Alþýðublaðið - 17.03.1920, Síða 1
1920
Miðvikuudaginn 17. marz
61. tölubl.
Harðindi 1 Dalasýslu.
Alþbl. kostar I kr. á mánuði.
Vatnsból þur.
Úr Dalasýslu kemur sú fregn,
snjóþyngsli séu þar orðin svo
mikil að fá dæmi séu Blotar þeir,
sem komið hafa f vetur hafa ekki
gert annað en ilt verra, því eftir
á hefir gert hjarn. Er nú svo kom-
ið. að vatsból eru víða þur orðin,
svo sækja verður vatn í árnar, en
sem betur fer er ekki mjög langt
«1 þeirra víðast hvar.
Sendiherra Bandamannar
í Berlín.
Englendingar, Frakkar og ítalir
iiafa nú sent vanalegar sendisveitir
til Berlínar aftur. Hafa Englend-
ingar gert Kilmorock lávarð, er
úður var við sendisveitina í Khöfn,
að sendiherra, þar. Frakkar hafa
Sent mann að nafni de Marcilly
'Qg ítalir Mares greifa.
X
lolsivíkar og Englendiagar.
Verður fríður með þeim
innan skamms.
spor í áttina, og myndu hin af
strandríkjunum áreiðanlega feta í
fótspor þess, enda væri Sovjet-
Rússland reiðubúið til að viður-
kenna fullveldi þeirra.
Joffe kvað Rússastjórn vilja fá
frið við allar aðrar þjóðir, enda
væri nú þegar tekið að semja
frið milli Englendinga og Bolsi-
vika. Mætti segja að einu kröf-
urnar sem Bolsivíkar gerðu væru
þær, að Bandamenn blönduðu sér
ekki inn í innanlandsmál Rúss-
lands.
Kvað hann ekki þýða neitt að
ætla að upphefja hafnbannið á
þann hátt, sem nú væri verið að
því. Ef Bandamenn æltuðu sér að
opna verzlunina við Rússland, þá
yrðu þeir að flytja inn nauðsynja-
vörur, svo sem, vélar og annað
slíkt, en það þýddi ekkert að
beita sömu aðferðinni og Þjóð-
verjar gerðu eftir friðinn í Brest-
Litovsk, er þeir fluttu vart annað
inn en fánýtt glingur.
Ef Bandamenn láta Rússa fá
það sem þeir hafa nú þörf fyrir,
þá munu vesturlandaþjóðirnar
áreiðanlega geta fengið ýmsar þær
nauðsynjavörur hjá Rússum, sem
þær vantar. X
tískum glæpamönnum, svo sem
Ludendorfif og nú í fyrra mánuði
Pflugk-Hartung morðingja Lieb-
knechts. Vinstri-socialistablöðin
Folkets Dagblad Politiken, In-
landet, Vesterbottens Folkblad o.
fl. hafa átalið stjórnina harðlega
fyrir það, að hún Iiði slíkt, og
í tilefni af því birtir Vesterbottens
Folkblad lýsingu á morðum þeirra
Liebknects og Rosu Luxemburg
eftir Dagens Nyheter. Heimildar-
maðurinn er Iiðsforingi Weinwold,
sem viðstaddur var og var grun-
aður um að hafa léð hönd til
þessara grimdarverka. Hann segir
svo frá:
„Nóttina milli þess 15. og 16.
janúar (1919) kl. 11V2 þeysti bíll
fram að „Hotel Eden“ í Thier-
garten, þar sem eg þá var á verði.
Af forvitni komu nokkrir félagar
mfnir hlaupandi til að sjá, hvað
um væri að vera. t bílnum sátu
þau Rosa Luxemburg og Karl
Liebknecht, sem voru þá fyrir
skemmstu handsömuð. Það átti.að
yfirheyra þau þá. Þegar einn fé-
iaga minna, liðsforingi Hofifmann,
kannaðist við Rosu Luxemburg,
sló hann hana af öllu afli með
byssuskeftinu. Höggið var áreið-
anlega nóg til að drepa hana.
Rétt á eftir sló undirforingi Runge
hana með byssuskeftinu, en það
högg var miklu vægara. Runge á
fjögur bÖrn í ómegð og einn son
uppkominn sem er örkumlamaður
af sárum. 2 ára fangélsisvistardóm-
ur sá sem hann hlaut, var þvf
ekki réttlátur þegar tekið er tillit
til þess, að Hofifmann var í raun
réttri morðinginn. En hann var
sonur Hoffmanns hershöfðingja,
sem þá var staddur á »Hótel Ed-
en«, og þá skilur maður hvers
vegna hann var sýknaður.
Rosa Luxemburg hné niður er
hún fékk höggin, en hún var dreg-
in meðvitundarlaus intt í skonsu f
gistihúsinu; eg álít, að hún hafi
verið dáin þá.“ ....
. . . Eftir Rosu Luxemburg
kom röðin að Karl Liebknecht.
Joffe heitir sá, er stóð fyrir
sendinefnd þeirri af hálfu Bolsi-
vika, er samdi við Eistur í Dorpat.
fiann er kunnur frá fyrsta stjórn-
arári Bolsivíka. Yar hann einn af
Þeim, er sömdu friðinn í Brest-
Vitovsk og síðan sendiherra Bolsi-
vika í Berlín.
Blaðamenn nokkrir náðu tali af
^onum áður en hann fór heim
aftur frá Dorpat. Tjáði hann þeim
aÖ það væri tilætlun rússnesku
atjórnarinnar að koma friði á,
Oúlli Rússlands og strandríkjanna
Yestur-Evrópu. Kvað hann
íliðarsamningana við Eistur stórt
jflorð Karl £iebknechls
og Rosn £uxemburg.
Meðferð prússneskra liðs-
foringja á varnarlausum
föngum.
Blöð sænskra vinstri-socialista
hafa farið fremur ómjúkum orðum
um það, að stjórnin hafi vísað úr
landi erlendum bolsivíkum, sem
reyndu að fá sér þar griðastað,
en leyft landyist allskonar póli-