Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 2

Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 2
18 stafina, og geta því ekki hafa lært neitt bólclegt. En þrátt fyrir þetta hafa þau þó fengið undirbúning, að vísu mjög mis- jafnan, en öll nokkurn og hann mjög mikilsverðan. í móður- málinu hafa þau lært aðalundirstöðuna, það sem mest er um vert, að ta^a. Það skal strax tekið fram, að í þessu efni kemur skeytingarleysi og mentunarskortur heimilanna oft einna sorglegast í ljós, því að mörg börn hafa lært svo illa að tala, lært svo óhreint og bjagað mál, að næsta erfitt verður síðar að venja þau á að tala rétt, og móðurmálskenslan, bæði lestur og réttritun, verður fyrir þá sök margfalt örðugri. í reikningi hafa einnig flest börn fengið meiri eða minni undirbúnings- fræðslu á heimilunum. Þau hafa læ^'t að telja, í öllu falli til 10 eða 20, og þessar tölur hafa þau lært að setja í samband við eitthvað sýnilegt og áþreifanlegt, fingur sína og tær, skelj- arnar sínar, leggina sína o. s. frv. Það má jafnvel gera ráð fyrir, að þau hafi hugmynd um að leggja saman og draga frá; þegar börn leika sér, kemur það oft fyrir, að þau þuifa að nota þessar reikningsaðferðir, og ber þá eigi á öðru en að þau geti beitt þeim rótt; en síðar vill oft mikið á það bresta. Um kristindóm er hið sama að segja. Börn, sem alast upp á góð- um og kristilegum heimilum, hafa lært þar vers og bænir, vita vanalega dálítið um hátíðirnar, hafa. flest komið í kirkju og fengið einhverja hugmynd um aðalatriði guðsþjónustunnar og aðrar helgar athafnir, sem þar fara fram. í landafræði hafa þau sömuleiðis fengið undirbúning; flest þeirra þekkja átt- irnar og vita deili á fjöllum, sléttum, hæðum, dölum, vötnum, ám o. s. frv. ?á þekkja þau líka margt af því, er til nátt- úrusögunnar heyrir, bæði dýr og jurtir. Nú eru þegar taldar flestar þær námsgreinar, sem kendar eru í barnaskólum, og mun enginn geta neitað því, að í öllum þessum greinum hafi flest börn þegar á 5—6 ára aldrinum fengið talsverða þekk- ingu. Hór kemur nú tvent til greina, og þarf hvorttveggja vei að athuga. Hið fyrra er það, að þessi undirbúningur só réttur, og er það heimilanna að sjá um það. En hitt er, að menn síðar færi sér þennan undirbúning réttilega í nyt, að kennarar

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.