Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 3

Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 3
19 eða uppfræðendur barnanna byggi ofan á það af þessum grund- velli, sem nýtilegt er, en gangi ekki fram hjá því. í báðum þessum atriðum, og engu síður í hinu síðara, brestur oft mikið á, að menn gæti skyldu sinnar, og einmitt þess vegna er það, að börnin breytast svo mjög, þegar þau fara að læra. Kennar- arnir meðhöndla efnið á alt annan veg en börnin áður höfðu vanist, og er þá við þvi buið, að þau tapi sér og skiiji hvorki upp né niður í neinu. Það verður aldrei um of brýnt fyrir mönnum, hversu áríðandi það er að uppeldi og fræðslu barnanna sé þegar frá byrjun beint 1 rétta átt. Margir eru þeir, sem verða kramar- menn í líkamlegu tilliti vegna þess að ógætilega eða óhyggi- lega hefir verið með þá farið, á meðan þeir voru í reifunum eða vöggunni; en hinir eru þó enn fleiri, sem verða andlegir kramarmenn, sökum þess að hinir andlegu hæfilegleikar þeirra hafa verið vanræktir eða orðið fyrir óeðlilegum og skaðlegum áhrifum á barnsaldrinum. Á öllum þeim heimilum, sem um börn eiga að annast, hvíiir þung ábyrgð í þessu efni. Enginn skyldi ímynda sér, að þessi ábyrgð sé minni fyrir það, þótt börnin síðar eigi að ganga í skóla. Skólinn á einungis að vera heimilunum til aðstoðar í þeim atriðum, sem þau eigi eru einfær um að leysa af hendi; en af því leiðir ekki, að heimilin megi vanrækja neitt það, sem þau megna, hvorki að því er hið líkamlega né hið andlega uppeldi barnanna snertir. Hversu góðir sem skólarnir eru, og hversu mikið traust sem menn bera til þeirra, þá mega þó heimilin aldrei gleyma því, að það eru þau, sem eiga að leggja undirstöðuna, einnig til hinnar bóklegu fræðslu barnanna. Á heimilunum fá börnin fyrstu hugmyndimar, og það er betra að þessar hugmyndir sóu fáar, en Ijósar og réttar, heldur en að þær séu margar, éf þær þá jafnframt eru rangar eða óljósar. Það er betra að kenna því barni, sem veit lítið, en veit það vel og skilur það litla, sem það veit, heldur en hinu, sem hefir fengið mikla en miður áreiðanlega yfirborðsþekkingu. Starf kennarans verður bæði erfitt og vanþakklátt, ef að hann þarf að leiðrótta marg- ar rangar hugmyndir hjá börnunum. Áminning vor til heim-

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.