Kennarablaðið - 01.11.1899, Blaðsíða 8
24
skoðanir hafa verið, þá hafa menn samt ekki haft svo mikið
andlegt þrek né trúarbragðalega þekkingu, að þeir hafi getað
rekið boðbera þeirra af höndum sér, heldur hafa menn fúslega
hlýtt á kenningar þeirra, og margir jafnvel fagnað yfir hverju
því hnjóðsyrði, sem fallið hefir í garð kirkjutrúarinnar. Það
liggur sannarlega nærri að ætla, að hjá þeirri þjóð, sem þannig
umhugsunarlaust eða að minsta kosti umhugsunarlítið kastar
fyrir borð því, sem henni ætti að vera hvað dýrmætast, að
hjá henni sé kristindómsuppfræðslunni að einhverju leyti ábóta-
vant, að hjá henni sé kominn inn einhver leiði á þeirri sálar-
fæðu, sem hún á að venjast við, svo að hún sækist eftir til-
breytingu í einhverri mynd. Og ég fyrir mitt leyti er nú sann-
færður um það, að þessi leiði hefir hjá mörgum manninum
byrjað í fjósinu, þegar hann var þar sem barn að berjast við
að læra kverið sitt. Og þó nú svo væri, að eitthvað af öllu
þvi, sem hann lærði þar, kynni siðar að hafa bætandi áhrif á
hann, þá er það áreiðanlegt, að hann hefir komist að því dýrt
keyptu, því að hann hefir grátið fyrir það mörgum tárum,
annaðhvort tárum vonleysis og örvæntingar eða gremjutár-
um; hann hefir gefið fyrir það drjúgan hluta af barnslegu lífs-
gleðinni sinni og ef til vill ekki svo lítið af traustinu á sjálf-
urn sér; því þegar börnunum gengur illa með það, sem þau
eiga að gera, hættir þeim svo mjög til að missa traustið á
sjálfum sér, og hversu skaðlegt það er, eigi sizt fyrir börnin,
sem eiga alla baráttuna í lífinu eftir, það liggur í augum opið.
Þetta gefa þá mörg íslenzk börn fyrir það að fá inn í
höfuðið heilt trúarlærdóma-kerfi, sem fæst þeirra nokkurn tíma
læra að skilja til hlýtar, sem sum varla skilja eitt einasta orð
í, en flest hafa gleymt að örfáum árum liðnum. Þetta gefa
þau fyrir það, auk alls tímaní, sem fer tii þess að læra það,
tíma, sem er svo afardýrmætur, því að það er sá tími, sem
menn að réttu lagi ættu að hafa mest gagn af; það er aðal-
námstíminn þeirra flestra, undirbúningstíminn undir lífið. Ég
held nú, að þetta sé nokkuð dýrt keypt, og að það væri gott,
ef að hægt væri að finna upp ráð til þess að fá fyrir minna
verð eitthvað betra eða í öllu falli vissara en þennan vpnar-