Freyja - 01.11.1908, Blaðsíða 10
FREYJA
XI. 4
82
,, Já, herraminn. “
,,Um hva5?“
,,Þetta bréf, “ sagði Brúnó og benti á bréfið frá Rómu.
,,0g 'nvað um það?“
Brúnó varð vandræðalegur en sagði þó: ,,Fólk er farið
að tala um yður, herra minn. “
,,Og hvað segir það;“
, ,Að þegar hermaðurinn horfi í móti sól, sé ósigur vís. “
,,Svo fólkið segirþetta!'1
, ,Já, og er það ekki von? Þegar Lýðveldisbaráttan hófst,
byggði fólkið allar sínar vonir og allt sitt traust á yður. Síð-
an er heill mánuður og hvað hafið þér gjört?“
David lét höfuðið síga ni.ður á bringuna en svaraði engu.
,,Þolinmœði! Þér segið fólkinu að hafa þolinmæði, Hvað
þýðir það? Stjórnin hefir enga þolinmæði, Hún hefir safn-
að sér 40,000 hermönnum til að skjóta fólkið niður ef það
reynir að andmœla brauðskattinum, og þegar hann verður að
lögum 1. nov. má gizka á afleiðingarnar. Næstu viku höldum
vér fundinn í Coliseum. Þér kölluðuð þenna fund og fólkið
er farið að veðja um að þér komið þangað ekki. Hvarverðið
þér þá, herra minn? Heima, hjá þessarivondu konu---------“
,, Þei! — Hvaða rétt hefir þú tilaö bera mig brigzlum?, “
sagði Davið í svo hvössum tón að Brúnó hrökk við, en áttaði
sig þó og sagði: ,,Hvaðarétt! Þann rétt sem vinur hefir
til að aðvara vin, sem verið er að svíkja, því nú á líka að
svíkja fólkið gégnum þrekleysi leiðtogans. Aðferðin er jafn
gömul heiminum. Það er Delila og Samson á ný. Éða hafið
þér ekki heyrt gamla rómverska málsháttinn: ,Maðurinn er
púðrið, konan er bandið, svo kveikir kölski í við hjúskapar-
standið.
David starði steinþegjandi á Brúnó, sem var orðinn sót-
rauður af ákafa og hálf sneipulegur er húsbóndi hans svaraði
engu, samt hélt hann áfram: ,,Ég veit hvað ég segi, David
Rossi! A bak við allt þettastendur innanríkismálaráðgjafinn.
Hann veit hvar og hvenær þér sjáið Rómu, þauskrifast á dag-
lega og ég pósta bréfinþeirra. Hennar hús með öllu sem því
tilhevrir er hafs. Eða haldiö þér máske að hún gæti lifað