Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 13

Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 13
29 það lengi miklum andróðri og gátu menn ekki komið sér sam- an um það, fyr en síðastl. vetur; þá varð samkomulagi á kom- ið og frumvarpið samþykt, að vísu með allmiklum breyt- ingum. Yar það einkum að þakka drengilegri framkomu kenslumálaráðgjafans. Hinn 24. marz hlutu lögin staðfestingu konungs, og skal hór skýrt frá helztu ákvæðum þeirra. Á aldrinum frá 7—14 ára skulu öll börn njóta kenslu. (Þeir, sem eigi 'láta börn sín ganga í barnaskóla þá, sem standa undir umsjón ríkisins, verða á annan hátt að sjá þeim fyrir fræðslu, er að minsta kosti samsvari þeirri fræðslu, er skól- arnir veita). Vanræki skólabörn að koraa í skólann, varðar það sektum, alt að 1 kr. fyrir hvern dag. í hverjum bekk mega vera í mesta lagi 35 börn. Skyldu- námsgreinar eru: danska munnl. og skrifl. (að minsta kosti 287 stundir í hverjum bekk á ári), trúarbrögð, skrift, reikn- ingur, saga, landafræði, söngur, leikfimi fyrir drengi og handa- vinna fyrir stúlkur, og auk þessa í kaupstöðunum: teikning. í náttúrufræði, skólaiðnaði og leikfimi fyrir stúlkur má einnig veita kenslu, og í kaupstaðaskólunum ennfremur í stærðfræði, lifandi máium og húslegum störfum. Öll þau áhöld, sem börnin nota að eins í skólanum, skulu þeim lögð til af opin- beru fé. Kenslutíminn er að minsta kosti 41 vika á ári og skal hver bekkur í skólum upp til sveita fá eigi minna en 18 stunda kensiu á viku, en í kaupstöðunum minst 21 st.; er hér eigi talin með kensla í leikflmi, handavinnu, teikningu, skólaiðnaði né húslegum störfum. Sveitarnefnd eða bæjarstjórn skal í samráði við skólanefnd semja töflu, er ákveði, hvort drengjum og stúlkum skuli kent saman, hverjar námsgreinar kendar skuli í hverjum bekk, hversu margar stundir ætiaðar skuli til hverrar námsgreinar, hversu mikið hver bekkur skuli læra í hverri námsgrein o. s. frv. Þeir einir, sem tekið hafa burtfararpróf frá einhverjum kennaraskóla í Danmörku, geta fengið stöðu sem kennarar við hina opinberu skóla. Fasta stöðu við skólana í kaupstöðunum og yflrkennarastöðu við skólana upp til sveita geta þeir einir

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.