Alþýðublaðið - 21.02.1927, Page 3

Alþýðublaðið - 21.02.1927, Page 3
aLISÝÐUBLAÐIÐ 3 Ef jjJér sækist eftir góðri, en ódýrri handsápn, þá biðjið nm eftirtaldar tegundir frá Kaalunds Sæbe- fabriker, Árósum: Mastdetaællí, Tjæresæbe, Iris, Royal Hospital, öral, Finest ©live, Galdesæbe, Boraxsápa, Karbélsápa, Cold Cream. — Eiiilaver pessara teejismda fæst ©efad b|á kaiipnaB&Met petm, sem pér veræltfl irttt, ©Ha peim aaæsta. væri enn verra. Af breytingu at- vinnuveganna þar í Iandi var kjördæmaskipunin orðin þannig, að á einum stað kusu 21 kjós- andi jnngmann og á öðrum jafn- vel einir 7 menn. Þetta leiddi auðvitað til margs konar rang- lætis og spillingar, eins og upp- boðs á atkvæðum í þessum litlu kjördæmum. Urðu par miklar deilur út af kosningarréttarmál- inu, því að hin ráðandi stétt vildi ekki sleppa völdum sínum, sem á ranglætinu byggðust. Það var ekki fyrr en lá við byltingu, að þessu var breytt. (Frh.) Meðrl deild. Þar var á laugardaginn bætt Við í fjárhagsnefndina Ásgeiri og Magnúsi dósent. Dagskrármálið, [ungsál.till. um lækkun vaxta, var tekið út, þar eð aðal-flutnings- maðurinn, M. T., var fjarverandi. Efri deild. Þar var til umr. frv. um bæjar- stjórn á Norðfirði, og er það að mestu sarna frv., sem fyrir síðasta Jungi lá. Mælti flm., Ingvar Páls- son, fram með því, og var því síðan vísað til 2. umr. og alls- herjarnefndar. Síðara málið var þingsályktunartillaga Jónasar frá Hriflu um útvegun veðurskeyta frá Júlíönuvon á Grænlandi. Benti flm. á nauðsyn þessara skeyta: þau myndu gera veðurspárnar hér tryggilegri. og geta forðað mörgu mannslífi. Hann skoraði og á ráðherrann að koma þvx til leiðar, að simastöðvar í vérstöðv- um yrðu látnar vera opnar svo lengi á vertíðinni, að þær næðu kvöldskeytum veðurstofunnar. At- vinnumrh. tók vel í hvort tVeggja. Kvað 'hann stjórnina vera búna að leggja drög fyrir skeytin fyrir löngu, en það hefðu verið svo margir skrifstofumilliliðir erlendis, að enn væri ekki takmarkinu náð, og bjóst hann því við, að það myndi fara nokkur tímí í það enn. Jóh. Jós. lagði áherzlu á, að skeyt- in fengjust sem fyrst, og kvaðst atvinnumálaráðherra ekki skyldu Játa sitt eftir liggja, en hann réði ekki skrifstofuganginum í Höfn. Tillagan samþ. í einu hljóði (14 atkv.) og afgreidd til stjórnar- innar. / Biaðamaimslegur líjafMerl- ingarháttiir. Fréttasnati Dana hér ber „slúður“ í ihaldshlöðin dönsku. Dönsku blöðin hafa hér frétta- ritara, eins og lög gera ráð fyrir, en þau hafa orðið að „tjalda því, 'sem til er“, ef það er satt, að Valtýr Stefánsson, ritstj. „Mgbl.“, hafi þann fréttaburð með höndum. Það hefir þótt við brenna, að sá fréttaburður væri ekki sem allra nákvæmastur; sérstaklega væri honum tamt að segja Dönmn frá því, sem léti íhaldið hér og höfuð- menn þess sjást í iðandi tíbrá ýkjunnar. Svo var't. d. um lof- skeyti um Jón Þorláksson, þar sem hann með ýmsum ofmælum var talinn frumkvöðull að hug- myndinni um upphitun Reykjavík- ur með laugavatni. En fréttasnat- inn bregður og fyrir sig hreinu bæjarþvaðri, — kjaftavaðiil sem fer um bæinn, hús úr húsi, rétta boðleið. — 19. dez. birtist í „Ber- linga-tíðindum“ skeyti frá frétta- 'snatanum með yfirskriftinni: „Al- varlegar óspektir í bæjarstjórn Reykjavíkur. Atvinnulausir mölva rúður og ráðast á bæjarfulltrú- ana.“ Fæstir munu nú muna eftir smáþvargi, sem varð hér í sam- bandi við bæjarstjórnarfund um atvinnubæturnar i vetur. — Það voru einhverjar smávegis orða- hnippingar, og rúða brotnaði af slysi. Þetta var auðvitað saga til næsta bæjar fyrir kjaftakerlingu, en þótt ólíklegt sé, varð það líka söguefni fyrir fréttasnata Dana. Þetta ógnarlega tilkomulitla þvarg varð að glerbrotum og glóðaraug- um í hans frásögn, — borgar- stjóra hótað skemdum, Jónatan barinn og „aðskiljanlegar" rúður brotnar. Nú er nóg komið. Það, sem með þarf, er fréttaritun til útlanda, en eltki fréttaburður. Það verður að koma því svo fyrir, að rétt og hlutdrægnislaust sé sagt frá því, sem máli skiftlr, en ekki send auk- in og ýkt skeyti, þótt þjónustu- stúlka hjá ritstjóra „Mgbl.