Kennarablaðið - 01.07.1900, Page 9

Kennarablaðið - 01.07.1900, Page 9
153 að gert er ráð fyrir því, að á sumum heimilum só enginn bók- læs maður, er geti kent unglingum lestur. Þegar á þessa öld kemur, koma að vísu fram uppástungur um yfirgripsmeiri al- þýðufræðslu en í bóklestri einum og kristindómi, en þar lendir að mestu við orðin tóm; þó vex óneitanlega fræðsla almenn- ings og fræðslufýsn, eftir því sem á öldina líður, og loks kem- ur svo, að þingið samþykkir iög um uppfræðslu barna í skrift og reikningi, og staðfestir konungur þau 9. janúar 1880. Þótt aðgangur só all-auðveldur að lögum þessum, virðist eigi að síður vel við eiga, að kennarar hafi þau prentuð í sjálfu kenn- arablaðinu, og skulu þau því sett hór. 1. grein. Auk þeirrar uppfræðsluskyldu, sem prestar hafa, skulu þeir sjá um, að öll börn, sem til þess eru hæf að áliti prests og meðhjálpara, læri að skrifa og reikna. 2. grein. Reikningskensla skal að minsta kosti ná yfir samlagning, frádragning, margföldun og deiling í heilum tölum og tuga- brotum. 3. grein. Rita skal prestur árlega í húsvitjunarbókina álit sitt um kunnáttu hvers barns í skrift og reikningi, sem og' um hæfi- legleika þess til bóknáms, og skal prófastur í skoðunarferoum sínum hafa nákvæmt eftirlit með, að slíkt só gert. 4. grein. Komist prestur að raun um, að unglingar á einhverju heimili njóti eigi fullnægjandi uppfræðingar í þessu tilliti, annað- hvort fyrir hirðuleysi eða mótþróa húsbænda, ber honum í sam- einingu við hreppsnefndina, eða, bæjarstjórnina að gera ráðstöf- un til, að þeim verði um svo langan tíma sem með þarf komið fyrir á öðru heimili í sókninni, eða fyrir utan hana, þar sem þeir geta fengið hina nauðsynlegu tilsögn. Kostnaðinn, sem af þessu leiðir, eru foreldrar eða fósturforeldrar skyldir að greiða,

x

Kennarablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.