Alþýðublaðið - 23.08.1935, Qupperneq 4
FÖSTUDAGINN 23. ágúst 1935.
pw GAMLABlÓ ■
1 Skáldið.
Áhrifamikil og snildarlega
vel leikin talmynd, sam-
kvæmt leikriti
Kagnars Jósephsson.
Aðalhlutverkin leika:
Gösta Ekman,
Karin Carlsson,
Gunnar Ohlsson,
Hjalmar Peters.
Skrlf tar - námskeið
byrjar bráðlega, sem verður
lokið 1. okt, er því hentugt
skólafólki.
GuOrún Geirsdöttir,
Sími 3680.
Nýslátrað
Allskonar
nýtt grænmeti.
Verzlunin
Kjöt & Fiskur,
Símar: 3828 og 4764.
M. s. Dronning
Alexandrine
fer annað kvöld kl. 6 til ísa-
fjarðar, Siglufjarðar og Akur-
eyrar.
Þaðan sömu leið til baka.
Farþegar sæki farseðla í dag.
Fylgibréf að vörum komi í dag.
G. s. Primula.
fer annað kvöld kl. 8 til Leith
(um Vestmannaeyjar og Thors-
havn). Tilkynningar um vörur
komi sem fyrst.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Tryggvagötu. — Sími 3025.
■
SnflondagsblaA
Algýðnblaðsins.
I. ár, tbl. nr. 8
o g
II. ár, tbl. nr. 23
Þeir útsölumenn, sem
hafa eitthvað óselt af
þessum blöðum sendi
þau til aígreiðslunnar
í Reykjavík.
Síldveiði heldur á-
fram á Húnaflóa.
SIGLUFIRÐI, 22./8. FÚ.
Höfrungur fékk svo mikla sílcl
í Húnaflóa síðast liðna nótt, að
nótin rifnaði, og náðist ekki nema
lítill hluti þess, >er í nótina kom.
Ætla menn, að komið. hafi í nót-
ina á annað hundrað tunnur, en
skipið náði að eins 70 tunnum
og kom með þá síld til Siglu-
fjarðar í nótt. — Ásbjörn kom
í dag til Siglufjarðar meö 175
tunnur síldar, einnig veidda í
Húnaflóa.
í gær var saltað á Siglufirði
127 tunnur. — Söltun á Siglufirði
frá vertíðarbyrjun er 22 210 tunn-
ur. — Skv. símsk. frt. útv. á
Siglufirði.
Síld til Skaga-
strandar.
BLÖNDUÖSI, 22./8. FÚ.
1 gærkveldi komu vélbátarnir
Ægir frá Gerðum og Muninn frá
Sandgerði til Skagastrandar með
samtals 350 tunnur síldar.
I morgun kom Valbjörn frá ísa-
firði með 250 tunnur.
Öll þessi síld var grófsöltuð. —
I dag kom Hvidbjörnen til Skaga-
strandar með 100 tunnur síldar.
Þóra Tryggva*
dóttir, kennarl.
ÞÓRA TRYGGVADÓTTIR
Fregnin um hið sviplega frá-
fall hennar 16. þ. m. mun hafa
komið flestum á óvart. Hún var
kona á bezta aldri, aðeins 36
ára, og mátti mikils og góðs af
henni vænta í störfum sínum,
En hún hafði tveimur veglegum
störfum að gegna, — hún var
húsmóðir og eiginkona, það var
einkalíf hennar, — en hún var
einnig kennari og á þeim vett-
vangi sá ég hver hún var. Og
það duldist engum, sem sá Þóru
með nemendum sínum, að starf-
ið var henni yndi, hún stjórnaði
og starfaði eins og vinur barn-
anna og ávann vináttu, einlægni
og hlýjar hugsanir frá þeim.
Það var hamingja hennar.
