Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 6

Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 6
22 skemtilegt. En það er svo sem ekki mjög skemtilegt að vera hvern daginn eftir annan, hverja vikuna eftir aðra að staglast á því sama, einsamall, útilokaður frá mannlegu félagi og allri barnslegri gleði. Ofan á alt þetta bætist svo, að þau skilja oft ekki eitt einasta orð af því, sem hau eru að læra, og því fer svo fjarri, að þau hafi nokkra hugmynd um, að það sé nokkuð, sem þau geti haft neitt gagn af eða sem komi þeim neitt við. Þegar barnið spyr, hvers vegna það eigi að læra alt þetta, þá fær það vanalega þetta svar: Ef að þú ekki lærir það, verður þú aldrei fermdur. fetta svar er nú gott og blessað í sjálfu sér; en það er þýðingarlaust að gefa börnum það, því að þau skilja ekki heldur þýðingu fermingarinnar. Menn munu nú segja, að fermingin standi fyrir börnunum sem nokkuð stórt og eftirsóknarvert, sem hátíðleg athöfn, og því skal ég ekki neita. En hvers vegna? Skyldi það ekki oft vera af því, að þau vita, að þá losast þau við þennan lærdóm, sem þeim er svo nauða- illa við? Því að sannleikurinn er sá, að allflestum börnum er illa við hann, þau hata hann, hata lærdómsbókina sína og fá smátt og smátt óbeit á því efni, sem í henni stendur. Það er ákaflega sorglegt, að þessu skuli vera þannig varið; en það er nú samt þannig; það get ég fuilyrt, því að ég þekki það svo vel, hefi haft kynni af svo mörgum sveitabörnum og fengið tækifæri til að komast eftir því, hve geðfelt eða ógeðfelt þeim er kristindómsnámið. Já, það er ákaflega sorglegí að hljóta að viðurkenna þetta, því þegar maður byggir á því og dregur ályktanir af því, þá hlýtur maður að komast að þeirri niður- stöðu, að þannig löguð kristindómsfræðsla hafi alt annað en betrandi og glæðandi áhrif, að hún hvorki geri börnin betri né færari til að ganga út í líflð, og það ætti þó kristindóms- kenslan helzt að gera, og þa"ð getur hún lika gert, sé henni hyggilega hagað. Ég ætla þó ekki að vera svo strangur að segja, að jafnvel þannig löguð kristindómsfræðsla, sem ég nú hefl Iýst, geti engin góð áhrif haft. í öllu falli venur hún börnin á þolinmæði, ef til vill líka á skyldurækni og hlýðni, þótt sú hlýðni sé að vísu nokkuð viðsjárverð, því að það er blind hlýðni; börnin hlýða, án þess að þau fái neinar skyn

x

Kennarablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.