Alþýðublaðið - 19.02.1927, Page 1
Alþýðublaðið
Gefið út af Alþýðuflokknunt
1927.
Laugardaginn 19. febrúar.
42. tölublað.
Frá Vestmannaeyjum.
Bátar, sem vantaði paðan,
komnir fram.
(Eftir símtali í morgun.)
Fulltrúaráðsfundur
verður haldinn mánudaginn 21. þ. m. kl. 8 e. m.
réttstundis í Iðnó uppi.
Framkvæmdarstjórnin.
Seint i gær vantaði fjóra báta
úr Vestmannaeyjum. Var þá kom-
ið rok, og voru menn orðnir
hræddir um þá. Peir eru, sem
betur fer, allir komnir heim. Tveir
þeirra komust í gærkveldi upþ
undir eiðið og lágu þar í vari.
Sá þriðji, „Undína“, kom að um
kl. 9 í gærkveldi. Síðast korii
„Soffía" eftir miðnættið. Hafði
„Þór“, sem var að gæta að skip-
únum, fundið hana og hafði hana
;fyrst í eftirdragi, en sjálf komst
hún síðasta spölinn inn að eyj-
unmn. — í dag er rok í Vest-
mannaeyjum og enginn bátur á
sjó. Bátar þar fiskuðu allvel í
:gær, en þó betur í fyrra dag.
Til Hafnarfjarðar
og Vífilsstaða
er bezt að aka með
frá Stemdori.
Sæti til Hafnarfjarðar
kostar að eins
eina krónu.
Síml 581.
St. Framtfðin nr. 173
heldur
kvöldskemtun
sunnudagskvöld kl. 9 síðd. Stór og góð skemtiskrá
fyrir kvöldið. — Aðgöngumiðar afgreiddir fyrir alla
templara í Templarahúsinu á laugardag og sunnudag
eftir kl. 2 síðd. báða daganna. Skemtinefndin.
Leikfélag Meykjavikur.
Munkarnir ð Mððruvðllum.
Sjónleikur í 3 þáttum
eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Lög eStir Emil Thoroddsen.
Leikið verður í Iðnó sunnudaginn 20. þ. m. kl. 8 síðd.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag frá kl. 10 tíl 12 og eftír kl. 2.
Leikhúsgestir eru beðnir að mæta stundvíslega.
Sími 12. Simi 12.
Sænskt flatbrauð
(KNÍCKEBRðD).
Nauðsynlegt á hvers mannslborði.
2180?“ Afar-hragðgott.
Bezta brauðið fyrir togara og mótorskip.
Bætir meltinguna, styrkir tennurnar og gerir
þær hvítar og fallegar.
Hefir þess vegna fengið meðmæli fjölda lækna
og visindamanna.
Sænska flatbrauðið fæst alls staðar.
®dýrí. Odýrt.
Ferkamannastlgvél,
ínniskór, Sköhlífar eru í beztu og ódýrustu úrvali í
^kóverzhm Jóns Stefánssonar, Laugavegi 17.
FrleBid símskeytf.
Khöfn, FB„ 17. febrúar.
Rússar preyttir á undirróðri
Breta.
Frá Moskwa er símað: Blaðið
,,Pravda“ fullyrðir, að stjórnin á
Bretlandi vinni með .rússneskum
keisarasinnum móti Soviet-Rúss-
landi. Krefst blaðið þess, að
stjórnin slíti stjórnmálasamband-
5nu við Bretland.
Japanar látast vilja draga ur
herbúnaði.
Frá Lundúnum er símað:
Stjórnin í Japan er fús til þess
að taka þátt í hinum áformaða
flotamálafundi Coolidge Banda-
ríkjaforseta.
Stórhríðar og skriður i Kali-'
forníu.
Frá borginni New York er sím-
að: Stórhriðar og skriðuföll hafa
orðið í Kaliforniu og hafa 3
menn farist.
Bretar velta vöngum.
Frá Lundúnum er símað:
Stjórnin^ér að íhuga, hvort Bret-
land skuli styðja að þvi, að af
flotamálafundinum, sem Coolidge
boðar til, verði.
Khöfn, FB„ 18. febrúar.
Samningar milli Breta og Kin-
verja mistakast.
Frá Lundúnum er símað: Sanm-
íngatilraunir þeirra O’Malley, full-
trúa brezku stjórnarinnar, og
Chens,, utanríkisráðherra Kanton-
TH Vífilsstaða.
1 kr. sætið alla sunnudaga með
hinum þjóðfræga kassabíl.
Frá Reykjavík kl. 117* og 27*.
— Vífilsstöðum kl. 17* og 4.
Ferðir milli Hf. og Rvk. á hverj-
um klukkutíma með hinum þægi-
legu Buick bifreiðum frá
SÆBERG.
Sími 784. Sími 784.
stjórnarinnar, hafi orðið árangurs-
iausar. Mun þar hafa ráðið mestu
um, að tilraunirnar báru engan
árangur, að Chen krafðist þess
fyrir hönd Kantonstjórnarinnar, að
stjórnin brezka viðurkendi, að
Kantonstjórnin sé eina lögmæta
stjórnin í Kína.
Stórsigur Kantonhersins.
Kanton-herinn hefir unnið mik-
inn sigur nálægt Hankau og hefir
hrakið her Sun Chuan-fangs á
flótta. Búast menn nú við því, að
Kanton-berinn taki Hankau og er
honum þá opin leiðin til Shang-
hai. (Samkvæmt enskum blöðum
var búist við því, að ensku her-
deildirnar, sem nú eru á leiðinni
til Shánghai, yrðu komnar þangað
26.-28. þ. m.)
Gáfaður pósímaður (!)
F. H. G. Wells undir lögreglu-
eftirliti.
Hinn frægi brezki rithöfundur
H. G. Wells, sem býr í Grasse
á Frakklandi, verður eins og
flestir aðrir nabitogaðir menn fyr-
ir alls konar átroðningi; meðal
annars er alls konar fólk að ónáða
þá með hégómlegnm bréfaskrift-
um, og veröur Wells manna mest
fyrix slíku. Póstmeistaranum í
Grasse fanst Wells fá fullmörg
bréf og hélt þvi, að hann myndi
vera samsærismaður, og benti lög-
reglunni á þetia. Þegar lögreglan
spurði Wells að því, hvernig á því
stæði, að hann fengi 'svona mörg
i>xéf, svaraði hann: „Svei mér, ef
ég veit.“ En Wells stendur eftir
sem áður undir eftirliti lögregl-
unnar.
„Munkarnir á Möðruvöllmn"
verða leiknir annað kvöld, en
ekki í kvöld, eins og af vangá
stóð i blaðinu í gær.