Þóra Tryggvadóttir var fædd
14. júlí 1899 að Geithellum í
Suður-Múlasýslu. Faðir hennar
Tryggvi Daníelsson drukknaði
áður en hún sá dagsljósið, en
móðir hennar Vilborg Einars-
dóttir lifir enn. Þóra ólst að
nokkru upp hjá móður sinni, en
einnig hjá Þórhalli kaupmanni
Daníelssyni í Hornafirði. Hún
stundaði nám í Kennaraskólan-
um, sigldi til Noregs og var þar
við nám eitt ár, var síðustu árin
kennari við Austurbæjarskól-
ann. Hún var gift Jóhanni Jó-
hannessyni, bankamanni. Henn-
ar mun verða minnst með hlýju
af öllum þeim, sem kyntust
henni. Skólinn á þar á bak að
sjá einum af bestu starfskröft-
um sínum.
G. M. M.
GERÐARDÓMUR
Frh. af 1. síðu.
Niðurstaða gerðardómsins, sem
allir meðlimir dómsins voru sam-
mála um, fer hér á eftir, og geta,
námssveinar af henni séð, hvað
þeir mega, þegar þeir eiga í
höggi við ósvífna meistara: i
Niðurstaða
gerðardómsins.
Samkvæmt kröfu Ásgríms Lud-
vikssonar, nemanda, í bréfi til
lögreglustjóra, dags. 13. þ. m.,
var lagður í gerð ágreiningur
milli hans og meistara hans, Hen-
ry Möller húsgagnafóðrara út af
námssamningi þeirra á millum,
dags. 18. júlí 1934. Áður hafði
meistari krafist þess af lögreglu-
stjóra, að nemandi yrði fluttur
til sín, samkvæmt 13. gr. iðnað-
arnámslaganna, þar sem _ hann
hefði að ástæðulausu yfirgefið
nám sitt. Krefst nemandi þess, að
námssamningnum verði slitið.
I lögregluréttarrannsókn, er
fram fór, samkvæmt beiðni gerð-
ardómsins, er upplýst, og viður-
kent af meistara, að hann hafi
látið nemanda hvað eftir annað
vinna eftirvinnu og helgidaga-
vinnu. Hvort tveggja þetta er
bánnað í 8. og 9. gr. iðnaðar-
námslaganna 31. maí 1927, og
lögð refsing við i 21. gr. sömu
laga.
Gerðardómurinn lítur því svo á,
að með þessu út af fyrir sig
hafi meistari gert sig sekan í
verulegu broti á skyldum sínum
gagnvart nemanda, er heimili
honum að slíta námssamningnum
samkv. 16. gr. 2. tll. sömu la^a.
í annan stað hefir meistari í
áðurnefndri Iögregluréttarrann-
sókn viðurkent að hafa viðhaft
við nemanda þar nánar tilgreint
orðbragð, sem gerðardómurinn
telur óhæfilegt og ríðá i bága við
skyldur meistara til að vaka yfir
góðri hegðun nemanda síns.
Einnig þetta er að áliti gerðar-
dómsins nægileg ástæða til þess,
að nemandi geti krafist náms-
samningnum slitið samkvæmt
áðurnefndu ákvæði.
Hvorugur aðili hefir gert kröfu
um skaðabætur eða málskostnað.
Því úrskurðast:
Námssamningi þeirra Ásgríms
Ludvikssonar og Henry Möllers,
dags. 18. júlí 1934, skal slitið
samkvæmt kröfu nemanda.
Hótel Vík.
Gisti- og veitinga-hús.
1 gær var opnað nýtt gisti- og
veitingahú^ í Vallarstræti 4, í íhúsa
Björns-bakarís. Heitir gistihúsið
Hótel Vík og er forstöðumaður
þess Theodor Johnson.
Gestaherbergi eru 16, þar af
7 tveggja manna herbergi.
Eftir miðjan september verður
opnuð veitingastofa á stofuhæð-
inni.