“ glopri niður súpudiski eða götustrákur skelli snjóbolta í skrifstoíugjugg- ann hjá honum. Ueh dagiim ©g veginifi. Næturlæknir er í nótt Árni Pétursson, Upp- sölum, sími 1900. Fulltrúaráðsfundur verður í kvöld kl. 8 í Iðnaðar- mannahúsinu, uppi. Fyrirlestur Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í gær var Iýsing á framkvæmdaskortin- um hér á landi fram til 1870—74 og framförum þeim, er síðan hafa orðið. Hvatti hún að' lokum til meiri framkvæmda, því að nóg verkefni væri fyrir höndum. M. a. talaði hún um nauðsyn al- mennrar skólafræðslu og lýsti því, að I æsku hennar hafi heimilis- fræðslan á fjölmörgum heimil- um alls ekki verið svo glæsileg, eins og sumir vitni nú til hennar. Heilsufarsfréttir. (Eftir símtali í morgun vlð land- lækninn.) „Kikhóstinn" breiðist út, en er mjög vægur. Er hánn kom- ánn í tvö lælmishéruð auk þeirra, jer hann va|r í áður. Eru það Akra- nes og Vestmannaeyjar. „Inflú- enza“ stingur sér niður hingað og þangað um landið, — sú, sem hér hefir verið. Aðrar farsóttir eru ekki, og má yfirleitt segja, að heilsufarið sé ágætt eftir þvi, sem venjulegt er. Kvöidvökurnar. 1 kvöld lesa, að því, er ráðgert er, en e. t. v. verður þö. einhver breyting þar á, Kristján Alberts- son, séra Tryggvi Þórhallsson og Þórbergur Þórðarson. Togari strandar Þýzkur togari strandaði'í Þor- lákshöfn á íöstudagskvöldið. Komust skipverjar allir, 13 að tölu, heim til Þorleifs Guðmunds- sonar og var þar vel tekið. Slökkviliðið var kallað í fyrra kvöld. Hafði fcviknað í Aieykháfsmótum á Loka- stíg 7. Þetta er í annað sinn á tveggja mánaða fresti, sem kvikn- að hefir í reykháfsmótum á húsi þessu. Er það vítaverður trassa- skapur af þeim, er fyrir húsa- smíði standa, þegar mótin eru skilin eftir og ekki að gert fyrri en kviknar í þeim. Ef ekki tekur fyrir slíkt á annan hátt, liggur næst að setja það ákvæði, að slík trössun varði a. m. k. greiðslu kostnaðar við köllun slökkviliðs, sem er minst á þriðja hundrað kr. I hvert skifti, því að bæjar- sjóður á ekki að þurfa að kosta fitsala. 5—5© % afsláttur af öll- um vörum. Vefnaðarvöruverzlun Kristliar Sigurðarðottar, Laugavegi 20 A. Sími 571. slíkar brennur af sínu fé. — Einnig var slökkviliðið kallað S íyrra kvöld í Austurstræti 8. Hafði gleymst að taka rafmagns- straum af línpressujárni og var sviðnað niður x borð, sem það lá á, en aðrar skemdir urðu ekki af því. Veðrið. Hiti mestur 3 stig, minstur 5 stiga frost. Átt ýmisleg, víðast1 hæg, nema snarpur vindur í Viest- mannaeyjum. Þurt veður. Loft- vægislsegð fyrrir sunnan land, sennilega á suöausturleið. Otlit: Góðviðri á Norður- og Austux- landi. Austlæg átt á Suður- og Vestur-Iandi, allhvöss á Suðvest- urlandi austan Reykjaness. Bannlagabrot. 1 vikunni, sem leið, fundu toll- gæzlumenn 40 genevervínsbrúsa í iæreyska togaranum „Roynden". Var skipstjórinn sektaður um 300 kr. án þess að málið kæmi fyrir bæjarfógeta. Togararnir. Enskur togari kom hingað í gær eitthvað bilaður. Skipafréttir. Fisktökuskip kom hlngað í gær tii strigatjöldunar. Kaupfélag Reykvikinga hélt aðalfund í gær. Féiagið hefir nú alveg rétt við og er komið aftur á góðan rekspöl. Má óefað mjög þakka það ágætri um- sýslu kaupfélagsstjórans, Haralds Guðmundssonar bæjarfulltrúa, með öruggum stuðningi góðra fé- lagsmanna. Jafnaðarmamiaféiagið (gamla) heldur fund á miðviku- daginn í Ungmennafélagshúsinu. Til umræðu verður meðal annars ‘tilraun íhaldsflokkanna að taka kosningarréttinn af fjölda verka- manna með því að flytja kjördag- inn. Misprentast 'hefir fyrir ranga stöfun í síma nafnið á útgerðarfélaginu, sem á þýzka togarann, sem sagt var frá í laugardagsblaðinu. Félagið heitir „Hochsee“. — I>á átti og að standa i grein Finns Jónssonar, 4. d„ 8. 1., að Jóhann Eyfirðing- ur & co. hefðu þá getað skuldað 6 þús. kr. minna en þeir skulda nú.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.