Lísing - 01.12.1898, Page 1
I. Ár. WINNIPEGr, MAN. DESEMBER, 1898. Nr 2.
REIKUR.
(Framhald.)
Eins og ég er búinn að segja lentum yið í JafPa og er það
lítill bær óhreinn og fullur óþverra. Eru Mahómetsmenn þar
ráðandi, en megin þorri íbúanna er þó Tirkir og Arabar. Fá-
einir Englendingar eru þar og sísla við verslun og klófesta
skildinga þá sem aflögu eru. Ekkert er þar drikkjar nema
vatn og tirkneskt kaffi. Var það ljóst af öllu að við vorum ekki
í kristinni borg. Eitthvað tíu mílur inn í landið á bak við borg-
ina liggja Sharons-sléttur. Liggja þær meðfram ströndinni á
nokkuð löngum katla út og suður, öldumindaðar, og sínast vera
mjög frjósamar. Sá ég þar mikið af oranges hinum fegurstu,
sem ég nokkru sinni hef séð, og gnægð var þar af oliuvið. Dá-
lítið var þar af korntegundum og mikið af garðávöxtum. En
lítið annað en oranges og olia er flutt úr landi. Þurfa íbúarnir
als þess við sem þar er ræktað og stundum þarf að flitja mikið
inn þangað af matvælum til að forða menn hungurdauða. I
Jaffa var ekkert merkilegt að sjá. Vorum við fegnir að komast
þaðan burtu og stigum á lestina til Jerúsalem, sem er eitthvað
83 mílur vegar þaðan, þó að leiðin sé 69 mílur eftir járnbraut-
inni. Var það fimm stunda ferð.
Fórum við sem leið lá eftir hinum fögru sléttum Sharons
og komum brátt að f jöllunum, gekk þar seint og hægt í ótal
krókum ifir gil og gljúfur, klungur og kletta, og kræktum við í
mjóum vögnum með griphjólum upp eftir f jallahlíðunum upp á
brúnirnar, og var loks staðar numið á útjöðrum hinnar heilögu
i