Plógur - 01.04.1907, Blaðsíða 3

Plógur - 01.04.1907, Blaðsíða 3
PLÓGUR. 27 hefir hún heitast barist fyrir frelsi sinu og þjóðerni. — Þing- völlur er því sannur lielgidómur þjóðarinnar laugaður tárum og blóði bestu sona hennar. Samtal. Tveir nágrannar, gamlir fé- lagar, sátu heilan dag og ræddu margt sin á milli. — Þeir hétu Ráðsnjall og Ráðlaus. Þetta er haft eftir þeim: Ráðsnjall: . . . »Enga bújörð er hægt að fá í vor handa syni mínum; allir vilja fara að búa. Það var öðru vísi íyrir 10 ár- um; þá lágu jarðir í eyði, fleiri eða færri í hverri sýslu. Þú hlýtur nú að sjá það, Ráðlaus minn, að þetta bendir á vax- andi áhuga landsmanna á rækt- un landsins og búnaðarfram- leiðslu. En það bendir á annað meira. Það, að búskapurinn borgar sig. Og fleiri vilja verða bændur en geta. Þetta er gleðilegt tákn tímans. Ráðlaus. Eins og þú veist, þá er eg miklu eldri en þú. Eg fæddist daginn sem frú Eva ginti Adam óðalsbónda að eta af forboðna trénu. Enn mig minnir að þú kæmir fyrst í heiminn, þegar Nói gamli hjó fyrstu spýtuna í örkina sina. Eg hefi því hlotið meiri líís- reynslu en þú. Eg hefi altaf átt í baráttu við þig. Þú hefir haft sigurinn stundum en eg oft, já sannarlega ott. — Þú getur verið hreykinn yfir þér og fram- kvæmdum þínum, en eg hefi sannarlega verið þér erviður og tafið fyrir loftkastala-gaurgangi þjnum. Og hefði eg ekki ell þig á röndum, haldið þér bæði hræddum og vakandi, þá værir þú löngu orðinn þreyttur á framfarahjali og framfarastörf- um, sem þú svo kallar. ógæfa er það að bændur halda dauðahaldi i þessa hor- uðu jarðarskika. Þeir glíma um hverja hunda-þúfuna eins og prestar um brauð, og sýsla- menn um þingmensku. Bænd- urnir ættu að lesa það, sem »lár- viðarskáldið« segir umgrundvöll siðmenningarinnar. Enginn maður er hans jafnoki. — Ráð hans eru engin Lokaráð-, Hann vill að bændurnir haldi hóp, flytji sig úr daladrögunum niður á láglendið og byggi þar stórar borgir, nú eða þá í Reykjavik, lengi hana og breikki og jafn- vel dýpki hana niður fyrir allar gullæðar, alveg á fastann völl, sem Helgi fróði þekkir bezt. — Þjóðmenning, siðmenning, félagsandi, þjóðrækni, stjórn- fræði, skáldskapur og listir þró- ast hvergi nema í stórum stöð- um. Búskapar bröltið drepur andann, en þroskar einrænings- háttinn, matar pólitikina og als-

x

Plógur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.