Ferðafélag íslands
ráðgerir skemtiferð í Krísuvík
næstkomandi sunnudag. Ekið
verður í bílum að Kaldárseli,
gengið þaðan vestan Undirhlíða
um Ketilsstíg að Kleifarvatni og
í Krísuvík. Verða skoðaðir hinir
merkilegu hverir, Frá Krísuvík
verður gengið að Isólfsskála og
ekið þaðan í bílum til Reykja-
víkur. Farmiðar fást í bókaverzl-
iun Sigfúsar Eymundssonar til kl.
4 á laugardag.
Skátafélagið „Ernir“.
Skátarnir komi allir á áríð-
andi fund að Ægisgötu 27, kl.
9 á föstudagskvöld.
I DAG
Næturlæknir er í nótt Bjarni
Bjarnason, Leifsgötu 7, sími
2829.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-Apoteki.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 12
stig, 14 stig á Skálanesi. Yfirlit:
Yfir norðvestanverðu Islandi er
lægðarmiðja, sem hreyfist hægt
norður eftir og fer minkandi.
Útlit: Hæg sunnan og suðvest-
anátt. Smáskúrir.
ÚTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tónleikar (plötur): —
Danzlög seinustu kyn-
slóðar.
20,00 Upplestur: Úr íslenzkri
sjómannaæfi, II. (Guð-
mundur G. Hagalín).
20,30 Fréttir.
21,00 Tónleikar (plötur) : a)
Frægir fiðluleikarar; b)
Erlend skógarlög.
S undmeis taram ó tið.
Tvö ný met í bringusundi.
Lokaþáttur þess hófst á Ála-
fossi kl .8 sd. í gærkveldi með
þvi, að kept v;ar í 400 stik. bringu-
sundi karla. Úrslit urðu þessi:
1. Ingi Sveinsson (Æ.), tími 6
mín. 50,6 sek., og er það nýtt íísl.
met á þessari vegalengd á bringu-
sundi. Eldra metið átti Þorst.
Hjálmarsson (Á.), og var það 6
mín. 54,2 sek. Ingi er aðeins 15
ára ajð aldri, og með tilliti til
þess mun þetta vera bezti ár-
angur, sem náðst hefir á þessu
móti. 2. var Þórður Guðmundsson
(Æ.), timi: 7 mín. 01,1 sek. og 3.
var Jóhannes Björgvinsson (Á.),
nmi: 7 mín. 02,0 sek., hann er
16 ára og líklegur til mikils frama
í íþrótt sinni.
50 stika sund, frjáls aðferð
kvenna:
1. Imma Rist (Á.), tími: 0,39,9
sek., nýtt met; eldra metið átti
Klara Klængsdóttir (Á.) og var
það 40,8 sek. 2. Klara Klængs-
dóttir (Á.), tími 39,9 sek. 3. Alda
Hansen (Æ.), tími 48,6 sek.
Þátttakendur í þessu sundi
voru 6 alls. Imma og Klara syntu
saman og varð Imma aðeins
fyrri að snerta endamarkið, en
klukkurnar sýndu sama tíma á
báðum sundkonunum.
1500 stika frjáls aðferð karla.
1. Jónas Halldórsson (Æ.),
tími 23 mín. 32,6 sek. Pétur Ei-
ríksson (K. R.) tók einnig þátt í
þessu sundi, en synti út af braut
s-inni og því dæmdur frá verö-
launum.
Að sundinu loknu afhenti for-
seti 1. S. 1. sigurvegurunum verð-
launin. Að því loknu bauð Sigur-
jón á Álafossi keppendum og
starfsmönnum mótsins til kaffi-
drykkju, og voru þar margar og
snjallar ræður fluttar. Og að lok-
um var danz stiginn frám til kl.
12 á miðnætti.
Skipafréttir:
Gullfoss er á Akureyri. Goða-
foss er væntanlegur til Vest-
mannaeyja í kvöld. Dettifoss er
á leið til Hull frá Vestmanna-
eyjum. Brúarfoss er í Kaup-
mannahöfn. Lagarfoss er á
Vopnafirði. Selfoss er í Ant-
werpen. Dronning Alexandrine
kom í gærkveldi. Island var
væntanlegt til Kaupmannahafn-
ar í dag. Prímúla er í Reykja-
vík.
