Plógur - 30.10.1899, Blaðsíða 2
66
an pening á jarðirnar. Og þann-
ig erþað þann daginn í dag. Eru
þ>ví þessi bústofnslán (kúgildin)
einkennileg lán og verri lán en
nokkur önnur lán, þar sem að
-verður að gjalda af þeim 3—4 sinn
um hærri vexti en af öðrum lán-
Tim, og þó lang verst af öllu
og óeðlilegast er það, að mega
ekki borga lánið þegar menn vilja.
— Hvaða atvinnuvegur mundi nú
þola slfka lántöku, annar en land-
búnaðurinn, þótt mörgum þyki lítið
til hans köma.
Því verður ekki á móti haft, að
þessi bústofnslán, kúgildin. hafa
þó oft orðið mörgum frumbýling
til hjálpar, frelsað margan barna-
tnannínn frá sveitinni. Meira að
segja, verið sá eini bústofninn, sem
fjölda margir hafa haft til að byrja
með bú, sem síðar hafa orðið
sjálfstæðir og vel efnaðir menn.
Eru ekki fjölda margir bændur
sem ekki hafa stærra bú en hér-
um bil 2000 kr. virði?—2 kýr, 40
mylkar ær, og tilsvarandi af geld-
fé og 5 hross, eru hér um bil 1300
kr. virði. Setjum svo að búsá-
höld séu 700 kr. það verða þá
2000 kr. höfuðstóll búsins. En
nú á ekki bóndinn þetta alt. A
jörðinni er a að giska 2 kúgildi,
altað200kr. virði, sem hann hefirað
láni frá eiganda jarðarinnar, gegn
12—i6°/o vöxtum. Ekki væri það
mikið til framfæris, bóndanum
með skyldulið sitt, þótt hann hefði
þessar 2000 kr. eða líka upphæð
á 4°/o vöxtum í sjóðum, eða hjá
einstöku mönnum.
Það vill nú svo vel til, að ég
þekki það heimili, sem hefir við-
líka bú og hér er nefnt, og áþví
lifa IO manns, auk vinnufólks, sem
sé húsbændurnir, 7 börn ung og
öldruð kona, móðir húsfreyjunnar.
Hvað má ætla að þetta bú gefi
af sér háa vexti? — Vér skulum
fara hægt í sakirnar og segja, að
upp :ldi hvers barns sé IOO kr.
og konunnar sómuleiðis. Ef nú
hjónin væru í vist gætu þau alið
önn fyrir 2 af þe^sum 7 omógum.
Uppeldi 5 ómaga er því vextir af
buinu, 2000 kr. höfuðstól. Gróði
búsins er þá 30%. En annar
mælikvarði er réttari, til þess að
reikna arðinn af búinu, en þá yrðu
renturnar miklu hærri en þetta.
En það yrði oflangt mal að líta á
þetta frá þeirri hlið.
Eg hefi att tal við stórefnaðann
uppgjafa bónda, sem (ullyrðir það,
að hann hafi oft grætt afbúi sínu
um 5°—60% segist þekkja dæmi
til þess, að bú hafi gefið af sér
85% í góðu árferði.
Eg býst nú við að menn hafi
spurningu á leiðum höndum, þeg-
ar þeir lesa þessar línur: Því búa
þa ekki allir vel og eru efnaðir
menn, sem stunda þann atvinnu-
veg, sem gefur svona háa vexti?
Eg svara þessari spurningu blátt
áfram með eftirfarandi spurningu:
Hve mikill er h'ófuðstóllinn?—3O0/o
rentur af 2—3000 kr. er ekkert stór-