Freyja - 01.04.1908, Side 15
X. 9-
FREYJA
215
hver koemi, henntist íaöir hennar inn, berhöföaöur oglafinóð-
og hvœsti þessum oröum út úr sér: ,,Hún kemur, hún kem-
ur!“ Þó þetta vœri ekki sem. alira greinilegast, voruþauekki
iengi í vafa um hva'ð það meinti, því áður en hann hafði lokið
erindinu, sáu þau Rómu standa kafrjóða og móða af hlaupun-
um upp stigann og í kvöldbúningi sínum að baki hans.
,,Má égtala við herra Rossi?" sagði hún og horfði áhann
þarsem hann stóð yí:r barninu undrandi yfir þessari óvœntu
heimsókn og kafrjóður,
„Gjörið svo vel að koma inn, Elín kemur með ljósið og
ég kem rétt strax“ sagði hann seinlega og bar svo drenginn inn
í rúmið hans og hagrœddi honum þar eins og bezta móðir hefði
gjört. Að því búnu kom hann aftur og gekk þá eins og í leiðslu
inn í setustofuna.
Róma leit í kringum sig og sá fátæktina skínaút úröllum
hlutum. Vélina hafði Rossi látið á sinn stað án þess að taka
plötuna. Rómu lá við að snúa sveifinni og setja vélina af stað
en í því heyrði hún fótatak Davids og setti sig því ( stelling-
arnar til að mæta honum. Hún sá sjálfa sig í speglinum með
mikla hrafnsvarta hárið í körfu uppi á höfðinu, allt nema einn
lokk, sem laumast hafði út undan og hringaði sig á fannhvítu
enninu. Hún var ekki laus við einhverjar ónota tilfinningar
er hún hugsaði um erindi sitt í hús þessa manns. Og þegar
hann kom inn og benti henni að fá sér sœti en hallaðist sjálf-
ur þegjandi og alvarlegur upp að arinhillunni, fór um hana ó-
nota titringur. og þó hafði hún fullt vald yfir sér er hún á-
varpaði hann.
„Egveit að ég með komu minni hingað brýt á móti ab
mennum siðvenjum, en þér hafið neytt mig til þess.“
David hallaöi sér svo, að hann sœi sem bezt framan í
hana en svaraði engu, svo hún hélt áfram:
„Egheyrði til yðar í morgun og duldist ekki, að mér var
ætluð sneiðin. “ Enn þá þögn frá Rossis hálfu og enn hélt
hún áfram: ,,Væri ég karlmaður hefði ég líklega skorað yð-
ur á hólm. Eins ogástatt er verð ég að láta mér nægja, að
segja yður, að þér hafið haft mig fyrir rangri sök. “
, ,Rangri sök, “ endurtók hann.