Freyja - 01.11.1908, Blaðsíða 11
XI 4-
FREYJA
*3
eins ríkmannlega og hún gjörir af iön sinni einni samaní"
,,Nei, hún er að svíkja 3'öur, “ hélt Brúnó áfram hrœdd-
ur og undrandi yiir ofdirfsku sinni. ,,Hún er að táldraga yð-
uð, það sjá ailir, —allir nema þér. Þér komuð illa við kauu
hennar og barónsins á páfahátíðinni sœlu og hún er að borga
yður fyrir þau bœði. “
,,Þetta nœgir. Brúnó.“sagði nú Daviö stillilega.
,,Ö11 Rómaborg veit þetta, herra tninn og innan skamms
fara allir að hlægja að yður, “ sagði Brúnó ólundarlega.
,,Þetta nægir, Brúnó, farðu að sofa. “
, ,Eg veit að hjartað krefst fullnægingar, en það sinnir
engum ástœðum, “ hélt Brúnó áfram,
,,Faröu að hátta, Brúnó, eða ertu ekki ánægður með að
hafa með slúðursögum þínum komið mér til að illmæla sak-
lausri stúlku?“
,,Gjörði ég það?“
,,Já, hefðir þú ekki rœgt hana við mig áður en égsá hana
þá hefði ég aldrei illmælt henni. “ ,
„En hún átti það skilið og meira en það. “
,,Húnátti það ekki skilið, og það var rógburðurinn úr
þér sem kom mér til að lastmœla henni. “
Það var því líkast sem Brúnó hefði fengið löðrung.
,,Berjið mig aftur ef yður sýnist. ,,Asnar þola mikið, en far-
ið samt ekki of langt, David Rossi, “ sagði Brúnó þungur á
svip.
,,Farðu þá ekki of langt með lygar og tortryggni þína. “
,, Lygar og tortryggni! Heilaga móðir! Er það tor-
tryggni að hún hefir látiðyður sitja fyrir í verksmiðjunni sinni
til þess að skemmta kunningjuin sínum við að horfa á skrípa-
inynd af yður? —Tortryggni! Ekki nema það!“
,, Haltu áfram, Brúnó, ef þér finnst það eiga við. “
„Ilvað eiga við?“
,,Að éta hennar brauð og rægja hana fyrir,“
,,Það er lýgi, David Rossi og þér vitið að svo er. Ég á
mína vinnu og hana sel ég hæst bjóðanda. En samvizka mín
tilheyrir guði og hana getur enginn keypt. “
Nú hýrnaði yfir Rossi. ,,Þú segir satt, Brúnó. Ég bið