Plógur - 01.06.1907, Síða 6

Plógur - 01.06.1907, Síða 6
46 PLÓGUR. 20—30 árum? Var þá fleira fólk í sveitunum en nú?— Ef landshagsskýrslunum er flett upp, benda þær á, að þá hafi ekki til jafnaðar verið fleira fólk í sveitum en nú er. Síðan liafa landsmenn fjölgað um 10—15 þúsundir. En kaup- staðirnir hafa einnig vaxið frá þeim tíma í líku hlutfalli við þessa fólksfjölgun. íJað má sjá það at ýmsum skýrslum, að hinar ýmsu sýslur landsins (kaupstaðir þeirra frátaldir) eru viðlíka fólksmargar nú og var fyrir 20—30 árum. Bændur og konur eru hér um biljafn- margir. En eru börnin fleiri eða færri? eða eru vinnuhjú eins mörg og áður var? Hið rétta mun vera þetta: Börnin eru viðlíka mörg á heimilun- um, gamlar konur fleiri, vinnu- menn og vinnukonur margfalt færri, en lausamenn og lausa- konur mildu fleiri. En samtals verður fólkstalan til jafnaðar ekki míklu minni. Búpening- ur í landinu er ekki minni. Þar af leiðir að hey þarf engu minna nú en áður. Vinnutím- inn er styttri nú en áður var, en þó vinnur hver maður nú til jafnaðar meira. En hins- vegar er betur farið með allar skepnur nú en fyrir 20 árum, þurfa þær þvi meira fóður, og ætti það að benda til þess, að fleiri menn þurfi til heyvinnu. En þetta mun jafna sig. Þegar þess er gætt, að vinnutilhögun er orðin betri, og áhöld mörg haganlegri. Nú eru fleiri efnamenn en áður voru. Þeir þurfa á flestu fólki að halda og bera sig oft illa út af verkafólksleysi, sem vonlegt er. En áður höfðu stórbændur nóg fólk. Þá voru bláfátækir einyrkjar margir, þurftu ekki á þjónum að halda, eða gátu ekki haldið þá, en nú eru fjölda margir eí'naðir einyrkjar. — Svona líst mér á þessa hlið búnaðarins fyrrum og nú. Gamall bóndi. Oppboðin á þjóðjöröum. Merkur bóndi úr Húnavatns- sýslu skrifar Plógi hér um bil á þessa leið: »Margt er það í stjórnarfari okkar sem þarf að laga, en það sem sérstaklega valcir fyrir mér eru upppoðin á þjóðjörð- unum til ábúðar; þau eru svo mikið hneiksli, að við svobúið má ekki láta sitja. • Algengt er það hér í sýslu, að »hverbýð- ur sem betur getur« og verð- ur þannig eftirgjaldið tvöfalt- hærra en sanngjarnt er. Én lakast er að sá býður venju- lega liæst, sem vitlausastur er, getur minst og hangir viðjörð- ina með skömm í nokkur ár, niður níðin hana á allan hátt,

x

Plógur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.