hringt, og ég var svo viss um aö það værir þú, og mig langaöi svo til að taka í höndina á þér, og sjá vinarbrosið í augum þín- um—því ég var hrædd viö mínar eigin hugsanir og langaði svo •eftir einhverju hjartastyrkjandi, og ég fékk það líka. Því úti fyrir stóð maður með kcrfu af allskonar yndislegum blómum, «g bréf til min. Það er hérna, ég skal lesa það fyrir þig. „Kæra ungfrú OmarJ Endur fyrir löngu var leirpottur einn óhamingjusamur, sem laskaöist í tilbúningnum, en hafði þrátt fyrir það tæki til að hjálpa öðru leirkeri, sem var betur gjört. Það var uppvöðslumikið, þó það væri aðlaðandi og hraust líkamlega, en andlega því miöur illa komið. Það virtist tæplega sjálfu sér meðvitandi um allt það góða, sem í eðli þess bjo, svo helzt leit út fyrir, að það mundi brotna með öðrum leirkerum af lakara tagi. Hamingjusnauði leirpotturinn gjörði reyndar liíið. — Hann vissi ekki hvernig hægt væri að eignast dýrindis demanta á heiðarlegan hátt, — en samt gat hann gefið hinu fahega keri tækifæri til að sjá að sér. Og hvernig þetta tækifæri var nctaö, sá hann í kvöld, sér til svo mikillar gleði, að liann gat ekki stillt sig um aö láta kerið vita af því. Svo meö- an hann sendi Barnett út til að tína saman blórnin, ritaði hann þessar línur til þess að það skyldi verða hluttakandi i þessari g'leði hans. Þessi pottur var eins og þú veizt strandreki í byrj- un t'lveru slnr.ar og hefir því aldrei fyllt Það pláss, sem pottar vanalega eiga að fylla. Tilveran hafði lítið aðlaðandi fyrir hann, og af því hann hafði um fátt að hugsa, gat hann ekki látið vera að hugsa oft til kersins og hver myndu verða æfiaf- drif þess. Hann fann svo mikið af drenglyndi og hugrekki hjá kerinu, að hann dáðist að þvi, þrátt fyrir allt, og þessir kostir ljómuðu gegn um ókostina eins og kvöldstjörnur gegn um cirungaleg næturský. Og þú mátt nú vera viss um, að traustið sem potturinn ber til kersins—hversu lítilsvirði, sem því 'kann að finnast það, hefir valdið pottinum, sem vakir margar nætur e'nn, margra alvarlegra hugleiðinga, og að honum þykir milcils um vert að sjá hversu,það hefir verið á góðum rökum byggt. Væri nú potturinn Idealisti, gæti hann ímyndað sér að kerið væri eitthvað meira og stærra, svo sem fögur blómsturkrukka, me' rl'áandi hliðum og gylltum rósum, en má: !-~e vanta þó lífs- revn-lu og víðíýni. Trn kerið er einungis ker ’ iið til af sama

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.