Ágætur ánamaðkur fæst á
Sellandsstíg 9. Sími 3429.
Höfnin:
British Pluck kom í nótt. —
Laxfoss fór kl. 7 í morgun til
Borgarness. Enskur togari kom
í morgun að skila fiskilóðs.
Spegillinn
kemur út á morgun.
Hjálpræðisherinn.
I kvöld kl. 8y2 saméinuð
helgunarsamkoma, ofursti Hal-
vorsen frá Noregi talar. Allir
foringjar og liðsmenn aðstoða.
Söngur og hljómleikar. Allir
velkomnir. Ókeypis aðgangur.
50j
Bpegillinn kemur út á morgun.
Sólubörn afgreidd allan daginn
í Bókaverzlun Þór. B. Þorláks-
son, Bankastræti 11.
Ní JA Bló H
Stjarnan frá
Valencia.
Þýzk tal- og tónmynd frá
Ufa, er sýnir harvítuga
viðureign hafnarlögreglu
stórborganna gegn ógnum
hvítu brælasölunnar.
Aðalhlutverkin leika:
Liane Haid,
Paul Westermeier og
Ossi Oswalda.
Aukamynd:
Frúin fær áminningu.
Þýzk tal- og tónmynd í 1
þætti.
Börn fá ekki aðgang.
Sá, sem vill innrétta 1—2 her-
bergi og eldhús, getur fengið
ódýra leigu. Tilboð merkt:
,,Skerjafjörður“, leggist inn á
afgr. blaðsins.
ItykUvfk - Hveragerði.
Fastar ferf ir alla daga vikunnar
Frá Reykjavík kl. 10 f. h. nema
mánud. og þriðjud. kl. 1 e. h.
og laugardaga kl. 5 e. h.
Frá Hveragecði kl. 5 e. h. nema
sunnuduga 11. 6 e. h. og mánu-
daga og þriðjudaga kl. 7 f. h.
Afgreiðsla í Reykjavík hjá
Símoni Jó issyni, Laugaveg 33,
búðinni, sími 3221.
Jón Guðlaugsson.
Nýslátrað
dllkakjðt
lifur og svið
kaupa allir í sunnudags-
matinn í kjötverzlunum
okkar.
Kjöt & Fiskmetisgcrðicni
Grettisgötu 64,
RevkMsinn,
Grettisgötu 50 B,
og
KjðtMðinni
í V erkamannabústöðunum.
Hjartans þakklæti til allra, er auðsýndu kærleiksríka samúð
og hluttekningu við andlát og jarðarför
Páls Stefánssonar
er andaðist 10. þ. m.
Aðstandendur.
Leikfimisáhgld.
Þeir skólar eða félög er ætla sér að kaupa leik-
fimisáhöld, hesta og kistur, á þessu hausti geri pant-
anir sínar sem allra fyrst.
Efni og vinna hliðstætt því besta útlenda.
Gnðlaugur Hinriksson,
Vatnsstíg 3. Sími 1736.
IðnsamMnð bynninnamanna.
Tilkynning.
Þeir byggingameistarar, er efni vantar til að fullgera
þau hús, sem nú eru í smíðum, eru beðnir að senda nú þégar
skrá yfir það efni, sem enn er ófengið leyfi fyrir, til skrifstofu
Iðnsambands byggingamaima, til þess að hún fái yfirlit yfir,
hvað vantar af efni til að fullgera byggingarnar.
Sömuleiðis skulu þeir byggingamenn, sem búnir eru eða
ætla að taka að sér að byggja ný hús á komandi vetri, senda
tilkynningu um það til skrifstofunnar, ásamt lista yfir þær
byggingavörur, er þeir þurfa að nota, hversu mikið af hverri
vörutegund og á hvaða tíma vörurnar skuli notaðar.
Sambandsstjórnin.