Plógur - 01.04.1907, Qupperneq 2

Plógur - 01.04.1907, Qupperneq 2
26 TPLÖ GUR. Einu sinni voru það sérréttindi, — veitt af konunglegri náð — göfugustu mann» á Frakklandi, að sækja Lúðvík 14. handþurku og þvottavatn, toga í sokka hans og klæða hann í skyrtuna. Og enn þá eru þeir til, sem þættust hafa himin höndum tekið, mundu þeir njóta þeirrar náðar, að mega hella úr konunglegu »næturgagni«! Eg gæti ti'úað því, að á Þingvöllum í sumar þroskaðist fremur sleikjuhugsun- arháttur, sem skapar og elur upp fyrirlitlega vesalmensku, en fölskvalaus þjóðernistilfinning.— Og allir þeir, sem skreyta sig þessum alkunna svonefnda höfð- ingjabrag taka þar ef til vill sótt, liina illkynjuðu krossasótt, ef þeir hafa ekki fengið hana áður. Að vísu eru það fáir, sem sýkjast af þessum kvilla fyrr en á fimm- tugs og sextugsaldri. — Það væri vel tilfallið, að fs- lenska þjóðin héldi einskonar alþing á Þingvelli. Ætti það vel við, að sníða slíka þjóðsam- komu að svo miklu leyti, sem hægt væri, eftir hinu forna al- þingi, að löggjafar- og dóm- störfum frátöldum. Slíka sam- komu ætti að kosta af almanna- fé að nokkru leyti. Væri þá vel, ef þangað kæmu allir helstu menn þjóðarinnar af öllum stétt- um. En einkum þó bændastétt- in. Þangað kæmu fyrst og fremst kosnir fulltrúar 144, jafnmargir og sátu forðum í lögréttu. En svo væri hverjum heimilt að koma þangað að öllu leyti á sinn kostnað, sem vildu og gætu, og mundu þeir margir verða. Þótt hið opinbera legði fram til þessarar þjóðarsamkomu 20—30 þús. kr., þá væri það í alla staði vel til fallið. Þetta þing ætti að standa í viku, að minsta kosti. Þar ættu ýms þjóðmál að ræðast. Og þar gætu bændur úr hinum ýmsu héruðum landsins komist í kynni- hver við annan og lært mikið hver af öðrum í búnaðar- legu tilliti. Þar ættu fulltrúar þjóðarinnar, að bindast ýmsum nytsömum samtökum, er giltu fyrir þjóðarheildina. En þangað ættu skáld og ræðumenn að koma, og vekja þjóðina á þessum fornhelga stað. — Hvergi annar- staðar á landinu væri léttara að benda þjóðinni til sjálfrar sín, á æfiferil hennar. Þar mundi mega tala til lilfmninga manna á þessum stað, þar sem hver þúfan og lautin, — sjálft nakið bergið er helgað dýrum endur- minningum. Ómetanlegt gagn gæti þess- konar samkoma haft fyrir þjóð- ina. Því má ekki gleyma, að Þingvöllur hefur verið er og verða mun hjartastaður þjóð- arinnar. — Þar hefur þjóðin lifað sínar sælustu stundir, og þar hefur hún einnig glatað frelsi sínu. Þar hefir hún sárastfundið til þess, að hún hafi svikið sjálfa sig og helgustu köllun sína; þar

x

Plógur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.