Lísing - 01.12.1898, Blaðsíða 3

Lísing - 01.12.1898, Blaðsíða 3
3 Liktin er svo óþolanni, að ekki verður því líst. Einhver var sá gárungi að hann gat þess til, að náþefur þessi, sem var um alla borgina og hin heilögu stræti, væri liktin af líkömum hinna helgu manna, sem komu út úr gröfum sínum við uppris- una, ’gengu inn í borgina og birtust fyrir mörgum‘, og hver veit hvort þeir hafa nokkurn tíma farið í grafir sínar aftur. Það er hvergi sagt frá því, að þeir hafi farið í þær aftur, og vissulega hefur þá ekkert langað til þess, cg þikir snmum mönnum það því ekkert undarlegt, einkum þeim sem finna þenna ifirnáttúr- lega þef, að þeir séu enn að ganga inn í borgina og leggi af þeim þessa heilnæmu likt til héilsubótar trúuðum sálum. Sannarlega ætti slíkt að geta firir komið og miklu fremur í Jerúsalem en í nokkurri annari borg. Ekkert er ómögulegt eða óhugsandi er til kraftaverka kemur. Það er sagt að í borginni séu um 80,000 manns og eru af þeim 8 þúsundir Tirkir og Arabar — Máhómetsdírkendur — 2 þúsundir rómversk-kaþólskir, 4 þúsundir rétttrúaðir (irikkir. 1 þúsund Armenar, nokkur hunðruð Koftar, Eþiopar og Sírar, og hérumbil 3 hundruð prótestantar. Af hinum, sem eftir eru, eru 60 þúsundir Giðingar,og hefur helmingur þeirra komið frá Kúss- landi, verið rekinn þaðan firir fáum árum, og hafa því hingað farið af því að þeir gátu ekkert farið annað. Barón Hirsch og nokkrir ríkir menn í Englandi og öðrum löndum fæða þá og klæða að miklu leiti í guðsþakkarskini- Tirkir hafa öll borg- araleg ifirráð og firirlíta af öllu hjarta bæði Giðinga og kristna. En þeir gjalda þeim allir í sömu mint. Þannig er því varið, að fólkið í hinni heilögu borg bír ekki saman í neinu bróðurlegu samkomulagi eða kærleika. Það er eins um flesta menn þar á hvaða aldri sem þeir eru, hvort heldur þeir eru ungir eða gaml- ir, karlar eða konur. þá eru þeir allir ákaflega sóðalegir, þeir eru sínishorn af hinum aumustu betlurum heimsins, rifnir og tætt- ir, óhreinir, ógreiddir, berhöfðaðir og berfættir, svo að ekki eru aumari menn hugsanlegir. Mikill fjöldi manna er þar augn- veikur. Eina atvinnan sem þar er, að undanskildri atvinnu á gistihúsum, er tilbúningur á talnaböndum og krossum úr olíu- við og perlumóður, á líkneskjum helgra manna úr tré, ljósminda- gjörð af helgum mönnum og stöðum, biblíuspjöld úr olíuvið, pressuð blóm úr landinu helga og eldiviður úr úlfaldataði. Eins og eðlilegt er, er þar markaður firir úlfalda- og geitaket, sauða- ket og garðmeti af ímsu tagi. Eru kálhöfuð þar stærst og best

x

Lísing

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lísing
https://timarit.is/publication/35

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.