Plógur - 01.06.1907, Qupperneq 8
48
PLÓGUR.
komnar á fjall með lömbum
taldi hann 6 krónur. Og leit-
arkostnaður o. þ. li. varð 2 kr.
Samtals 236 kr. Tekjurnar
voru þessar: . Ull 23 kr., 10
dilkar 80 kr. og 11 ær 126 kr.
50 a. Samtals 229 kr. 50 a.
Skaðinn varð því kr. 6,50. —
1 ær með lambi kom ekki af
íjalli og 1 lamb drapst undan
að vorinu.
Ísíðnzka kjötið.
—o—
í »Polit.« 24. f. m. er grein
frá »húsmóður« um sauðaketið
íslenzka. Hún talar þar um
það sem allir vita að satt er,
liver ómatur íslenzkl saltkjöt er,
það er venjulega er saltað í
kaupstöðum og selt til útlanda.
Henni virðist aftur vera ókunn-
ugt um það, að fyrir aðgerðir
Hennanns Jónassonar alþingis-
manns er nú farið að bæta verk-
unina á nolckru af saltkjötinu.
Hún furðar sig á, að ekki skuli
enn vera flutt út fryst kjöt frá
íslandi til Danmerkur, og er það
von. Þcgar vér heyrum, að fryst
kjöt er flutt til Danmerkur alla
leið frá Ástralíu, og að fryst
hreindýrakjöt norskt er selt í
Laupmannahöfn alt árið, þá
furðar mann eðlilega á, að aldrei
skuli vera flutl út fryst kjöt frá
íslandi.
Auðvitað er orsökin skortur
skipa með þeim útbúnaði.
Tímarií kaupféiaganna,
ritstjóri Sigurður Jónsson á
Ystafelli, 1. árg. 2. hefti er ný-
komið út, prentað á Akureyri.
Er rit þetta gefið út aí sam-
bandskaupfélagi Þingeyinga og
eru ýmsar góðar greinar í þessu
hefti. Er þar fyrst ræða for-
ma’nnsins (Péturs Jónssonar
alþm.) á aðalfundi félagsins 29.
janúar þ. á., þá skýrsla um
kaupfélagið eftir sama með at-
liugasemdum og skýringum eflir
rftstjórann. Því næst er skýrsla
um kaupfélag Eyfirðinga eftir
Hallgrím Kristinsson, og löng
grein eftir ritstjórann um »ný-
breytni í .kaupfélagsskap og
samvinnumálum« veigamesta
greinin í heftinu og vel rituð.
Þar er fróðleg skýrsla um rjóma-
búin í Þingeyjarsýslu og Eyja-
fjarðarsýslu eftir sama höf., og
sézt af þeirri skýrslu að skilyrði
fyrir rjómabúum e§u í sýslum
þessum að mun lakari en á
Suðurlandi, og telur höf. því
vafasamt, hvort stofnun smjör-
búa í þessum hjeruðum mundi
koma þar að tilætluðum notum.
Reynslan heíir sýnt, að smjörbú
þau, sem þegar eru komin þar
a stofn, hafa átt við mikla eríið-
leika að stríða, en vitanlega er
sú reynsla stutt, og höf. segir,
að þótt framtíðarhorfur smjör-
búanna á Norðurlandi séu ekki
glæsilegar sem stendur þá sé samt
útlitið ekki verulega óvænlegt.
Korgið blaðið skilvíslega*
Ritstjóri og ábyrgðarmaönr.
Sij£urður I^órólíswon.
Hvítárbakka.
Gutenberg.